
Og enn kyngir niður. Allir úti að moka eða ýta nágrönnunum úr bílastæðum, Ótrúlega kósý stemmning.
gestagangur
Mamma og Álfrún voru her í 5 daga og það var rosalega fínt. Þær fóru heim á miðvikudaginn og Steinunn var svo góð að verma sætin í vélinnni fyrir þær það kvöld. Við Steinunn erum svo búnar að vera í miklu stuði, fara á svala staði, drekka athyglisverða drykki, dansa við hressilega stuðtónlist og kynnast alls kyns athyglisverðu fólki, þ.a.m. dúnúlpu gaurnum sem þekkti Thor Thors í den..... fer ekki nánar út í það. Á morgun er svo Hub Gun keppnin þar sem ég mun keppa við allls kyns aðra residenta af Boston-svæðinu í laparoscopiu tækni. já já.
Kveðja,
Roxbury Olsó
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, December 08, 2007
4
comments
Gafumenn
Fyrirlesturinn á Grand Rounds þessa vikuna var um lifrarígræðslur og fyrirlesarinn var enginn annar en Thomas Starzl sem hefur verið nefndur "the father of modern transplantation." Hann gerði m.a. fyrstu lifrarígræðslurnar (þ.e. fyrstu sem sjúklingurinn lifði af!) og er frægur fyrir að þróa cyclosporin og tacrolimus. Ótrúlega áhugaverður fyrirlestur.
Með honum í för var Joseph E. Murray sem hlaut Nóbelsverðlaunin 1990 í Læknisfræði fyrir vinnu sína við líffæra- og frumu ígræðslur.
Þeir töluðu fyrir fullum sal. Þetta var ótrúlega magnað - ég svitnaði alveg undan þeim svakalegu gáfum sem svifu yfir salnum.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, December 01, 2007
0
comments
Af Thanksgiving, meiri virosu og svæsinni mixturu
Síðustu 2 vikur er ég búin að vera að rotera á colo-rectal (ristils-teyminu!?). Það er frekar rólegt þar þessa dagana, datt allt í dúnalogn í kringum Thanksgiving í síðustu viku og er svona smá saman að lifna við aftur. Við "intern-arnir" fáum ekki mikið að fara á skurðstofuna á þessari rotation ;-( ...þar sem aðgerðirnar eru flestar í stærri kantinum og fyrir ofan okkar level. Við erum þó stundum lánuð yfir á brjóstakirurgiuna sem er fínt. Ég held ég sé búin að gera a.m.k. 40-50 brjósta-case síðan ég byrjaði þannig maður er að verða nokkuð sjóaður á þeim slóðum.
Thanksgiving var í síðustu viku. Það er ótrúlega kósý hátíð. Flestir reyna að fara heim til sín og vera með familíunni, borða góðan mat og hafa það huggó. Ég var svo heppin að vera boðin í 2 matarboð!! Ég byrjaði heima hjá Alexis & Niko sem voru með 5 rétta matseðil (!) og fór svo yfir til Margrétar í second portions... Ég fékk svo óvæntan frí úr vinnunni daginn eftir (föstudagur) sem var mjög svo óvæntur en ánægjulegur bónus- ekki veitti af smá hvíld eftir öll veisluföngin. Það var svo enginn griður gefinn á laugardeginum, heldur haldið í afganga til Alexis... margra klukkustunda hádegisboð - sem stóð alveg þangað til ég þurfti að mæta á næturvakt.
Í millitíðinni hafði ég náð að koma mér upp einni svæsinni virosu (glöggir lesendur muna líklegast að það eru ekki nema 2-3 mánuðir frá svæsnustu virosu allra tíma) þannig ég mætti (aftur) raddlaus með snýtuklútana á spítalann. Á spítalanum var mér sagt að fara heim að hvíla mig og bent á að koma við í CVS (apótekinu) og kaupa mér ákveðna hóstamixtúru sem átti að vera allra meina bót. Samviskusamlega gerði ég það og fékk mér vænan sjúss um kvöldið áður en ég skreið upp í rúm í ullarsokkunum. Vissi síðan ekki af mér fyrr en vekjarinn var búinn að hringja vel og lengi morguninn eftir, ég stökk á fætur - alltof sein í vinnuna, en þá vildi ekki betur til en að ég gekk á vegginn(!) já, í alvöru. Allt herbergið snérist í nokkra hringi en einhvern veginn náði ég að koma mér af stað í vinnuna en það tók mig ca. 4 tíma að ná almennilega áttum - ég hef ekki lagt í að lesa innihaldslýsinguna á þessari göróttu mixtúru en hef ekki fengið mér annan sjúss...
Í næstu viku á ég svo 9 daga FRÍ!! Mamma og Álfrún systir eru að koma á föstudaginn og ég hlakka mikið til að sjá þær. Steinunn vermir svo Icelandair-sætin fyrir þær á miðvikudeginum þegar þær fara heim með sömu vél en við tekur ekta góður vinkonuhittingur í aðra 5 daga. Aldeilis ekki slæmur tími framundan! Hér er annars allt að verða rosalega jólalegt, eina sem er algjörlega ekki að gera sig er 17 stiga hitinn sem var í dag - mjöööög furðulegt, sérstaklega eftir frostið í síðustu viku. Annars fer víst kólnandi aftur á næstu dögum þannig ég mæli með að pakka húfu og vettlingum fyrir ykkur Mamms, Ára og Steinka!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, November 28, 2007
5
comments
Brusi gamli

For ovaent a tonleika med Bruce Springsteen a sunnudagskvoldid i The Garden. Thad var bara rosastud, Brusi i banastudi a svidinu og fullt af ameriskum kvennsum a oraedum aldri sem donsudu a golfinu med bjor i annarri... og svo eg :)
Hann var ad kynna nyja diskinn sinn (sem eg veit ekki hvad heitir - svo ovaent var thessi tonleikaferd!) sem virdist bara vera nokkud godur. Maeli med tonleikum i Gardinum fyrir tha sem eiga leid um Boston a naestunni, svaka finn tonleikastadur.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, November 20, 2007
0
comments
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, November 17, 2007
6
comments
11.11.07
Eftir ekki svo margar æfingar, 2 helgarvaktir og eina San Francisco ferð síðustu 3 vikur tók ég þátt í the Sea Coast Halfmarathon í dag. Við Margrét lögðum af stað klukkan 7 í morgun (hvað leggur maður ekki á sig... og á sunnudagsmorgni!) og keyrðum norður til Portsmouth, New Hamshire þar sem hlaupið var.
Hlaupið byrjaði kl.9 og fólk hafði til kl.12 að komast á leiðarenda. Þetta var ótrúlega falleg leið, eftir ströndinni, inni í skógi og milli lítilla bæja og ekki var verra hvað veðrið var fallegt, sól og heiðskýrt og hitinn rétt ofan við frostmark. Á 10. mílu var maður nú orðinn vel þreyttur (enda aldrei hlaupið lengra en 8,5 mílur á ævi minni) en þetta hafðist og maður kom þreyttur en sæll í mark á undir 2,5 tímum sem var markmiðið! Ég reyndi að miða mig ekki við 74 ára konuna sem fór þetta á 2.09, hvað þá 65 ára konuna sem fór þetta á 1.48...
Hálfmaraþon er 13 mílur = 21 km. Ótrúlegt hvað 13 mílur hljóma mun mun betur en 21 km. Besti parturinn var samt að það var boðið upp á nudd eftir hlaupið - alvöru nudd - í stóru herbergi þar sem voru 10 nuddbekkir, allir sem vildu fengu ca.15 mín. nudd. Það var æði!!
Þá er maður búinn að prófa þetta, er nú samt ekki viss um að leggi nokkurn tímann í maraþon - ef ég geri það, þá verður það gert í amerískum mílum!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, November 12, 2007
5
comments
Booooo!

Í gær var Halloween. Ég er akkúrat á næturvöktum þessa viku þannig að ég missti því miður af því af aðal Trick´n´treat stemmningunni í bænum en aðalfjörið hefst eftir myrkur. Ég kíkti samt við hjá Elfu og Gunnari áður en ég fór í vinnuna en þau voru að undirbúa Halloween partý, voru búin að skera út þvílíkt flott grasker og útbúa þvílíkar kræsingar. Það var dáldið fríkuð stemmning á spítalanum, hjúkkurnar voru margar í svona Halloween scrub - með myndum af graskerjum, nornum og svörtum köttum og einstaka bráðamóttökuhjúkka var með svarta Dracula hárkollu..... athyglisvert!
Annars er þetta helst að frétta:
* Þvagfæraskurðdeildin er alveg að gera sig. Ég er orðin fullnuma í þvagleggjaísetningum og blöðruhálskirtilsþreifingum! Ég er eina stelpan í teyminu og það er farið með mig alveg eins og prinsessu :) Á nóttunni er ég líka á vakt fyrir lýtateymið og háls, nef og eyrna... jájá, það er ágætt. Lærði til dæmis allt um maxillary sinus brot í nótt þegar ungur maður fannst ráfandi um hótel í Suður-Boston, illa útleikinn með umrætt andlitsbeinabrot. Hann talaði bara útlensku, var í benzó-rússi og gat ekki sagt okkur hvað kom fyrir. Kannski var hann bara í Halloween-partýi!
*Jóhann Páll, tilvonandi þvagfæraskurðlæknir, og Álfheiður voru í Boston um síðustu helgi og það var rosagaman að hitta þau. Ég dró Jóhann Pál með mér á stofugang á sunnudeginum með urologiu-teyminu. Ég held hann hafi sannfærst um ágæti Boston og Brigham þvagfæraskurðdeildarinnar. Það var samt akkúrat rosakalt um helgina þannig þau fengu aðeins ranga mynd af haustveðrinu hér....
*Á morgun er ég svo að fara til San Francisco og verð yfir helgina. Fæ frí í vinnunni til að fara á ASN (American Soc. of Nephrology) og kynna posterinn minn. Þetta er í 3. sinn sem ég fer á ASN með nýrnalæknunum.... alltaf í nóvemver, á Vesturströnd BNA - mér finnst þetta bara vera orðin fín hefð og stefni að því að halda áfram að mæta á nýrnaþing, a.m.k. þegar þau eru haldin í Californiu. Ég mun finna einhverja leið til að vera með poster... Hvernig hljóma t.d. svæfingar og nýrna-gjörgæsla (sbr. hjartagjörgæsla, skurðgjörgæsla).
Var svo mjög glöð þegar Hotwire.com útdeildi mér þessu svakaflotta hóteli, Westin á miðju Union Square (http://www.westinstfrancis.com) en ég er alltaf mjög svag fyrir fancy hótelum.
*Hef nú ekki spilað tennis síðan tennisnámskeiðinu lauk... en er að fara í þetta hálfmaraþon eftir rúma viku, ahemm. Það var orðið "uppselt" í hlaupið en svo losnaði eitt númer fyrir viku síðan þannig það var skorað á mig á að vera með. Þar sem ég er ekki að vinna þessa helgi ákvað ég að skella mér með - sunnudagsbíltúr til New Hampshire hljómaði bara vel. Er nú samt komin með smá bakþanka þar sem ekki hefur gefist tími til strangra æfinga... stefni nú bara að því að komast lifandi í mark :) Fyrst að Sigfús gat þetta um árið....
*Magga Rúna vinkona var svo að eignast sitt annað barn - lítinn ljóshærðan stráksa, mikinn myndarpilt af myndunum að dæma. Hlakka mikið til að sjá hann næst þegar ég kem heim.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, November 01, 2007
2
comments
Hauststemmning
Í dag bakaði ég pumpkin-brauð! Það var rosagott með smá sírópi.....
Það er að byrja að hausta, laufin að byrja að breyta um lit og maður farinn að þurfa að vera í peysu á leiðinni í vinnuna á morgnanna.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, October 08, 2007
3
comments
Af frii og fleiru
"
Ég smellti inn nokkrum myndum frá Nantucket en ég og Sigrún Ólafs ákváðum að kanna sumarleyfiseyjuna frægu í fríinu mínu um daginn. Nantucket er skemmtilegur staður, sérstaklega í september. Þetta var hin fullkomna afslöppun. Flestir túristarnir farnir (bara einn og einn á stangli eins og við) en veðrið ennþá rosagott. Við leigðum okkur hjól og hjóluðum þvert yfir eyjuna, sóluðum okkur á ströndinni eða á þakgarðinum á hótelinu okkar. Hápunktur ferðarinnar var samt dinnerinn á www.straightwharfrestaurant.com á laugardagskvöldinu!! Gef staðnum 5 stjörnur! Á Nantucket á fína og fræga fólkið sumarhús. Allt yfirbragð staðarins bar þess merki, t.d. voru flestir veitingastaðirnir með dress code. Samt ekki svona venjulegt dress code heldur voru þeir flokkaðir eftir mismundandi sumarleyfisklæðnaði. Smart casual, resort casual, beach casual... Mér fannst ég dáldið vera komin í miðjan þátt af "the O.C." :)
Þetta var æðisleg ferð og það er algjörlega á dagskránni að fara þarna aftur í frí og vera þá í lengri tíma. Takk.
Síðan tók vinnan við aftur. Ég byrjaði á nýrri rotation eftir fríið, á krabbameins kirurgiu teymi. Þetta er alveg rosalega áhugaverð rotation en að sama skapi alveg ROSALEGA busy (sem skýrir verulega lágdeygð á þessari síðu undanfarið). Maður er að sjá alveg ótrúlegustu tilfelli, ólíklegustu aðgerðir og mjög mikið af sjaldgæfum hlutum sem ég man varla eftir að hafa heyrt um áður. Sem sagt alveg rosalega lærdómsrík rotation, og ekki spillir fyrir að ég fæ að fara á skurðstofuna næstum daglega. Hef aðallega verið með brjósta kirurgunum síðustu vikuna sem hefur verið alveg súper! Einn þeirra gaf mér 2 Red Sox miða í síðustu viku - en seasonið er alveg að klárast og spennan í hámarki þar sem Red Sox eru á toppnum akkúrat núna (já, ég er farin að fylgjast með base ball....). Ég komst samt akkúrat ekki þetta kvöld sem var verulega súrt :(
Fór svo í gærkvöldi eftir vinnu með Gitu, "my fellow intern" á einn af Brigham börunum - the Squaling Pig (þar sem sögur segja að helstu ákvarðanir á spítalanum séu teknar), og við horfðum á leikinn (Red Sox vs. LA Angels) á risatjaldi og drukkum bjór - svona er maður nú að verða mikill Ameríkani, hahaha.
Um næstu helgi ætlum við Margrét svo að taka þátt í þessu: http://www.greaturbanrace.com
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, October 06, 2007
0
comments
BBQ dagurinn mikli

Fyrsti frídagurinn minn!!! Verð í fríi alveg þangað til á mánudaginn eftir rúma viku. Fyrsti frídagurinn var helgaður grillveislum. Fyrra BBQ dagsins var haldið í litlum garði í South End. Alexis og Nico (Amerískt-franskt par) hóuðu saman fólki til að kveðja Ritu og Greg (Amerískt - Portugalskt par) sem eru að flytja til Portugal. Alexis og Nico eru snilldarkokkar, Nico var grillmeister og það var boðið upp á grilluð svínarif, svínaöxl (pork shoulder!-furðulegur réttur) og kjúkling sem var heilsteiktur á grillinu ásamt endalaust miklu meðlæti. Frönsk rauðvín og þýskur hveitibjór var drukkinn með og síðan 4 tegundir af kökum í desert. Eftir 4ra klukkustunda veisluhöld í Bradford Street Park hjólaði ég af stað (slightly tipsy) í næstu veislu...
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, September 17, 2007
6
comments

Seinni grillveisla dagsins var haldin hjá grillmeister Siva Raja - hinum indversk ættaða 4.árs resident. Eins og sjá má stóð hann sig afar vel við grillið. Verst hvað maður var saddur eftir veislu nr.1. Lét mig samt hafa það að smakka á einni kryddpylsu og smá kjúklingabita marineruðum í bjór... og drakk Sam Adams með. Þetta var BBQ fyrir alla skurðlækna residentana (spítalinn borgaði...) og það var bara fín stemmning. Eftir nokkra bjóra var ákveðið að hertaka Little League baseball völlinn sem er við hliðina á húsinu hans Siva og spila softball (alveg eins og baseball nema bara með stærri bolta). Það var þvílíkt gaman, kannski maður leggi tennisinn á hilluna og fari að æfa baseball.... Það var góð stemmning fram eftir kvöldi, hjólaði síðan heim svo södd að ég komst ekki einu sinni upp brekkuna að húsinu mínu. Held ég þurfi ekki að borða næstu 2 dagana.... Fleiri myndir á Flickr.
Í fyrramálið er ég svo að fara norður til Maine með Elfu þar sem við ætlum að gista eina nótt á hóteli við ströndina, sóla okkur, borða humar og heimsækja Bush en hann á einmitt sumarhús í Kennebunkport þar sem við ætlum að gista.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, September 17, 2007
1 comments
Epla season

Nú er komið epla season. Hér má marka árstímann eftir því hvaða avextir/grænmeti eru í hávegum höfð í matvörubúðunum. Núna gengur allt út á epli. Það er eplatínsluferð einmitt skipulögð eftir 2 vikur á spítalanum á epla-plantekru í nágrenninu. Ég fór í Stop and Shop (hverfis-matvörubúðin mín) í dag og þar voru epli út um allt, rauð epli seld í pokavís, gala epli á 1.29 $ pundið, græn lífræn á smakk-básnum og kona íklædd sveitakonu-búningi að dreifa ókeypis karamelluhúðuðum eplum með hnetukurli. Hef hingað til verið mjög skeptisk á karamelluhúðuð epli en þau reyndust hið mesta hnossgæti!! Fékk líka uppskrift frá búsældarlegu eplakonunni - það verður sem sagt boðið upp á karamelluepli um helgina á mínu heimili!
Þegar ég kom hingað í júní var kirsuberja og jarðaberjatími. Í júlí og ágúst var ferskju- og plómutími og núna er kominn eplatími. Var einmitt líka að uppgötva heitan eplacider með smá dreitil af chai út í..... Mmmmmmm. Svo virðist ferskur aspas líka vera málið í búðunum um þessar mundir. Keypti einmitt gott búnt til að skella á grillið á morgun.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, September 13, 2007
2
comments
Hermannaveiki
Thennan manudinn er eg buin ad vera roterandi (enska: floating -> eg: Fleytingur). Thad tydir ad eg er ad leysa af folk sem er i frii og skipti thess vegna um deild i hverri viku. Thetta er sidasta vikan min sem Fleytingur og var eg svo heppin ad vera send a Hermannaspitalann i Vestur Roxbury, http://www.med.va.gov, sem er athyglisverd upplifun!
Thetta er mjog serstakur stadur. Sjuklingarnir eru allir tengdir hernum a einhvern hatt. Flestir hafa barist a einhverjum blodugum vigstodvum, hvort sem tad var i Vietnam, Seinni heimstyrjoldinni eda jafnvel Irak. Their eru oft miklir sjuklingar, auk thess sem their glima margir hverjir vid afengissyki eda eiturlyfjavandamal, langflestir hafa gridarmikla reykingasogu, margir tjast af PTSD (afallastreituroskun?!) eda odrum gedvandamalum og mjog margir theirra bua beinlinis a gotunni. Tala nu ekki um sprenjuflisar, gomul skotsar o.s.frv. Thannig thessi sjuklingahopur er verulega frabrugdinn theim sem madur ser venjulega. Flestar hjukkurnar eru reffilegir karlmenn med tattoo a upphandleggjunum. Yfirlaeknirinn er teinrettur i baki, talar med einhverjum oskilgreindum hreim og vill ad vid seum i sidum sloppum (ekkert laeknanema-look her!) og vaktherbergin eru i svona heimavistarstil, 6 kojur i hverju herbergi.
Eg verd her bara ut thessa viku en thratt fyrir stutt stopp var eg tekin i fullt Federal background check i morgun af VA logreglunni sem er med baekistodvar i kjallara spitalans, fingraforin min voru skonnud inn i tolvu og eg fae ID badge a morgun ef ekkert iskyggilegt ur fortid minni dukkar upp i nott. Their treystu mer nu samt til ad vera a solarhringsvaktinni i dag/kvold/nott...
Eg for annars med henni Elfu i gott gard-party i laugardagskvoldid hja Sophie og Jeremy sem eru Frakkar sem hafa buid her i 2 ar. Hitti thar alveg fullt af skemmtilegu folki og aefdi fronskuna yfir aldeilis gourmet fronskum smarettum, mousse de chocolat et vin rouge. Storfint :) Thratt fyrir smavegis thynnko-stemmningu a sunnudeginum tokst Margreti nu samt ad draga mig med 5.8 milur.... veit nu ekki hvernig hun for ad tvi en thad hafdist nu samt! Svo byrjar tennis-inn annad kvold, spenno spenno!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, September 10, 2007
1 comments
Hlaupamania
Það var verið að mana mig í að taka þátt í hálfmaraþoni 11.nóvember. Það ríkir algjör hlaupamanía hér í Boston, alls staðar má sjá fólk joggandi um, hvaða tíma sólarhringsins sem er.
Margrét, stelpa sem býr hér í Boston, og nokkrir vinir hennar ætla að hlaupa hálfmaraþon sem er í New Hampshire i nóv. Hljómar alveg frábærlega, það er hlaupið í gegnum nokkra litla bæi og eftir strandlengjunni í New Hamshire.
Þannig að eftir vinnu í dag, reimaði ég á mig hlaupaskóna og keyrði upp í MIT þar sem ég hitti Möggu. Hún var búin senda mér eitthvað svakafínt hlaupaprógramm sem hún fer eftir. Við hlupum síðan góðan hring meðfram Charles River, sem var alveg frábært í ljósaskiptunum. 3.8 mílur = 6.1 km. Það er alveg 1/3 af hálfu maraþoni - ekki slæmt. Við ætlum aftur á fimmtudag!!
Ég efast nú samt um að ég geti tekið þátt í hálfmaraþoninu. Í fyrsta lagi reikna ég með að vera á vakt þessa helgi (þar sem ég verð vonandi í San Fran helgina á undan með abstractinn minn) og í öðru lagi er ég ekki viss um að ég komist út að hlaupa 4x í viku eins og hlaupaprógrammið góða segir fyrir um sökum anna á spítalanum. Já, og auk þess var ég að skrá mig á tennisnámskeið.
Alla vegna, það má reyna...
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, September 05, 2007
5
comments
Atttsjjuuuuu!
