
... bara 3 dagar milli færslna!
Hérna til vinstri má sjá hvernig Boston leit út frá 22.hæð Ellison byggingunni kl.6.30 að morgni aðfangadags. Rétt áður en ég fór heim af sólarhringsvaktinni. Köld en fögur morgunbirta.
Jólalömbin heppnuðust stórvel - bæði hangikjötið og lambalærið! Aldeils fín veislujól, mmmm, og nægir afgangar fram á nýjár.
Annars er það helst í fréttum að ég er komin í FRÍ - já, alveg heila 9 daga, hvorki meira né minna :)
Ég losnaði m.a.s. snemma í dag, kl. 3pm þannig fríið byrjaði alveg óvænt fyrr en áætlað var. Nú þarf ég að fara á fullt við að pakka, tína til skíða-outfittið, pússa skíðagleraugun og stoppa í lopasokkana því á morgun er ferðinni heitið vestur á bóginn. Ég flýg fyrst til San Fran, þaðan verður superskuttlan tekin til Palo Alto þar sem sam-skíðamenn og konur bíða. Eftir næturstopp þar munum við öllsömul, 6 samtals, pikka upp mini-vaninn og keyra til Lake Tahoe þar sem hraustleg og heilsusamlega skíðaiðkun verður stunduð í heila viku.
Engar áhyggjur, þetta verður ekki alheilsusamlegt, þar sem frést hefur af fjölda spilavíta á skíðasvæðinu (!) - þ.e. Nevada megin við fylkjamörkin, einnig eru barir á við og dreif í brekkunum þar sem hægt er að ylja sér við heitt toddý og kynnast mönnum í ullarpeysum og svo verður auðvitað nýjársball!
Aðstæður í Tahoe skýrast betur fljótlega og mega lesendur hlakka til næstu færslu sem verður þ.a.l. líklegast ekki fyrr en á nýju ári!
Þetta er í fyrsta skipti sem ég verð ekki á Íslandinu góða um áramótin, hálfskrýtið verð ég nú að viðurkenna og ég á eftir að sakna familíunnar í gamlársboðinu á Hrólfskálavörinni!! Sendi öllum bestu Nýjárskveðjur og megi 2009 verða ekki síðra en hið góða ár 2008.
Adios þangað til næst!
Ó.
..sko hvað ég er dugleg
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, December 26, 2008
1 comments
Gleðileg jól!
24. desember 2008, 2.10pm
- gráleitt útivið, aðeins byrjað að hlýna en enn jólasnjór yfir öll. Friðsælt yfir.
- ilmur af greni, mandarínum og kaffi.
- kór Langholtskirkju undir geislanum.
- kveikt á jólatrénu og kertaljós í glugganum.
Ég er nývöknuð eftir 24 tíma vakt. Var ekki búin að vera vakandi nema í 7 mínútur þegar fjölskyldan hringdi, akkúrat 7 mínútur yfir sex að íslenskum tíma. Rosalega notalegt að sjá þau öllsömul (webcam - nauðsyn í öll hús!) í sínu fínasta pússi, með Pino Rossi í bakgrunninum og freyðivínsglas í hendi, skálandi fyrir jólunum. Mamma m.a.s. sýndi mér kalkúninn í beinni.... mmmmmm. Útaf birtunni frá daufum jólaljósunum var svona eins og gulleit retro-birta í kringum þau öll. Eitt augnablik litu þau út eins og fullkomið jólakort frá eftirstríðsárunum.
Ég var í bleikum náttfötum með úfið hár - svona til að auka á jólastemmninguna, enda, eins og glöggir lesendur tóku eftir, var undirriturð einungis búin að vera vakandi í 7 mínútur. Þó það nú væri.
Ekki amalegt að byrja daginn svona. Ákvað að halda áfram í sömu stemmningu - þemað í dag er nefnilega hálfpartinn retro-jól, þ.e.a.s íslensk jól. Bjó til grjónagraut með rúsínum, kanil og möndlum í hádegismat, laumaðist reyndar aðeins til að setja smá maple síróp frá Vermont útí (einmitt, í anda Vesturíslendinga sko... ) og er að fá mér annan kaffibolla áður en ég bretti upp ermar. Í kvöld verður nefnilega hangikjöt á borðum með det hele - já, det hele á amerískan hátt, fann nefnilega engar ORA baunir í whole foods, franskar grænar strengjabaunir verða staðgengillinn, rauðkálinu verður skipt út fyrir sneiddar rauðrófur en uppstúfinu verða gerð góð skil og viti menn, haldið ekki að Ketkrókur hafi fært mér nokkur laufabrauð þegar hann kom til byggða. Síðan verður súkkulaðifrómas Ingu Hall í desert! Sigurdís kemur í jólastuðið eftir vaktina sína...
Annað kvöld verðum við Sigurdís svo með annan í íslensku jólastemmningunni. Lambalæri og malt og appelsín og fullt af Ameríkönum í mat - ákváðum að kenna þeim gott að meta :) Þeir eru dálítið vantrúa eftir öll ópal skotin sem við erum búin að gauka að þeim... hér fílar fólk ekki lakkrís, þannig er það bara.
Þannig er nú jólastemmningin hér á bæ!
Sendi bestu jólakveðjur til allra :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, December 24, 2008
1 comments
New scrubs!
Thad hangir uppi auglysing a skurdstofu kaffistofunni um nyju MGH scrubs-ana sem a ad taka i notkun fljotlega.
Eftirfarandi staerdir verda i bodi:
S
M
L
XL
2XL
og
...3XL
Kaninn virdist litid hafa minnkad vid sig atid a thessum sidustu og verstu!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, October 23, 2008
1 comments
Haustlitaferð til New Hampshire
Á þessum síðustu og verstu er um að gera að skreppa í sveitaferð til að ná sér niður eftir annríki vikunnar. Ég fór því á föstudagskvöldið eftir vinnu í bíltúr uppeftir til Lebanon, NH, og dvaldi í góðu yfirlæti hjá eðalhjónunum Jóa og Álfheiði. Það var æðislegt að fara aðeins útfyrir skarkala borgarinnar og skoða haustlitina í NH og Vermont. Nokkrar fleiri myndir á myndasíðunni.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, October 20, 2008
0
comments
Eitt annað úr haustveðrinu
Í fyrsta lagi má hér sjá afrakstur eplatínsluferðarinnar. Flest eplin voru nú bara borðuð beint úr pokanum en ég setti mig í húsmóðurgírinn og bakaði 2 svona:
Annars er bara búið að vera dáldið mikið að gera í vinnunni. Nú þegar tutorinn minn er búinn að sleppa af mér hendinni þá er ég með nýjum og nýjum sérfræðing á hverjum degi og það tekur lengri tíma að undirbúa sig fyrir hvert tilfelli fyrir sig. Fyrsta rotationin mín er annars á urologiunni (þvagfærateyminu) þannig ég er svo heppin að fá að vera viðstödd hinar athyglisverðustu aðgerðir. Auk þess er ég búin að komast að því að það eru bara snillingar sem fara í þvagfæraskurðlækningar. Ég er búin að kynnast hinum ýmsu mjög svo skemmtilegu karakterum. Fremstur í flokki er svarti ofur-djammgaurinn frá Brooklyn, NY, sem er búinn að sýna mér aðalklúbbana í Boston. Lágvaxni þybbni, en mjög svo orðheppni Texasdúdinn er líka hress og svo má auðvitað ekki gleyma Sweeney og Mehrdad sem glöggir lesendur muna kannski eftir frá fyrri færslum.
Við Sigurdís fórum í gær á ROSALEGA tónleika með Madonnu í the Garden. Þetta voru alveg geggjaðir tónleikar, ég hef aldrei séð svona flott show, aldrei! Vá, við vorum alveg dolfallnar - hún er í svo ótrúlegu formi, dansaði og hoppaði og skoppaði á sviðinu í 2 tíma án þess svo mikið sem hiksta á einni nótu (jájá alveg eins og við Sísí uppi á the balconies, jájá). Bara meiriháttar! Við skemmtum okkur þvílíkt vel...og já, nýji diskurinn hennar er mjög töff og algjörlega meðmælanlegur!
Og já, ég minni á að konan er fimmtug.... hikst!
Í dag er svo hinn sögufrægi Ether Day haldinn hátíðlegur hér í Boston. Í tilefni fyrstu svæfingarinnar sem var einmitt framkvæmd á Mass General 16. okt 1846, var okkur öllum boðið í kokteil niður við Boston Common. Góðar veitingar, mingl við aðra svæfinga residenta á Bostonsvæðinu og svo smá tala um minnismerkið sem er einmitt staðsett í Boston Common. Ekki slæm leið til að eyða fimmtudagskvöldi.
Framundan er svo eitt og annað skemmtilegt. Annað kvöld ætla ég að skella mér í bíltúr uppeftir til New Hamshire og heimsækja Jóhann Pál og Álfheiði, borða sveitamat og skoða haustlitina. Á laugardagskvöldið verður Sísí með rosapartý og á sunnudaginn er ég að fara í BBQ til Vestur-Massachusetts en einn af sérfræðingunum er með grillveislu á heimili sínu í Gilbertville. Gilbertville, það er einmitt skondnasta bæjarheiti sem ég hef heyrt í langan tíma!!. Hann er reyndar mjög svo skemmtilega klikkaður (eins og reyndar margir svæfarar, eða "gas-passers" eins og Runólfur Páls segir :)) þannig þetta verður ábyggilega hin skemmtilegasta veisla.
Meira seinna :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, October 17, 2008
2
comments
Eplatínsla og huggulegheit í haustlitunum
Ég fór í eplatínsluferð til Vestur Massachusetts í gær. Við fórum, ég, Elfa, Alexis og Nico, Delphine og Laurent og börnin 3. Þetta var hinn huggulegasti bíltúr út í sveit á lífrænan bóndabæ sem ræktar epli, perur og hindber.
Þarna eru Alexis og Tómas hennar Elfu að setja sig í stellingar fyrir eplatínsluna.
Elfa á að eiga í lok október.
