Heppnin er með mér þessa dagana...



Ég var að fá gefins 2 miða á Red Sox leik í júní. Red Sox vs. Diamondbacks (Arizona)! Dr. Moore, einn af kirurgunum, á ársmiða á Fenway - elsti Baseball völlur i BNA sem er enn í notkun, og gefur alltaf nokkra miða til residentanna. Hlakka geðveikt til - hef alltaf ætlað að fara á Red Sox leik.

Talandi um vinninga þá vann ég 2 vinninga í happdrættinu á Vorhátíð Íslendingafélagsins sem var haldið með pompi og prakt á Rustic Kitchen í gærkvöldi. Í staðinn fyrir að vinna flug til Íslands, gistingu í Mývatnssveit eða í Vermont þá tók ég þjóðlegu vinningana - gjafapakka frá lýsi (birgðir sem endast mér til 2012) og heilan líter af Reykavodka! Það mun ekki væsa um mig á næstunni :)

2 comments:

Anonymous said...

Þú bara bíður mér í einn sterkan þegar ég lufsast í mark eftir Boston maraþonið eftir 16 daga!! Kv, Forrest

Anonymous said...

Frábært - mamma þín er í kaffi hjá mér með bók ; bkv. Már