Svaesnasta kvef sidarri ara gerdi vart vid sig i vikunni. Ogrynnin oll af snytipappir hafa verid nytt, raddleysi, rautt nef, og strepsils eru mal malanna. Versti dagurinn var samt a fimmtudaginn tegar eg var sett i 5 tima adgerd ...enginn snytipappir tar, virkilega grimmilegt.
Eg hef oft spad i tad hvernig skurdlaeknar fara ad tvi ad standa i marga tima vid skurdarbordid an tess ad borda, drekka, pissa... en aldrei spad i hvernig teir geta yfirhofud andad bakvid maskann med stiflad nef, hvad tha hvad teir gera tegar akut snyti-situation kemur upp. Mun ekki fara nanar ut i personulegar reynslusogur af tessu tagi.
Eg er a helgarvaktinni tessa helgi. Eins og vikan var erfid ta virdist tetta aetla ad vera hin ljufasta helgi. Eg var med 22 sjuklinga a teyminu minu a fimmtudag en eftir ad hafa setid sveitt vid utskriftir sidustu daga er eg nu med 3 sjuklinga (utskyrir hvers vegna thetta er nu skrifad a tolvunni inni a setustofu deildarlaekna (the residents lounge) - a vinnutima!!).
I gaerkvoldi for eg a frabaeran indverskan stad i Cambridge med Judy og Clemenz, krokkum her a spitalanum. Tau eru svaka hress, marathonhlauparar fra San Fransisko. Thetta var minnsti veitingastadur sem eg hef komid inn a, eg var afgreidd af manni med staersta turban sem eg hef sed en fekk besta indverska mat sem eg hef fengid i lengri tima - a 8 dollara.
Nu er eg ad bida eftir ad naeturvaktin komi ad leysa mig af svo eg komist i grillveislu hja Elfu og Gunnari, hinum mestu snilldarkokkum. Hann atti ad vera maettur fyrir halftima, hmmmm, ekki nogu gott. Eg aetla ad fara ad kanna malid....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, September 01, 2007
2
comments
Merkilegt hvad menn eru likir svinum, eda svin lik monnum
Á laugardaginn fór ég til Connecticut. Hossaðist i 3 tíma í rútu (var komin langleiðina til New York) fram og tilbaka með ca. 15 krökkum sem eru með mér í prógramminu. U.S. Surgical, sem er fyrirtæki sem framleiðir svona aðgerðar-græjur, bauð okkur í heimsókn á dýra-labbið sitt til að æfa okkur á svínum! Þetta var mjög vel heppnað, reyndar dáldið spes að kíkja undir græna dúkinn og sjá bleika svínaleggi og hófa blasa við...
Við spreyttum okkur á hinum ýmsu aðgerðum. Tókum úr svíninu gallblöðruna, miltað, gerðum við kviðslit og fjarlægðum svo ímyndað æxli úr smáþörmunum, allt með nýjasta gadget-inu frá U.S. Surgical. Ég fann nú aðeins til með þeim, verð að viðurkenna það. Það verður a.m.k. smá bið þar til ég skelli svínalærum á grillið.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, August 28, 2007
4
comments
Alveg hreint agaetis helgi


Meðan fellibylurinn Dean gerir allt vitlaust á Kyrrahafseyjum þá var hið fallegasta sumarkvöld við Trönu-strönd (Crane Beach) í kvöld.
Eg for og ætlaði að tjilla aðeins eftir næturvaktina og ná mér í smá síðsumarbrúnku en einhvers staðar á leiðinni tók ég vitlausa beygju.... og það tók mig rúma 2 tíma að finna ströndina (sem er í svona 45 mín fjarlægð frá Boston). Ég náði samt smá kvöldsól og góðri stemmningu á ströndini. Komst samt að því að ég þarf að bæta mig verulega í strandar-útbúnaði fyrir næsta sumar. Samanborið við atvinnu-strandfólkið sem var þarna þá átti ég engan séns. Þeir hörðustu voru með sérútbúin lítil strandtjöld, heilu BBQ-settin fyrir "snack-on-the-beach", iPod hátalara og ofurstór strandleikföng. Á meðan sat ég á bleiku handklæði, með sóláburð í annarri (sem þurfti nú varla í kvöldsólinni) og Harry Potter í hinni. Minimalist stemmning.
Það var samt frábært að fara aðeins á ströndina, ég fann líka nokkra skemmtilega göngustíga um svæðið en það er náttúruverndarsvæði allt um kring, mikið fuglalíf og ábyggilega fullt af alls konar öðrum minni dýrum sem ég vildi nú sem minnst vita af...
Á föstudagskvöldið kíkti ég með Margréti og Elfu á djassbar þar sem við fengum okkur nokkra martinis og skáluðum fyrir Margréti sem varð þrítug á laugardaginn. Á laugardeginum fór ég í smá skoðunarferð um Jamaica Plain sem er skemmtilegt hverfi rétt hjá þar sem ég bý, áður en ég þurfti að mæta á næturvaktina... Sem sagt alveg hreint ágætis helgi.
Já, og svo frétti ég í vikunni að abstractinn minn á ASN í San Fran í nóv. var samþykktur, gaman gaman. Nú er bara að sjá hvort Brighamfólkið vill leyfa mér að fá frí til að fara... það er ekkert til sem heitir 7 daga námsleyfi/ári hér!
*Magga Rúna* Til hamingju með afmælið... ég var að reyna að senda þér myndir af ströndinni í dag með nýja iPhone-inum en þær vildu ekki sendast... þannig ég verð að láta svona cyberspace kveðjur duga :)
*Sigrún* Til hamingju með maraþonið. Þú ert algjör snillingur, ég vissi að þú gætir þetta. Kannski ég reyni að taka 10 K í april... hmmm, þeir bjóða kannski ekki upp á neitt skemmtiskokk hér ;)
*Álfrún* Til hamingju með að vera loksins flutt í nýju íbúðina. Þú VERÐUR að senda mér myndir. Ég er geðveikt spennt að sjá...
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, August 20, 2007
2
comments
Scrubs

Spítalaföt. Það er mjög merkilegt hvað Ameríkanar elska scrub-inn sinn. Fyrir og eftir vinnu má sjá aragrúa af fólki út um allan bæ í spítalafötum. Þeir klæða sig í scrubinn á morgnanna, eru í honum allan daginn í vinnunni og fara svo í bæinn, í ræktina, að versla, í bíó, á djammið.... í scrubnum. Ég hitti vin minn um daginn í brunch á sunnudegi - hann var á bakvakt (home call) frá spítalanum en ákvað að mæta í scrubnum á Newbury Street í brunchinn, bara svona ef hann yrði nú kallaður inn...
Þetta er sem sagt scrub - en ekki það nýjasta af Newbury, fyrir þá sem voru ekki alveg vissir ;)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, August 17, 2007
5
comments

Í dag er fimmtudagur. Á fimmtudögum er alltaf hægt að stóla á Mission Bar. Þá er bjórkvöld hjá kirurgiu residentunum og allir sem geta koma við á Mission eftir vinnu. Að sjálfsögðu í scrubnum, nema hvað.
Þessi kvöld eru yfirleitt mjög skemmtileg, fólk að droppa inn allt kvöldið, sumir stoppa stutt og sumir lengur. Barinn er beint á móti spítalanum þannig það er eiginlega ekki annað hægt en að kíkja aðeins við á leiðinni heim.
Fyrsta Mission-kvöldið í sumar, þá hafði ég haft mikið fyrir því að taka með mér aukaföt í vinnuna til að skipta áður en maður lét sjá sig á barnum. Þegar ég mætti svo á svæðið þá var ég EINA manneskjan i venjulegum fötum.... allir hinir voru í SCRUBS!!! Ótrúlegt! Og það sem var eiginlega enn ótrúlegra var að allir hinir ráku upp stór augu og spurðu hvort ég hefði verið einhvers staðar í mikilvægum erindagjörðum fyrst ég var "klædd"!