Tómas og Louison
Alexis að teygja sig í hindber
Afrakstur dagsins
Síðan var farið heim og eldað því Jói og Álfheiður komu í heimsókn frá New Hampshire auk Gunnars og Elfu. Fyrsta matarboðið í nýju íbúðinni! Þessar iPhone myndir eru dáldið þokukenndar en það er bara svoleiðis...

Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, October 06, 2008
1 comments
Sumar myndir eða sumarmyndir
Í tilefni þess að ég fann myndavélina mína aftur eftir flutninga um síðustu mánaðarmót fannst mér nú alveg tilvalið að skella inn nokkrum myndum frá því í sumar.
Við Álfrún byrjuðum í Los Angeles. Flugum þangað 4.júlí og byrjuðum ferðina niður á Santa Monica Pier í leit að flugeldasýningu.

Eftir skoðunarferð um Hollywood
og Universal Studios
og skemmtilegan dag með Heiðrúnu, Orra og Ragnari Orra á Venice Beach

lögðum við land undir fót (eða mini-van, nánar tiltekið). Við vorum í 14 manna hóp og ferðuðumst um í litlum mini-van frá LA til San Francisco. Fyrsta stopp var við bakka Colorado River í Arizona eyðmörkinni. Það var svo heitt þessa nótt að við sváfum öll undir berum himni, þar sem það hefði orðið alveg ólíft í tjöldunum. Sem betur fer létu snákar, sporðdrekar, sléttuúlfar og öll hin eyðimerkurdýrin okkur í friði.
Við héldum áfram í gegnum Arizona eyðimörkina
eftir Route 66 (þar sem árið var enn 1945)
og komum svo að hinu ótrúlega magnaða Grand Canyon


þar sem við gistum yfir nótt og fórum í langt hike áleiðis niður í gilið - sem er meira en 1km djúpt.

Eftir að hafa síðan vaknað fyrir allar aldir til að sjá sólarupprásina yfir gilinu
var síðan haldið til Las Vegas. Vegas var geggjuð, algjör upplifun! Ég bjóst við að þetta væri allt saman hálf sleezy en Vegas rokkaði! Það var 50 stiga hiti þar en það var góð loftkæling í spilavítunum og svalandi í sundlaugunum.


Derek vinur minn sem býr í Phoenix, AZ, keyrði uppeftir og var með okkur einn sólarhring.
Fórum í partyrútu
og að sjálfsögðu létum við reyna á gæfuna í spilavítunum
meira seinna.... annars er verið að skipuleggja næstu ferð. Skíðaferð til Lake Tahoe, fyrrum höfuðstöðvum Vetrarólympíuleikanna, um áramótin. Ooohhh, er farin að hlakka til :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, September 28, 2008
3
comments
Hurricane Hanna
Fyrsta alvöru stormviðvörunin síðan ég flutti til Boston skekur nú allar sjónvarpsstöðvar í fylkinu. Hurricane Hannah stefnir upp með ströndum Boston! I fyrramálið á hann að ná hámarki með allt að 70 mph vindhraða og auðvitað rosarigningu. Það er m.a.s. varað við flóðum og hana nú! Og nema hvað, það er ekki nema 6 dagar síðan ég flutti í nýju íbúðina mína, sem er á JARÐHÆÐ!!! Fjúffff, gott ég fékk mér innbústryggingu sem tók einmitt gildi í fyrradag :)
Svona lítur Hanna út á gervihnattamyndum, þarna er hún við Flórida strendur kl.11 í morgun. Agalega litskrúðug og fín
Svo í bónus er hér ein mynd af mér og tutornum mínum honum Stu Forman. Þarna erum við í gríðarstuði í urologiskri laser aðgerð (ef einhver skyldi vera að velta fyrir sér þessum gleraugnaútbúnaði - spes speisuð laser goggles (eða googles eins og ég bar það fram fyrst! you know, eins og leitarvélin, já eða ekki, ahemm!). Hann er hress gaur, er með mér 24/7 fyrstu 2 vikurnar og eys yfir mig svæfingarfróðleik af miklum krafti eins og sjá má.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, September 06, 2008
3
comments
Costa Rica
Er stodd i strandbaenum Jaco a vesturstrond Costa Rica. Til ad gefa ahugasomum lesendum nasathef af stemmningunni adur en stora ferdasagan verdur i ord sett.. tha er her:
- vetur nuna
- sol a hverjum degi til ca. 5pm en tha byrjar tvilikt thrumuvedur med eldingum sem jafnast a vid gamlarskvold heima
- surfad a hverjum degi, spaenskutimar x2 a dag og svo stud fram eftir nottu a hverju kvoldi.. verst ad surfid byrjar nuna kl. 6.30 a morgnanna!
- her er ferskasti fiskur i heimi (nema kannski fyrir utan Island), ofur-sushi og gallo pinto i morgunmat (hrisgrjon mixadar vid svartar baunir). MMMMMmmmm.
- buin ad sja krokodila, oskurapa, spider-apa, storka, edlur, spuandi eldfjoll, Costa Rica utilegumenn o.s.frv. Sum i meiri nalaegd en eg hefdi eiginlega kosid.
