Þegar ég kom heim af næturvaktinni í morgun beið mín fullur diskur af heimabökuðum smákökum frá nágrannakonunni (þessari sem er atvinnu-metro-driver). Heldur betur huggulegt :-)
Nagrannastemmning
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, July 30, 2007
2
comments
White Coats

Glaðbeittir ungir menn á góðri stundu!
Ég fann þessa mynd á netinu en svona líta slopparnir okkar út. Læknanemar og residentar þurfa að vera í svona stuttum sloppum en það er ekki fyrr en maður er búin að standast board prófin og hljóta nafnbótina sérfræðingur að manni leyfist ganga um í "alvöru" white coat. Fyrst fannst mér þetta nú frekar bjánalegt en ég er búin að sjá marga kosti við stutta sloppinn og er eiginlega komin á þá skoðun að hann sé bara miklu betri en sá síði.
- Í fyrsta lagi hentar stutti sloppurinn kvenlegum vexti mun betur en sá síði, maður fær svona "jakka"fíling. Getur jafnvel ímyndað sér að maður sé á leiðinni í kokteil... Ég er að spá í að setja tillögu í hugmyndakassann þeirra að hafa þá aðsniðna líka ;)
- Í öðru lagi eru þeir ekki að flækjast í hurðarhúnum, rúmgöflum eða borðhornum eða klemmast milli lyftuhurða en ég upplifði endurtekið með síðu Landsa-sloppana.
- Þeir eru með 4 vösum (þ.m.t. einum innaná-vasa!) -Aha!
- Þeir flaksast ekki eins mikið ef það er rok (eða ef maður er á svo mikilli hraðferð að það er eins og það sé rok).
- Svo eru þeir bara hip og kúl.
Veit ekki hvort fólk er sammála mér samt....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, July 19, 2007
4
comments
Camry 2007

Ég er frá og með í dag orðinn stoltur eigandi þessa fallega silfurlitaða Toyota Camry!!
Eftir nokkrar spekúlationir af minni hálfu ákvað ég að skella mér á einn slíkan. Það sem spilaði m.a. sterklega inn í þessa ákvörðun var gríðarlegur sjarmi sölumannsins Alexey (ættaður frá Kasakstan!!). Alexey fór með mig í 4 bíltúra þar sem keyrt var um í Boston-umferðinni (sem er alræmd), keyrt 4 sinnum yfir lestarteina og einu sinni á móti umferð. Ahemm, það var víst ég samt sem var undir stýri. Síðan sýndi hann mér digital myndir af heimaborg sinni Alma-Ada og raulaði fyrir mig kasaktan-ískan lagstúf. Eftir þetta var ekki annað hægt en að fjárfesta í þessum svakalega fína bíl. Hann er m.a.s. með topplúgu.
Ætli það verði svo ekki Sigurdís sem fær heiðurinn af fyrsta bíltúrnum en hún er að koma í heimsókn eftir viku! Hún fær líka heiðurinn af því að vera fyrsti gesturinn minn. Go Sigurdís!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, July 13, 2007
11
comments
Ég er í New York!! Jííííí, geðveikt gaman. Við Hrafn og Stína erum búin að labba út um alla borg í dag, fórum m.a. yfir Brooklyn brúna og skoðuðum nýjasta listamannahverfið í Brooklyn sem heitir því frumlega nafni Dumbo. Það var mjög funky hverfi, fundum m.a. annars 1000 manna biðröð around the block - kom í ljós að fólkið var að bíða eftir að kaupa miða á japanska rokktónleika með 77 trommusettum.
Erum svo að fara á Buddabar í kvöld http://www.buddhabarnyc.com/
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, July 07, 2007
1 comments
Maður gerir bara eitthvað eitt....
Ég kem yfirleitt heim úr vinnunni milli 6 og 7. Samkvæmt vísindalegum útreikningum á maður að sofa í átta tíma til vera hress og sprækur að morgni. Þar sem ég vakna kl.5 á hverjum morgni þýðir það að til að framfylgja þessari ágætu reglu þarf ég að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Það gefur mér 2-3 tíma til að gera eitthvað annað áður ég skríð í bólið. Ég er búin að sjá það út að maður gerir bara eitthvað eitt!
Hvort sem það er að fara í ræktina (www.fitcorp.com), út að hlaupa, í bíó, elda mat, fara í súpermarketinn (ég er alltaf svo lengi þar - finnst svo gaman að browsa um búðina) eða fá sér bjór með kirurgunum (alltaf á fimmtudögum á spítalabarnum) þá gerir maður bara eitthvað eitt eigi tímamörkin að standa. Þrátt fyrir það tekst manni SAMT yfirleitt ekki að standast tímamörkin - a.m.k. ekki hingað til. Besti tíminn minn frá upphafi er að vera sofnuð kl. 22.15!
Með gríðarlegri útsjónarsemi tókst mér í kvöld að sameina 2 viðburði í einn! Ég þurfti nefnilega nauðsynlega að fara í búð og þurfti einnig nauðsynlega að hreyfa mig eitthvað. Eftir miklar spekúlasjónir ákvað ég að:
- Keyra á bílnum að bílastæðinu á Trader Joe´s (sem er langbesti súpermarkaðurinn - efni í heilt blogg). 19.35,
- Lagði þar laumulega í eitt hornið (það er nefnilega bara 1 klst. hámarkstími á bílastæðinu). 19.45
- Joggaði um Brookline og Cambridge og sneri aftur að TJ. 20.30
- Verslaði (á stuttbuxunum - góður fílíngur!) á 45 mín (ég veit, ég veit, óþarfa mínútum kannski eytt þar). 21.15
- Kom heim 21.25 - rétt yfir tímamörkum.
- Skemmdi síðan allt saman með því að fara á netið..... og skrifa þessi töluðu orð. Nú er kl. 22.15. Mun sem sagt ekki slá eigið met í kvöld.
Annars var næturvaktin á laugardagskvöldið algjört djók. Ég var á vakt fyrir the Cutler Service (sem er teymið mitt - efri gastro). Það er sambærilegt við að vera á vakt fyrir eina deild heima, t.d. á vakt fyrir krabbameinsdeildina eingöngu. Bráðalæknarnir sjá um allar innlagnir sem koma inn um bráðamóttökuna þannig maður er beinlínis bara á húsvakt fyrir sitt teymi. Ég fékk 4 píp fyrir kl.4 um morguninn (vaktin byrjaði 6 pm), svaf samfleytt í 4 tíma og notaði síðan síðustu 2 tímana af þessari 12 tíma vakt til að undirbúa morgunstofuganginn sem hefst alltaf á slaginu 6. Næs! Auk þess sjá hjúkkurnar um allar blóðræktanir, beiðnaútfyllingar, EKG og þvíumlíkt. Þetta er víst samt ekki alveg svona fínt á virkum dögum skilst mér...
Og já, ég er fara til NY um næstu helgi að hitta Hrafn og Stínu. Jei :)
Og já, eitt annað. Það er 4.júlí á morgun - Þjóðhátíðardagurinn sjálfur. Það verður spennadi að sjá hvort cafeterian bjóði upp á kræsingar á tyllidögum, líkt og Landsinn. Laxarúlla og ratatoille.. eða kannski ekki.
Nú er kl.22.30 - uss suss uss!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, July 04, 2007
3
comments