...síðan þá hef ég bara eins og allir hinir, líka mætt í scrubnum á barinn.....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, August 17, 2007
1 comments
Aksjon a skurdstofunni.
Það er helst í fréttum að ég tók 4 botnlanga síðustu nótt, hvorki meira né minna! Hver hefði nú trúað því.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, August 06, 2007
8
comments
Morgun andakt
Einn besti timi dagsins er stundin sem tad tekur mig ad keyra i vinnuna - ELDSNEMMA -a nyja Camry-num minum. Ó já.
Síðustu 3 vikur er ég búin að vera á rotation á South Shore Hospital sem er í Weymouth, ca. 20 mílur sunnan við Boston. Það tekur um 25 mínútur að keyra þangað á morgnanna (...en klukkutíma á leiðinni heim - VERSTI tími dagsins..í traffikinni og hitanum, ÚFFFF).
Áður en ég legg í hann, vel ég vandlega einhvern einn geisladisk úr hillunni til að spila á leiðinni. Helst einhvern gamlan og góðan sem ég hef ekki hlustað á lengi. Síðan þeysi ég eftir hraðbrautinni, með músikina á hæsta og kemst í geðveikt stuð fyrir daginn. Öll umferðarljósin blikka gulu á þessum tíma sólarhringsins (sem er æði! - engin rauð ljós), alveg passlegur hiti úti, eldrauð sólarupprás yfir Cape Cod og næstum engir bílar á Highway I-93. ...og svöl músík á hæsta. Maður kemst í þvílíkt gott skap!
Það er samt dáldið merkilegt hvernig tónlistarsmekkurinn breytist a) eftir því hversu mörgum tímum maður náði í nætursvefn b) koffínmagni í blóðinu (maganum..?). Dæmi um tónlistarvalið þessa vikuna:
Mánudagur: Depeche Mode - Best of (+kaffi + 7 tíma svefn = gott stuð í bílnum)
Þriðjudagur: Elvis (-kaffi - svefn (svaf bara í 2 tíma þessa nóttina....don´t ask)). WHAAAAT - Elvis. Hvað var ég að spá - komst samt í stuð.
Miðvikudagur: The Clash - pottþéttir alltaf, þarfnast ekki skýringa.
Fimmtudagur: Best of 80´s -Megastuð. Besta bílferðin hingað til :-)
Mæli með þessu, sérlega fyrir fólk með morgun-crankness á háu stigi. Þetta er allra meina bót!!
Mæli svo með Party Like a Rock Star á heimleiðinni - fyrir reiða fólkið sem þarf útrás í traffikinni.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, August 02, 2007
3
comments
Nagrannastemmning
Þegar ég kom heim af næturvaktinni í morgun beið mín fullur diskur af heimabökuðum smákökum frá nágrannakonunni (þessari sem er atvinnu-metro-driver). Heldur betur huggulegt :-)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, July 30, 2007
2
comments
White Coats

Glaðbeittir ungir menn á góðri stundu!
Ég fann þessa mynd á netinu en svona líta slopparnir okkar út. Læknanemar og residentar þurfa að vera í svona stuttum sloppum en það er ekki fyrr en maður er búin að standast board prófin og hljóta nafnbótina sérfræðingur að manni leyfist ganga um í "alvöru" white coat. Fyrst fannst mér þetta nú frekar bjánalegt en ég er búin að sjá marga kosti við stutta sloppinn og er eiginlega komin á þá skoðun að hann sé bara miklu betri en sá síði.
- Í fyrsta lagi hentar stutti sloppurinn kvenlegum vexti mun betur en sá síði, maður fær svona "jakka"fíling. Getur jafnvel ímyndað sér að maður sé á leiðinni í kokteil... Ég er að spá í að setja tillögu í hugmyndakassann þeirra að hafa þá aðsniðna líka ;)
- Í öðru lagi eru þeir ekki að flækjast í hurðarhúnum, rúmgöflum eða borðhornum eða klemmast milli lyftuhurða en ég upplifði endurtekið með síðu Landsa-sloppana.
- Þeir eru með 4 vösum (þ.m.t. einum innaná-vasa!) -Aha!
- Þeir flaksast ekki eins mikið ef það er rok (eða ef maður er á svo mikilli hraðferð að það er eins og það sé rok).
- Svo eru þeir bara hip og kúl.
Veit ekki hvort fólk er sammála mér samt....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, July 19, 2007
4
comments
Camry 2007

Ég er frá og með í dag orðinn stoltur eigandi þessa fallega silfurlitaða Toyota Camry!!
Eftir nokkrar spekúlationir af minni hálfu ákvað ég að skella mér á einn slíkan. Það sem spilaði m.a. sterklega inn í þessa ákvörðun var gríðarlegur sjarmi sölumannsins Alexey (ættaður frá Kasakstan!!). Alexey fór með mig í 4 bíltúra þar sem keyrt var um í Boston-umferðinni (sem er alræmd), keyrt 4 sinnum yfir lestarteina og einu sinni á móti umferð. Ahemm, það var víst ég samt sem var undir stýri. Síðan sýndi hann mér digital myndir af heimaborg sinni Alma-Ada og raulaði fyrir mig kasaktan-ískan lagstúf. Eftir þetta var ekki annað hægt en að fjárfesta í þessum svakalega fína bíl. Hann er m.a.s. með topplúgu.
Ætli það verði svo ekki Sigurdís sem fær heiðurinn af fyrsta bíltúrnum en hún er að koma í heimsókn eftir viku! Hún fær líka heiðurinn af því að vera fyrsti gesturinn minn. Go Sigurdís!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, July 13, 2007
11
comments
Ég er í New York!! Jííííí, geðveikt gaman. Við Hrafn og Stína erum búin að labba út um alla borg í dag, fórum m.a. yfir Brooklyn brúna og skoðuðum nýjasta listamannahverfið í Brooklyn sem heitir því frumlega nafni Dumbo. Það var mjög funky hverfi, fundum m.a. annars 1000 manna biðröð around the block - kom í ljós að fólkið var að bíða eftir að kaupa miða á japanska rokktónleika með 77 trommusettum.
Erum svo að fara á Buddabar í kvöld http://www.buddhabarnyc.com/
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, July 07, 2007
1 comments
Maður gerir bara eitthvað eitt....
Ég kem yfirleitt heim úr vinnunni milli 6 og 7. Samkvæmt vísindalegum útreikningum á maður að sofa í átta tíma til vera hress og sprækur að morgni. Þar sem ég vakna kl.5 á hverjum morgni þýðir það að til að framfylgja þessari ágætu reglu þarf ég að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Það gefur mér 2-3 tíma til að gera eitthvað annað áður ég skríð í bólið. Ég er búin að sjá það út að maður gerir bara eitthvað eitt!
Hvort sem það er að fara í ræktina (www.fitcorp.com), út að hlaupa, í bíó, elda mat, fara í súpermarketinn (ég er alltaf svo lengi þar - finnst svo gaman að browsa um búðina) eða fá sér bjór með kirurgunum (alltaf á fimmtudögum á spítalabarnum) þá gerir maður bara eitthvað eitt eigi tímamörkin að standa. Þrátt fyrir það tekst manni SAMT yfirleitt ekki að standast tímamörkin - a.m.k. ekki hingað til. Besti tíminn minn frá upphafi er að vera sofnuð kl. 22.15!