Sidasti dagurinn her er svo a sunnudag en tha flyg eg aftur heim til Boston, pakka nidur ollu dotinu minu og flyt i snobbhverfid. Thott thad verdi erfitt ad kvedja hid luxourious sumarleyfisfri er samt daldid spenno ad fara ad flytja og byrja i nyja programminu minu.
Meira seinna. Adios i bili.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, August 22, 2008
0
comments
Uppsalir og undarlegir strætómiðar
Svíþjóð er enn ekkert slor... þrátt fyrir að hitabylgjunni sé lokið og nú rigni hundum og köttum. Eftir afar skemmtilega dvöl í Stokkhólmi hjá Steinku og co. er ég nú komin til Uppsala til Ingaló og Árna, að ógleymdri heimasætunni Guðrúnu Helgu. Þau búa í mjög svo kósý husi í Herrhagen sem er í skógarjaðrinum, með eplatré í garðinum og nágranna sem heitir Pia.
Eftir dálitið hvítvínslegna ferð með lestinni frá Stokkholmi rétt um miðnætti, ákváðum við Ingalo að taka strætó heim í Herrhagen. Skv. Ingaló var mun ódyrara að kaupa strætómiða i sjálfsala á stoppistöðinni en að borga i vagninum. Ég fékk það hlutverk að fara í leiðangur að kaupa miða meðan hun passaði töskurnar. Eftir smá ráf um strætóskiptistöðinni fann ég loks "biljet automat" og keypti 2 miða á 20 SEK.
Þegar við komum svo um borð í bussen (eftir smá erfiðleika með töskuburð) afhentum við bílstjóranum miðana.
Bilstjorinn: Hvor fik ni de her biljetter?
Eg: Nuuu, selvfölgeligt i biljett automaten (eins og fólk veit tala ég DANSK-sænsku!)
Bilstjorinn: Ahå.... og kimdi hálfpartinn, sem ég hélt væri út af asnalegu "sænskunni" minni.
Þegar við nálguðumst endastoppið i Herrhagen, tokum við eftir því að miðarnir okkar giltu fram á mánudagsmorgun. Hmmmmm, sænskir strætomiðar sko!
Við nánari athugun reyndist standa skýrum stöfum að þessi miði skyldi staðsetjast vel sýnilegur innan við framrúðuna, læsilegur stöðumælaverðinum....
Bílstjórinn kvaddi okkur svo með hressilegu hejdå og var ennþá hlæjandi. Eins gott að maður býr bara í Ameríkunni segi ég nú bara.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, August 03, 2008
4
comments
Sutt og hnitmiðað Svíþjóðarblogg
Er í Sviþjóð hjá Árna og Steinunni. Svíþjóð er ekkert slor. Hér er búið að vera sól og massa-blíða í allan dag. Fórum í vettvangsferð til ICA í dag og elduðum svo eðalmáltíð í kvöld, skandínaviskan lax, nema hvað. Nánari ferðalýsingar síðar...
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, July 30, 2008
1 comments
Ísland
*KEA Skyr í morgunmat
*Sunnaustan 8 m/s, 12 stiga hiti og skýjað
*Mogginn í pappírsformi
*Karlakór á RÚV syngur lög eftir Kristján frá Djúpalæk
*Saumabúðin Seyma auglýsir útsölu, útsölu
*Ristað brauð með íslenskum tómötum og piparosti og Merrild kaffi
*Nína systir komin með stutt hár
...það er nú notalegt að vera komin heim :)
Ætla að fara og ná mér í nýtt símakort í dag, verð með gamla góða 699 6045 næstu 3 vikurnar, með hléum.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, July 23, 2008
0
comments
Boston í einn dag
Þá erum við Álfrún systir mættar aftur til Boston eftir afar hressilegt frí um eyðimerkur Arizona, fjárhættuævintýri í Vegas og road trip milli skógarelda í Californiu - þannig nú er kominn tími til að halda til Íslands í smá afslöppun. Nánari útlisting á ferðasögunni kemur síðar.
Með aðeins einn dag í Boston milli ferða, þurfti gríðarlegt skipulagt til að koma alls kyns leiðinda pappírsstússi í höfn, visa-mál, bankamál og ameríski skattmann sem er enn á hælunum á mér þurfu öll sinn tíma auk þess sem ég skrapp á Mass Genereal að sækja nokkur gögn og bókapakkann minn sem maður fær gefins áður en maður byrjar. Svæfingardeildin á Mass General setur manni nefnilega fyrir heimalærdóm ÁÐUR en maður byrjar í prógramminu, jahá, nokkuð kræfir!
Hér má svo líta hinn glæsilega bókapakka sem ég sótti í dag, heil 6 kíló takk fyrir.