Með gríðarlegri útsjónarsemi tókst mér í kvöld að sameina 2 viðburði í einn! Ég þurfti nefnilega nauðsynlega að fara í búð og þurfti einnig nauðsynlega að hreyfa mig eitthvað. Eftir miklar spekúlasjónir ákvað ég að:
- Keyra á bílnum að bílastæðinu á Trader Joe´s (sem er langbesti súpermarkaðurinn - efni í heilt blogg). 19.35,
- Lagði þar laumulega í eitt hornið (það er nefnilega bara 1 klst. hámarkstími á bílastæðinu). 19.45
- Joggaði um Brookline og Cambridge og sneri aftur að TJ. 20.30
- Verslaði (á stuttbuxunum - góður fílíngur!) á 45 mín (ég veit, ég veit, óþarfa mínútum kannski eytt þar). 21.15
- Kom heim 21.25 - rétt yfir tímamörkum.
- Skemmdi síðan allt saman með því að fara á netið..... og skrifa þessi töluðu orð. Nú er kl. 22.15. Mun sem sagt ekki slá eigið met í kvöld.
Annars var næturvaktin á laugardagskvöldið algjört djók. Ég var á vakt fyrir the Cutler Service (sem er teymið mitt - efri gastro). Það er sambærilegt við að vera á vakt fyrir eina deild heima, t.d. á vakt fyrir krabbameinsdeildina eingöngu. Bráðalæknarnir sjá um allar innlagnir sem koma inn um bráðamóttökuna þannig maður er beinlínis bara á húsvakt fyrir sitt teymi. Ég fékk 4 píp fyrir kl.4 um morguninn (vaktin byrjaði 6 pm), svaf samfleytt í 4 tíma og notaði síðan síðustu 2 tímana af þessari 12 tíma vakt til að undirbúa morgunstofuganginn sem hefst alltaf á slaginu 6. Næs! Auk þess sjá hjúkkurnar um allar blóðræktanir, beiðnaútfyllingar, EKG og þvíumlíkt. Þetta er víst samt ekki alveg svona fínt á virkum dögum skilst mér...
Og já, ég er fara til NY um næstu helgi að hitta Hrafn og Stínu. Jei :)
Og já, eitt annað. Það er 4.júlí á morgun - Þjóðhátíðardagurinn sjálfur. Það verður spennadi að sjá hvort cafeterian bjóði upp á kræsingar á tyllidögum, líkt og Landsinn. Laxarúlla og ratatoille.. eða kannski ekki.
Nú er kl.22.30 - uss suss uss!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, July 04, 2007
3
comments
Fridagur!!!
Jei, í dag er sól og sumar og fyrsti frídagurinn minn.... ja, reyndar þarf ég að mæta á næturvaktina kl.6 sem er nú frekar súrt :(
Ég ætla að drífa mig út úr bænum og kanna nýjar slóðir. Ferðinni er heitið til Walden Pond sem er rétt utan við Boston. Þar á vera svaka fínt náttúrusvæði, hægt að jogga ef maður er þannig stemmdur (sem maður reyndar er), hægt að sóla sig á vatnsbakkanum og synda í vatninu.
Kata sem er að læra OBGYN í Denver, Colorado kom til Boston í gær. Við fórum aðeins út í gærkvöldi og fengum okkur að borða. Fundum þennan líka fína stað í South End til að snæða nautasteik og ræða málin yfir rauðvínsglasi. Hún var að klára grunnnámið í Denver og er núna í viðtölum fyrir fellowship. Þannig maður fær aftur að upplifa match-stemmningu fyrir fellowship. Dáldið spennó, kannski maður reyni við California næst.... Það er reyndar 4 ár í það hjá mér þannig maður hefur nægan tíma til að spá í því.
Best að drífa sig af stað út í góða veðrið.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, June 30, 2007
1 comments
Hitabylgja
Það er þvílík hitabylgja í gangi núna. Allir að kafna úr hita, nágrannakonan mín á fyrstu hæðinni (fyrrverandi neðanjarðarlestarbílstjóri - nú, svona illvígur miðavörður í lestunum....) fór úr bænum í dag til að flýja hitann. Hún fór á ströndina, um klukkutíma norður af Boston. Ég hitti hana við þvottavélina í kvöld og hún leiddi mig í allan sannleikann um helstu strandir í nágreninu. Hljómar aaaafar vel í hitanum, kannski maður tékki á ströndinni um næstu helgi þegar ég fæ frí frá spítalanum. Þangað til nýtur maður bara loftkælingarinnar á göngum Brigham.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, June 28, 2007
4
comments
Svona var útsýnið af Mission Hill í kvöld um áttaleytið þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Það var dinner á spítalanum fyrir alla skurðdeildarlæknana. Surf´n´Turf með risarækjum, sushi, nautasteik og fullt af rauðvíni! Þetta var haldið inni á einkabókasafni sviðstjórans, athyglisverð staðsetning. Ástæðan var að við erum núna búin með fyrstu vikuna af intern-árinu! Fín ástæða! Ætli þetta sé alltaf svona á mánudagskvöldum....
Deildarlæknarnir á kirurgiunni eru skemmtilegir. Ég er alveg búin að spotta ýmsa karaktera í hópnum sem svipar til ákveðinna kirurga heima. Það er t.d. einn Beggi (a.k.a. Rick) - hann er einn af umsjónardeildarlæknunum. Síðan er einn Jónas Magnússon junior, mjög hress gaur. Svo á árinu mínu er einn strákur sem er tvífari Halla (Sam)- alveg skuggalega líkir. Svo á ég víst einhvern tvífara á spítalanum sem einhverjir hafa spottað, ég veðja á að hún heiti Cathrine... Ég þarf að hitta hana, að minnsta kosti ef hún er jafn skemmtileg og tvífarinn minn heima á LSH :)
Fyrir áhugasama var ég svo að fá frí-skemað mitt í hendurnar. Það er bara alls ekki slæmt. Ég er með eina viku í byrjun september, eina viku í fyrri hluta desember og eina viku í apríl. Síðan er árið búið 20. júni þannig allir fá amk vikufrí áður en næsta tímabil byrjar sem er yfirleitt 1.júli. Ótrúlega fínt! Nú þarf maður bara að fara að skipuleggja. Kannski að maður fari til Cape Cod á ströndina, eða jafnvel kíkja á slóðir Kennedy á Martha´s Vineyard. Hey, eða jafnvel bara skella sér til California! Vill einhver koma með?
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, June 26, 2007
6
comments
A helgarvaktinni, nema hvad...
Fjorir dagar bunir, 361 dagur eftir. Phew!
Eg var ein af teim "heppnu" i intern hopnum sem fekk ad vera a voktum um helgina, jei. Tolf tima vaktir (alveg eins og a Landsanum!) - sem er reyndar eins og dagvinnan er, 6 am til 6 pm.
Fyrstu dagarnir eru bunir ad vera finir serstaklega tar sem eg er svo heppin ad vera med PA (physisician assistant) a minu teymi sem gerir ca. 70% af hinni mjog svo gefandi pappirsvinnu! Otrulega storkostleg uppfinning (fra sjonarholi unglaekna), en WOW, aldrei i lifinu myndi eg vilja vinna tetta starf. OMG!
Vid gongum stofugang kl.6 a morgnanna, sem tydir tad ad eg er maett i hus 1 min. i 6(sem kallast gott fyrir svona "5-min.yfir" manneskju eins og mig) - sidan er chill og morgunmatur med PA-num minum medan laeknanemarnir klara noturnar (hehe) og sidan bara svona hefdbundin unglaeknastorf fram eftir degi. I raun mun skarra en eg bjost vid. Einhverjir voru bunir ad segja mer internar a kirurgiu tyrftu ad maeta 5 am, ef ekki fyrr.... tannig tetta er bara fint :)
Eg er sem sagt a teymi sem serhaefir sig i gastric bypass adgerdum (hvad heitir tad a islensku? Anyone?) og svo laumast einstaka gallblodruadgerdir og herniur inn a milli. Eg er buin ad fa ad fara a skurdstofuna (strax a degi 2!!) og var med serfraedingnum ad fjarlaegja storan hnut af othekktum toga ur kvidvegg. Otrulega skemmtilegt - eg var buin ad gleyma hvad tad er gaman inni a skurdstofu (t.e. hinum megin vid svaefingardukinn)! Eg fekk bokstaflega ad gera adgerdina, serfraedingurinn bara leidbeindi mer (skera, opna, brenna, klemma, hnyta, sauma o.s.frv.). Gedveikt gaman!