Mér skilst að ég eigi að vera búin með Basics of Anesthesia áður en ég byrja eftir mánuð.... þar fór afslöppunin á Íslandi.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, July 22, 2008
0
comments
32 Braddock Park
Það er helst í fréttum að ég er komin með nýja íbúð frá 1.september. Þann dag flyt ég (eins og meirihluti Bostonbúa - skil nú ekki hvernig það fungerar! "The big move day" jájá) úr Roxbury og í siðmenninguna í South End. Fann þessa líka svakafínu íbúð á Braddock Park sem er ein af fínni götum bæjarins (að mínu mati amk) - kannski jafnvel dáldið snobbað hvefi, alla vegna þurfti Condo Trust hússins að samþykkja veru mína í húsinu (Condo Trust hljómar mjög civilized)- held þeir hafi fallið fyrir starfsheitinu resident. Ekki af því það er svo fancy að vera læknir heldur af því þeir vita hvað ég verð lítið heima... þ.a.l. lítill séns á hávaða og látum, lítil notkun á garðinum og lítil brunahætta þar sem kokkahæfileikarnir eru lítið í notkun svona seint á kvöldin eftir vinnu.
Þessi "park" er rétt bak við Prudential Centrið (fyrir þá sem eru kunnugir staðarháttum) á mörkum Back Bay og South End. Æðislegur göngustígur sem liggur í gegnum South End bara við bakgarðinn og tennisvellir, sólblómabeð og kryddjurtagarðar allt um kring.
Svona er týpiskt hús á Braddock Park
Annars er mikið stuð í lítlu íbúðinni á Fort Ave þessa dagana. Sigurdís kom um miðjan júní og ætlar að passa húsið í sumar og svo kom Álfrún systir í gær. Svo förum við systurnar til Los Angeles á föstudag, lendum í miðri Independence flugeldasýningu um kvöldið. Spurning hvort maður chillar á Beverly Hills hótelinu okkar um kvöldið eða förum út og finnum 4.júlí gleðskap einhvers staðar.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, July 03, 2008
2
comments
End of the Year partý
Myndir frá útskriftarveislunni í gærkvöldi. Öllum unglæknunum var boðið til að fagna með útskriftarárgangnum. Rosalega flottur dinner á Boston Harbor Hotel þar sem var spilað fyrir dansi fram á rauða nótt þangað til það var haldið í eftirpartý sem fór fram á rooftop garðinum hjá einum skurðlækninum í South End þangað til sólin kom upp.
Við hafnarbakkann, fyrir aftan the Wharf room á Boston Harbor, fordrykkir, sushi, skútur og beint útsýni á flugvöllinn handan hafnarinnar þar sem maður fylgdist með vélunum koma og fara. Mjög flott. Mér hefur alltaf fundist eitthvað heillandi við að fylgjast með flugvélum taka á loft og lenda (jájá, dáldið spes).
Mehrdad að fá sér sjávarfang í for-forrétt. Hljómsveitin að koma sér fyrir í bakgrunninum.
Forrétturinn. Risa hörpuskel og Sauvignon Blanc.
Susie og ég, glöggir taka eftir svipuðum hárstíl enda erum við Susie Q báðar klipptar af Jensy, stórkostlegum klippara frá Puerto Rico, sem við elskum.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, June 23, 2008
6
comments
Bara.....
1 NÆTURVAKT EFTIR!!!
ó já ó já.
Í kvöld verð ég með lítinn nýjan intern með mér á vaktinni, við eigum að reyna að setja þau inn í hið eftirsóknarverða internstarf. Aumingja nýji interninn að byrja á þessari rotation.... þetta er alveg ein sú versta til að byrja á.
En mikið verð ég glöð kl.6 í fyrramálið þegar ég signa út píptækið mitt í síðasta skipti þangað til í September :-)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, June 18, 2008
6
comments
Tropical stemmning og ámátleg umferðarsaga
- Geðveikt veður í dag, 30 stiga hiti og sól.
- Ekki verra að ég er í fríi í dag.....jeiiiiiiii. Ég náði að kría út aukafrídag! Er búin að vera að pappírast í morgun (tryggingar, visa, íbúðaleit) en er á leiðina á ströndina til að kæla mig aðeins.
- A/c-ið ekki komið upp, úff. Of heitt til að vera inni, þar af leiðandi ekki hægt að nota daginn í að setja upp A/C-ið... þar af leiðandi nauðsynlegt að kæla sig niður með öðrum leiðum, t.d. með að fara á ströndina... auk þess sem landlordinn er að fara að sýna íbúðina í kvöld, fæ hann til að koma loftræstingunni upp.
Annars er þetta helst í fréttum:
- Bara 9 dagar eftir af intern árinu :)
- Bara 25 dagar í Californiuferðina
- Var að kaupa mér línuskauta - stefni á massív skautaafrek við Charles ána í sumar
- Frestaði USMLE prófinu mínu (átti að vera í dag...) þar sem ég hafði engan tíma til að lesa :(
- Er ekki enn búin að finna mér nýja íbúð fyrir næsta vetur. Kannski ég verði bara annað ár í Roxbury.
- sem sagt, ekkert rosalega mikið að frétta....
Annars náði ég að afreka það um daginn af fá $360 í umferðarsektir á innan við hálftíma, hummpff, ef afrek skyldi kalla.
Ég var að skuttla (aðeins of mikið í orðsins fyllstu merkingu) Sigrúnu á flugvöllinn. Verandi góð vinkona lagði ég bílnum fyrir utan hjá henni til að hjálpa henni að bera niður töskurnar, það voru auðvitað engin laus stæði fyrir utan þannig ég ákvað að leggja fyrir utan Dunkin Donuts - sem er við hliðina á húsinu hennar. Þegar við burðuðumst niður með töskurnar 15 mín seinna.... enginn bíll! Þegar við litum fyrir hornið sáum við í skottið á einhverjum stórum og ljótum tow-car sem var að draga saklausa Camry-inn minn í burtu..... grrrrrr! Hvernig átti ég að vita að það mætti ekki leggja þarna (ég spurði DD unglinn á kassanum og hann benti mér á eitthvað pínku ponsu skilti og horfði á mig eins og ég væri fífl, benti mér svo á næsta hraðbanka og glotti) $160 að leysa bílinn úr ánauð.
Bíllinn var bara í 4ra blokka fjarlægð þannig við lögðum land undir fót og sóttum hann. Verandi orðnar ískygglega seinar á völlinn, eftir vel valdar athugasemdir til tow-konunnar, var ákveðið að taka I-90 hraðbrautina á flugvöllinn og sóttist okkur ferðin vel; þ.e. þar til ég beygði niður í Summer - göngin sem liggja út á flugvöll. Skyndilega (n.b. einungis 22 mín eftir að ég sótti bílinn til hins illa tow companys) stökk fullbúinn lögga í veg fyrir bílinn og bandaði mér út í kant. Lúmskir eins og þeir eru, þá mæla þeir mann akkúrat þar sem maður fer inn í göngin, hmmm, akkúrat þar sem hámarkið breytist úr 65 í 45. Svo er bara baunað á mann: "Mam, you were 65 on 45!!" Já já, hverjum er það að kenna, kannski bara þeim sem reikna ekki með að maður þurfi smá tíma til að hægja á sér, fuss!! Tilvonandi Boston-ferðalangar mega telja sig varaða við illskiljanlegum umferðarreglum hér með, stefni einhver á að leigja sér bíl hér í borg! Mæli ég með bókinni Boston Handbook of Driving fyrir þá sem vilja kynna sér ó-reglurnar betur.
Gaurinn var verulega súr (kannski skiljanlegt, vinna við að húkka bíla í einhverjum mengunargöngum!) Alla vegna, $200 dollara sekt þar.... Auk þess var löggimann ekki par ánægður með íslenska ökuskírteinið - ég mátti þakka mínum sæla fyrir að fá ekki aukasekt fyrir að vera ekki með Mass-licience sem hann vildi meina að ég ætti að vera með, keyrandi í Massachusetts (já já), en ég náði nú einhvern veginn að tala mig út úr því. Aumingja Sigrún, sem var farin að halda sér ískyggilega fast í undir lokin og orðin verulega áhyggjufull um að eyða næstu nótt í fangelsi í staðinn fyrir í Icelandair vélinni... en ótrúlegt en satt, þá náði hún vélinni, kom út á völl 45 mín fyrir brottför!
Þetta var sem sagt gremju-horn dagsins (tileinkað Bjarna frænda og Boston Handbook of Driving). En nú ætla ég á stöndina... á bílnum... ef hann er enn fyir utan.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, June 09, 2008
1 comments
AMATEUR TRANSPLANTS: Anaesthetists Hymn LIVE
Stórkostlegt!!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, May 31, 2008
1 comments
Allir að standa sig geðveikt vel!
- Nína systir, sem var að komast inn í svakaflottan hönnunarskóla í Barcelona í 3ja ára BA nám í fashion design. Skólinn heitir Istituto Europeo di Design og hér er heimasíðan: www.ied.es
- Sigrún Ólafs, sem toppar alla aðra í Bloomington með ritgerðinni sinni. Nema hvað.
- Sigrún Forrest sem var að hlaupa Boston maraþonið á mettíma!
- MIT-Magga sem er að fara að prófessorast í Stanford.
- Mamma sem var að þýða enn eina bókina: Strákinn í röndóttu náttfötunum - hún er næst í bunkanum á náttborðinu
- Steinunn, sem er loksins búin að fá sér Skype :)
- Álfrún systir sem er búin að kaupa sér flugmiða til Boston í sumar til að ferðast um Vestrið með mér, við ætlum að vera með kúrekahatta í blæjubílnum- júbbí
- Agnar frændi og Brynja sem eru þokkalega að taka forskotið með næstu kynslóð í ættinni
- Addý, læknisfræði-bekkjarsystir sem er að fara að gifta sig um næstu helgi
Gaman gaman. Ég er ótrúlega stolt af ykkur öllum :)
Eru fleiri sem luma á góðum fréttum?
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, May 06, 2008
2
comments
The Hush Sound
Jei - er að fara á tónleika um næstu helgi!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, May 06, 2008
0
comments
Gleðilegt sumar!!
Í tilefni dagsins er búið að vera sól og blíða alla vikuna með hitastig "in the 20s". Hér er komið sumar :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, April 25, 2008
3
comments
Er að fara til NY í fyrramálið
... að sóla mig í vorsólinni á Central Park, shoppa á 5.Ave, fá mér cappucino á Union Square, skoða gallerí í Brooklyn, rappbúllur í Harlem og fara á Dangerous liasions á Broadway :)
Annars er planið fyrir sumarið svona:
**Júní**: Thoracics - síðasta rotationin sem amerískur intern!!!! Get ekki beðið - í dag eru nákvæmlega 66 dagar eftir af intern-árinu.