Valdis vinkona min er ad gifta sig i dag!!!! Ferfalt hurra fyrir henni og Joa.
Til hamingju med daginn. Eg vildi mjog svo gjarnan hafa verid med i dag. Sogdu ekki abyggilega allir ja (t.e. alla vegna tid Joi?) :>)
Jaeja, meira seinna, aetla ad reyna ad koma mer heim. Er a leid i BBQ party i Sommerville (sem er svona eins og Kopavogur... naesti baer vid).
Meira seinna.
Adios i bili.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, June 23, 2007
4
comments
Hið ljufa lif
AAahhhhh, ég ligg á nýja sólbekknum mínum úti á palli og er að fá mér beyglu í hádegismat. Það er 22 stiga hiti og heiðskýrt. Fullkomin leið til að jafna sig eftir partý gærkvöldsins. Ég er loksins komin með internettengingu, sem m.a.s. nær alla leið út á svalir!
Ég er ekki enn byrjuð fyrir alvöru á spítalanum, hinu ljúfa lífi lýkur eftir 2 og hálfan dag en þá byrjar internárið formlega. Alla síðustu viku er ég búin að vera í svokölluðu "orientation" með krökkunum sem verða með mér á ári. Brigham and Womens Hospital (BWH) á hrós skilið fyrir kynningu fyrir nýtt starfsfólk (eins og LSH myndi orða það). Það er búið að fara yfir alla mögulega og ómögulega hluti með okkur, hvernig tölvukerfið virkar, hvar við nálgumst ókeypis matarmiða og vouchera í leigubíl eftir vaktir. Við fengum ID badge - aftan á nafnspjaldinu er svona "VIP"passi sem þar sem stendur: " This ID card serves as a pass through police, fire and armed services check points". Wow- pælið í því!
Við erum öll orðin ACLS certified (12 tíma endurlífgunarnámskeið!). Við erum búin að fara í heilsutékk sem fólst í berklaprófi (+/- lungnamynd eftir þörfum) og mælingu á alls kyns bólusetningartítrum. Þeir sem reyndust ekki með mótefni gegn mislingum, rauðum hundum, hettusótt o.s.frv. voru bólusettir. Ég þurfti að fá sprautu í rassinn gegn lifrarbólgu B þar sem ég reyndist ekki vera með nein mælanleg mótefni (Steinunn, það er greinilegt hvor okkar fékk ókældu sprautuna í Danmörku, haha)! Með þessu öllu saman var svo boðið upp á beyglur og muffins í morgunmat, hádegisverðarhlaðborð á hverjum degi og alls kyns kræsingar. Allt alveg ótrúlega skipulagt og vel gert. Húrra fyrir BWH!
Í síðustu viku var okkur svo boðið út á Boston Billiards þar sem við bonduðum öll voða vel, spiluðum pool og máttum panta ótakmarkað af kokteilalistanum.... Og í gærkvöldi var okkur öllum boðið í útskriftarpartý deildarinnar sem var haldið hér: www.bhh.com. Þar var 3ja rétta dinner, hljómsveit og læti. Síðan fórum við nokkur og fengum okkur kokteila hér: www.topofthehub.net.
Á föstudagskvöldið fór ég út með nokkrum stelpum sem ég kynntist hér í janúar. Við fórum á MIT svæðið í Cambridge og fengum okkur gourmet pizzur (m.a. með gorgonzola, spínati og ítölskum pylsum - MMMmmmm) og tékkuðum síðan á þeim afar svala stað Middlsex Lounge sem er þarna í Cambridge.
Sem sagt bara nóg að gera. Fyrir utan þetta allt saman er ég svo að reyna að koma mér fyrir. Eftir endalaust margar ferðir í Crate & Barrel, Ikea, T-mobile, bankann, Social security skrifstofuna, Target.... er það nú allt að koma.
Jæja, ætla að hjóla niður í bæ og fá mer ís og halda upp á 17. júní :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, June 17, 2007
8
comments
Fyrsti besti vinur minn i Boston
Þetta beið mín í póstinum daginn sem ég flutti inn í íbúðina. Frá sæta gay gaurnum í DKNY búðinni á Newbury Street sem ég kynntist þegar ég fór á svæfingakúrsinn hér í maí - ekki amalegt að eiga vini á æðstu stöðum ;)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, June 14, 2007
1 comments
Ég er á lífi....
... þótt margir hafi verið farnir að óttast. Ég er hins vegar EKKI enn komin með internettengingu á nýja fína heimilið mitt en vonandi leysist úr því á næstu dögum.
Ég hef annars haft það alveg rosalega fínt síðan ég kom (þrátt fyrir enga nettenginu - sem er erfitt, mjöööög erfitt). Ég yfirgaf Ísland akkúrat fyrir viku síðan í roki og rigningu og lenti í Boston 5 tímum seinna í enn verra veðri (hvað átti það nú eiginlega að þýða!). Síðan þá hefur hins vegar verið sól og blíða og 70-80 stiga hiti (hvað sem það nú er í °C). Ég er búin að vera ótrúlega upptekin alla vikuna við svona koma-sér-fyrir-stússerí, svona fremur boring hlutir eins og redda mér síma (+1 781 535 1430), kaupa mér rúm og sjónvarp, stofna bankareikning, reyna að taka bílpróf (sem ég mátti ekki söku kennitöluskorts), reyna að fá kennitölu (sem tókst ekki þar sem ég er ekki búin að vera 10 daga í landinu - hvernig gat ég nú ekki vitað það), hringja milljón símtöl í internetfyrirtækið og reyndar drýgja hetjudáð þegar ég aðstoðaði við að útrýma upprennandi býflugnabúi undir svölunum mínum. Ég er líka búin að kaupa skemmtilega hluti eins og sólbekk á svalirnar og hvítvín í ísskápinn :)
Elfa og Gunnar sem búa hérna tóku rosavel á móti mér og hafa bjargað mér um allt, hafa lánað mér bílinn sinn, tölvuna sína (með virku interneti!!)og núna íbúðina sína! Geri aðrir betur! ...en þau eru í útlöndum bæði núna. Sibba og Einar Baldvin sem búa í Madison voru hér um helgina. Við fórum öll og fengum okkur EÐALsushi á föstudagskvöldinu, smá hvítvín, mun meira rauðvín og enn meira af öðrum óskilgreindum drykkjum ásamt ósköpunum öllum af belgisku súkkulaði. Mjög gaman. Vorum að til hálffimm, úffff.
Gunnar og co. búa í South End sem er einmitt þekkt fyrir m.a. að vera eitt aðal gay-hverfið hér í borg. Við fórum því öll sömul (þegar við vöknuðum úr sushivímunni) og fengum okkur brunch á Tremont Stræti sem er aðalgatan í hverfinu. Svo vel vildi til að það var akkúrat Gay Pride akkúrat þennan sama dag og eftir að hafa skellt í okkur einni mímósu í tilefni dagsins gengum við um ALLA borg með göngunni. Við erum að tala um að gangan var frá 7 AM til 4 PM - heila 9 klukkutíma!!!!! Ég tók fullt af myndum, þær fara á Flickr-ið þegar internet-gaurinn er búinn að heimsækja mig.