**Júlí**: California - LA, Grand Canyon, Las Vegas, Yosemite, San Fran, Big Sur, Monterrey, Santa Barbara vínsmökkun, O.C. og fleira of fleira skemmtilegt. Síðan til Íslands í 3 vikur.
**Ágúst**: Ísland, brúðkaup hjá Önnu Katrínu og Greg. Síðan smá skreppitúr til Costa Rica að læra að surfa í 10 daga áður en ég byrja í svæfingunum 27. ágúst.
Þetta er ábyggilega í eina skiptið næstu 10 árin sem ég fæ 2ja mánaða sumarfrí, eins gott að nota það vel.
Over and out í bili B-)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, April 15, 2008
5
comments
"Hey, do you know the ABCs for anesthesia?"
...spurði einn kirurginn mig í dag.
A-airway
B-bagel
C-coffee
D-donuts!!
....thessir kirurgar gera endalaust grin ad svaefurunum :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, April 09, 2008
1 comments
Heppnin er með mér þessa dagana...

Ég var að fá gefins 2 miða á Red Sox leik í júní. Red Sox vs. Diamondbacks (Arizona)! Dr. Moore, einn af kirurgunum, á ársmiða á Fenway - elsti Baseball völlur i BNA sem er enn í notkun, og gefur alltaf nokkra miða til residentanna. Hlakka geðveikt til - hef alltaf ætlað að fara á Red Sox leik.
Talandi um vinninga þá vann ég 2 vinninga í happdrættinu á Vorhátíð Íslendingafélagsins sem var haldið með pompi og prakt á Rustic Kitchen í gærkvöldi. Í staðinn fyrir að vinna flug til Íslands, gistingu í Mývatnssveit eða í Vermont þá tók ég þjóðlegu vinningana - gjafapakka frá lýsi (birgðir sem endast mér til 2012) og heilan líter af Reykavodka! Það mun ekki væsa um mig á næstunni :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, April 06, 2008
2
comments
Lögleg geimvera
Það er helst í fréttum að Sigurdís vinkona er komin með stöðu hérna í Boston og mætir á svæðið í sumar sem medicine resident á BUMC. Húrra fyrir því :)
Svo var ég að fá nýjasta eintakið af DS2019 í hendurnar. Fyrir þá sem eru ekki vel inni í heimi pappírsvinnufrumskógar Department of Homeland Security þá þýðir það að ég var að fá framlengingu sem "legal alien" hér í landi til ágúst 2009! Þessi vafasama staða (maður er jú titlaður sem "alien") er nefnilega bara gefin út til eins árs í senn... það er nú vissara að endurskoða það árlega, skyldi maður sýna af sér grunsamlega hegðun, framferði eða gjörðir.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, April 05, 2008
0
comments
Það er kominn dagur!!
Þá er 6 vikna næturvaktatörnin búin - si svona, leið ekkert smá hratt. Ég er nú bara nokkuð hressileg eftir þessar vikur, geðheilsan með besta móti og bara vor í lofti.
Nýjasta rotationin: BÆKLUN
...ef ég man rétt var það einmitt það fyrsta sem ég útilokaði sem sérgrein sem 4.árs læknanemi, því maður hafði einmitt svo mikið vit á sérgreinunum þá. Hér er bæklun hinvegar aðalfagið og fólkið með hæsta IQ-ið fer í bæklun (ég skil samt ekki enn af hverju, hmmmm, það er líklega þess vegna sem ég er ekki í bæklun....). Alla vegna, rotationin byrjar þvílíkt vel. Bæklun er strax orðin mjög jákvæð í mínum huga, hvort sem trúið því eður ei. Þrátt fyrir að yfir daginn áframsendi allir eldri residentarnir pípin sín í mitt tæki (hið illa píptæki: 16000 - eða 1-800-ortho) og ég covera þannig beint eða óbeint 60 sjúklinga yfir daginn sem er algjör geðveiki, þá er þessi grúppa af fólki alveg stóóóóórkostlega fyndin, og það sem er enn betra, allir bara mjög tjillaðir.
Það eru 2 Chief residentar:
Chief nr.1 er hávaxinn, grannur gaukur með enn hærri kollvik og arnarnef. Virkar mjög alvarlegur í fasi við fyrstu kynni en þegar hann fer úr frakkanum á morgunfundunum blasir alltaf við slaufa dagsins. Hann gengur nefnilega alltaf um með þverslaufu um hálsinn, svona til að peppa upp stemmninguna enn frekar. Hingað til hef ég séð gula, rauðdoppótta og slaufa dagsins var grænbrúnröndótt. (key words: Björn skólastjóri, Hagaskóli, 40 árum yngri).
Chief nr. 2 er lítill naggur með Prins Valíant hár, hann minnir oneitanlega a Wayne ur Wayne's World. Hann veðraðist allur upp þegar ég sagðist vera frá Íslandi og sagði strax: Reytjavich - en það er einmitt næstalgengasta kommentið sem maður fær þegar maður ljóstrar upp uppruna sinum. Það algengasta er: Hey, isn´t it: Iceland is green, Greenland is icy!? Já já, þeir eru svo vel lesnir hér. Alla vegna, chief nr. 2 á vini sem hafa farið í partýferð til Íslands, og það er núna efst á óskalista hans að fara í slíka ferð. Ég benti honum góðlátlega á það að það gæti verið gott að fara í klippingu fyrst (orðaði það auðvitað mjög pent!).
Annars árs residentinn minn er líka frábær gaur. Hann er frá Louisiana og talar með þykkasta Suðurríkjahreim sem ég hef heyrt! Það er unun á að hlusta. Ég heyri sjaldan hvað hann er að segja við mig því ég dett svo í að dast ad hreimnum. Hann er svalur.
Já, og það allra besta er að við erum 2 internar á þessari rotation (sem er óvanalegt). Þannig við skiptumst á að vera með 16000, annan hvern dag og hinn daginn mætum við bara til að rounda og erum svo stikkfri thad sem eftir er dagsins, förum á skurðstofuna eða gerum eitthvað sem okkur langar til - thad er mjog heppilegt, á morgun þarf ég nefnilega að skreppa til Newton og aetla ad skjotast til endurskoðandans i leidinni. Maður á nú samt helst að vera á spítalanum ef þá vantar einhverja aðstoð. Endurskoðandinn er annars að gera amerísku skattskýrsluna mína til að ég fái nú ábyggilega allan skatt síðasta árs endurgreiddann.
Massachusetts fylki borgar nefnilega fólki fyrir að flytja hingað og allur flutningskostnaður er frádraganlegur frá skatti. Auk sem öll vinnutengd gjöld eru frádraganleg, m.a. allur viðtalskostnaðurinn í fyrra (einhver slatti af flugmiðum, hótelgistingum o.fl.). Fínn gaur, þessi endurskoðandi :)
Vá, hvað þetta var löng færsla.. og aðallega um bæklun, ekki hefði ég nú trúað þessu upp á mig.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, March 27, 2008
1 comments
Eg var ad panta flug...
... til Islands i sumar - jei!
Kem 22. juli og verd i manud :):):):)
Pant fa eins gott vedur i sumar og var i fyrra - thid vitid, goda vedrid sem byrjadi daginn eftir ad eg flutti til utlanda....
Hver er med i utilegu?
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, March 13, 2008
4
comments
Restaurant week i Boston - svona a ad gera thad!

svona food'n'fun i Boston.
Aedi
:)
A morgun: lunch a Oishii - besta sushi-id i Boston. Einn naeturvaktagaurinn er buinn ad liggja yfir Zagat guide og fekk tha frabaeru hugmynd ad boka naeturteymid i luncha a einhverjum svakafinum restaurontum x2 i thessari viku og x2 i naestu viku. Thetta er eiginlega ad fara ut i einhverja vitleysu, ekki nog med ad vid "hang around" allar naetur, spilum scrabble online, horfum a Clinton vs Obama a widescreen og nordumst yfir CT myndum, heldur hittumst vid og djommum a laugardogskvoldum og nu aetlum vid ad fara ad borda luncha (thegar vid eigum ad vera sofandi) x2 i viku.
Agalega kosy - naeturvaktafamilian :)
Eins og sest er 6 vikna tornin ad throast a athyglisverdan hatt....
Hef ekki enn thurft gedkonsult en thetta er ad verda daldid steikt, muhahaha. Thad eru allir ad vera halfmaniskir eitthvad.
...eins og sest er prospektiva atferlisstudian i fullum gangi :o)
Annars er bara kominn sumartimi her, sol fra sjo a morgnanna til sjo a kvoldin og vor i lofti.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, March 11, 2008
0
comments
Um naestu helgi...
...er eg a leidinni hingad!
Snjobretti, fjallakofi, apres ski og skemmtilegt folk.
Eina sem eg er ekki alveg buin ad finna ut er hvenaer eg aetla ad sofa adur en naesta nattevakt vika byrjar a sunnudagskvold, hmmmm.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, March 06, 2008
0
comments
Vikan
Í starfi sem þessu er mjög nauðsynlegt að vera vel skipulagður. Því hefur næturvaktateymið komið sér upp kerfi þar sem skipulag vikunnar fyrir "extra curricular activities" er update-erað reglulega :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, February 28, 2008
9
comments
Snapshots frá næturvöktunum
Sam í stuði. Það var einhver sem ákvað að febrúar skyldi vera "intern goatee month" þannig nú skarta allir drengirnir snyrtilegu "geitaskeggi". Stelpunum var boðið að vera með.... hmmmpf.
Mehrdad í símanum. Líka með geitaskegg - hans þó meira með persískum blæ, enda drengurinn frá Íran.
Clinton og Obama voru í sjónvarpinu.
...spáð í CT mynd.... Glöggir taka eftir að hér er um að ræða CT af mjaðmagrind.
Dr. V. eins og ég er gjarnan kölluð!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, February 25, 2008
1 comments