Svo byrjar ég á spítalanum á morgun..... spennó spennó. Meira seinna.
XXX
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, June 11, 2007
6
comments
Sendiráðið
Fór í viðtal í Ameríska sendiráðið í dag.
Ég hef oft gengið þarna fram hjá á leið í vinnuna og alltaf fengið svona nettan hroll niður bakið þegar ég mæti 2 vopnuðum öryggisvörðum við dyrnar. Eftir að hafa sýnt skilríki í bak og fyrir var mér hleypt inn fyrir dyr. Þar fór ég í gegnum vopnaleitartæki og taskan mín var sett í röntgenmynd en síðan hófst hið formlega viðtal við umboðsmann USA á Íslandi.
Hann spurði mig 3ja spurninga , sá að ég hef hvorki útlit hryðjuverkakonu né eiturlyfjabarónessu (Tollverðir á Keflavíkurflugvelli hafa reyndar aldrei verið sammála..) og ég fékk visað. Ég var ekki einu sinni spurð hvort ég væri afkomandi Nasista (hélt að sú spurning væri gefin!). Til að hleypa smá stemmningu í viðtalið reyndi ég m.a.s. að telja honum trú um að ég væri að fara flytja lifandi búfénað inn í landið - en hann trúði mér ekki.
Þannig var nú það, sem sagt mun minna mál að fá visað en að KOMAST INN í sjálft sendiráðið. Athyglisvert.
Kv.Ólöf
Hér með löglegur innflytjandi í BNA
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, June 01, 2007
5
comments
Foreldrahus
Nú sit ég úti á svölunum á Vesturvallagötunni, á bikini, með svaladrykk í annarri og sólarvörn í hinni og hef það alveg agalega gott í sólinni. Þannig á það líka að vera þegar maður er fluttur aftur heim til foreldranna, sei sei já. Hið ljúfa líf í foreldrahúsum! Dýrindis kræsingar í öll mál, allt skínandi fínt og ekkert drasl, þvotturinn færður manni nýstraujaður, engir reikningar að hugsa um o.s.frv..... Hljómar vel, ekki satt!
Ahemm. Ég er sem sagt flutt aftur í foreldrahús eftir að hafa staðið í þvílíkum búslóðaflutningum síðustu daga. Endalausar Sorpuferðir (við erum að tala um það að Sorpufólkið er farið að segja "Bleeeeesuð"), dílingar við furðulegt fólk af Barnaland.is (þar sem fróðir menn bentu mér á að auglýsa afgangs eigur mínar til sölu) og þursabit magna grada eftir kassalyftingar. Í gær var síðan flutningsdagurinn mikli sem gekk rosa vel með góðri aðstoð flutningsteymisins míns. Álfrún systir, Ásgerður frænka, Orri nágranni, Hrafn og Agnar frændi gengu vasklega til verks og rumpuðum við þessu af á 2 tímum. Þar með flutti ég aftur í foreldrahús.
Æ, Æ, Æ, kemur í ljós að foreldrarnir eru bara staddir í útlöndum!!!!! (...hér á að hljóma Jaws lagið...). Nú versanaði aldeilis í því!
Staðan er sem sagt þannig núna: kassar og búslóð út um ALLA íbúð (gjörsamlega alla íbúð) þar sem ég arfleiddi Álfrúnu að mest öllum eigum mínum fyrir nýju íbúðina hennar (sem hún fær einmitt ekki afhenta fyrr en um miðjan júlí...þannig dvalarstaður búslóðarinnar mun vera hér þangað til). Það er bónus, bónusinn er er nokkurra daga uppvask í vaskinum, ekkert til í ísskápnum og þvottavélin biluð...... Við systurnar tökum þessu þó vel, með jafnaðargeði og léttri lund.
Það væri reyndar athyglisvert að vita hvað "Allt-í-drasli" fólki myndi hafa að segja um íbúðina foreldra minna núna.
Hey, það er nú samt sól á svölunum, það var hægt að blanda einn svaladrykk og ég dró bíkínið fram úr einni fatahrúgunni, þannig þetta er nú ekki svo slæmt eftir allt saman :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, May 27, 2007
3
comments
Vill einhver eignast:

- sætustu kisu í heimi
- borðtölvu og flatskjá (geðveikt svalur skjár, í alvöru)
- gamlan körfustól í stofuna
- eitthvað af mínum ótalmörgu CDs
- sætustu kisu í heimi
- alls kyns læknisfræðibækur
- ótrúlega spennandi reyfara á náttborðið
- bókahillur úr IKEA
- sætustu kisu í heimi
- gömul svigskíði (en alveg fín - þyfti kannski bara að vaxa þau aðeins...) OG skíðaskó
- fullt af litríkum blómapottum
- grænan teketil (te er hollt og gott)
- töfrasprota í eldhúsið
- kaffikönnu
- sætustu kisu í heimi?
Ef einhver þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem vill fá hana loðnu silfurgráu Skottu mína í fóstur þá yrði ég alveg svakalega glöð. Það er eitthvað mjög sorglegt við það að þurfa að fara með hana í Kattholt. Var ég búin að segja hvað hún er sæt :)
Það er alla vegna nóg af búslóð í boði fyrir þá sem vilja og þora....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, May 18, 2007
2
comments
Vor i Boston

Bloggedí blogg.
Ætla að prófa bloggheiminn!
Ég er sem sagt að yfirgefa Ísland í bili og flytja til Boston. Tilgangur þessarar síðu er fyrst og fremst að þjóna sem fréttavefur frá Baunabæ fyrir vini og velunnara :)
Ég heimsótti Boston í síðustu viku, bæði til að kíkja á tilvonandi heimkynni mín auk þess sem ég sótti þennan líka fína Harvard review kúrs í svæfingum. Kúrsinn var frábær - fullt af fínum fyrirlestrum. Gaman að fá nasaþef af því sem koma skal. Einn og einn fyrirlesturinn var þó minna spennandi og var því tilvalið að skella sér aðeins í búðarölt inn á milli. AAahhhh, ég elska að versla í USA.
Það var svo líka geðveikt veður - kirsuberjatrén í blóma og allir að spóka sig um í stuttum pilsum og hlýrabolum. Lofar góðu!
Ég fór og hitti tilvonandi leigusalann minn, hann Chris - samkynhneigða hjúkrunarfræðinginn sem ætlar að leigja mér risíbúðina sína í Roxbury. Hann fór með mig í rúnt um borgina og sýndi mér íbúðina. Þetta er 3ja herb. íbúð með RISAsvölum (jibbý). Býður aldeilis upp á hvítvínsdrykkju á heitum sumarkvöldum eins og vera ber. Síðan eru a.m.k. einn múrsteinsveggur í hverju herbergi (hversu svalt er það!), gaseldavél, þakgluggar, rosa útsýni, hátt til lofts og auðvitað sniðugir nágrannar! Enda set ég skilyrði að nágrannar séu spes - enda vita nú flestir að ég þekki ekkert annað... ;-)
Stelpan á 2. hæð er sem sagt ca. þrítug með massavöðva, tattoo og dredda og vinnur sem gengilbeina á thailenskum veitingastað í nágreninu. Hún á líka chihuahua hund a la Paris Hilton. Stóra planið er að koma sér vel í mjúkinn hjá henni, enda ekki slæmur díll að ganga að nýlöguðu Pad Thai eftir langar vaktir - stórsnjallt! Vona að hún sigi ekki hundinum á mig.....
Ég er búin að kaupa mér miða út 3. júní. Bara 20 dagar þangað til....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, May 13, 2007
1 comments
