Jei, í dag er sól og sumar og fyrsti frídagurinn minn.... ja, reyndar þarf ég að mæta á næturvaktina kl.6 sem er nú frekar súrt :(
Ég ætla að drífa mig út úr bænum og kanna nýjar slóðir. Ferðinni er heitið til Walden Pond sem er rétt utan við Boston. Þar á vera svaka fínt náttúrusvæði, hægt að jogga ef maður er þannig stemmdur (sem maður reyndar er), hægt að sóla sig á vatnsbakkanum og synda í vatninu.
Kata sem er að læra OBGYN í Denver, Colorado kom til Boston í gær. Við fórum aðeins út í gærkvöldi og fengum okkur að borða. Fundum þennan líka fína stað í South End til að snæða nautasteik og ræða málin yfir rauðvínsglasi. Hún var að klára grunnnámið í Denver og er núna í viðtölum fyrir fellowship. Þannig maður fær aftur að upplifa match-stemmningu fyrir fellowship. Dáldið spennó, kannski maður reyni við California næst.... Það er reyndar 4 ár í það hjá mér þannig maður hefur nægan tíma til að spá í því.
Best að drífa sig af stað út í góða veðrið.
Fridagur!!!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, June 30, 2007
1 comments
Hitabylgja
Það er þvílík hitabylgja í gangi núna. Allir að kafna úr hita, nágrannakonan mín á fyrstu hæðinni (fyrrverandi neðanjarðarlestarbílstjóri - nú, svona illvígur miðavörður í lestunum....) fór úr bænum í dag til að flýja hitann. Hún fór á ströndina, um klukkutíma norður af Boston. Ég hitti hana við þvottavélina í kvöld og hún leiddi mig í allan sannleikann um helstu strandir í nágreninu. Hljómar aaaafar vel í hitanum, kannski maður tékki á ströndinni um næstu helgi þegar ég fæ frí frá spítalanum. Þangað til nýtur maður bara loftkælingarinnar á göngum Brigham.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, June 28, 2007
4
comments
Svona var útsýnið af Mission Hill í kvöld um áttaleytið þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Það var dinner á spítalanum fyrir alla skurðdeildarlæknana. Surf´n´Turf með risarækjum, sushi, nautasteik og fullt af rauðvíni! Þetta var haldið inni á einkabókasafni sviðstjórans, athyglisverð staðsetning. Ástæðan var að við erum núna búin með fyrstu vikuna af intern-árinu! Fín ástæða! Ætli þetta sé alltaf svona á mánudagskvöldum....
Deildarlæknarnir á kirurgiunni eru skemmtilegir. Ég er alveg búin að spotta ýmsa karaktera í hópnum sem svipar til ákveðinna kirurga heima. Það er t.d. einn Beggi (a.k.a. Rick) - hann er einn af umsjónardeildarlæknunum. Síðan er einn Jónas Magnússon junior, mjög hress gaur. Svo á árinu mínu er einn strákur sem er tvífari Halla (Sam)- alveg skuggalega líkir. Svo á ég víst einhvern tvífara á spítalanum sem einhverjir hafa spottað, ég veðja á að hún heiti Cathrine... Ég þarf að hitta hana, að minnsta kosti ef hún er jafn skemmtileg og tvífarinn minn heima á LSH :)
Fyrir áhugasama var ég svo að fá frí-skemað mitt í hendurnar. Það er bara alls ekki slæmt. Ég er með eina viku í byrjun september, eina viku í fyrri hluta desember og eina viku í apríl. Síðan er árið búið 20. júni þannig allir fá amk vikufrí áður en næsta tímabil byrjar sem er yfirleitt 1.júli. Ótrúlega fínt! Nú þarf maður bara að fara að skipuleggja. Kannski að maður fari til Cape Cod á ströndina, eða jafnvel kíkja á slóðir Kennedy á Martha´s Vineyard. Hey, eða jafnvel bara skella sér til California! Vill einhver koma með?
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, June 26, 2007
6
comments
A helgarvaktinni, nema hvad...
Fjorir dagar bunir, 361 dagur eftir. Phew!
Eg var ein af teim "heppnu" i intern hopnum sem fekk ad vera a voktum um helgina, jei. Tolf tima vaktir (alveg eins og a Landsanum!) - sem er reyndar eins og dagvinnan er, 6 am til 6 pm.
Fyrstu dagarnir eru bunir ad vera finir serstaklega tar sem eg er svo heppin ad vera med PA (physisician assistant) a minu teymi sem gerir ca. 70% af hinni mjog svo gefandi pappirsvinnu! Otrulega storkostleg uppfinning (fra sjonarholi unglaekna), en WOW, aldrei i lifinu myndi eg vilja vinna tetta starf. OMG!
Vid gongum stofugang kl.6 a morgnanna, sem tydir tad ad eg er maett i hus 1 min. i 6(sem kallast gott fyrir svona "5-min.yfir" manneskju eins og mig) - sidan er chill og morgunmatur med PA-num minum medan laeknanemarnir klara noturnar (hehe) og sidan bara svona hefdbundin unglaeknastorf fram eftir degi. I raun mun skarra en eg bjost vid. Einhverjir voru bunir ad segja mer internar a kirurgiu tyrftu ad maeta 5 am, ef ekki fyrr.... tannig tetta er bara fint :)
Eg er sem sagt a teymi sem serhaefir sig i gastric bypass adgerdum (hvad heitir tad a islensku? Anyone?) og svo laumast einstaka gallblodruadgerdir og herniur inn a milli. Eg er buin ad fa ad fara a skurdstofuna (strax a degi 2!!) og var med serfraedingnum ad fjarlaegja storan hnut af othekktum toga ur kvidvegg. Otrulega skemmtilegt - eg var buin ad gleyma hvad tad er gaman inni a skurdstofu (t.e. hinum megin vid svaefingardukinn)! Eg fekk bokstaflega ad gera adgerdina, serfraedingurinn bara leidbeindi mer (skera, opna, brenna, klemma, hnyta, sauma o.s.frv.). Gedveikt gaman!
Valdis vinkona min er ad gifta sig i dag!!!! Ferfalt hurra fyrir henni og Joa.
Til hamingju med daginn. Eg vildi mjog svo gjarnan hafa verid med i dag. Sogdu ekki abyggilega allir ja (t.e. alla vegna tid Joi?) :>)
Jaeja, meira seinna, aetla ad reyna ad koma mer heim. Er a leid i BBQ party i Sommerville (sem er svona eins og Kopavogur... naesti baer vid).
Meira seinna.
Adios i bili.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, June 23, 2007
4
comments
Hið ljufa lif
AAahhhhh, ég ligg á nýja sólbekknum mínum úti á palli og er að fá mér beyglu í hádegismat. Það er 22 stiga hiti og heiðskýrt. Fullkomin leið til að jafna sig eftir partý gærkvöldsins. Ég er loksins komin með internettengingu, sem m.a.s. nær alla leið út á svalir!
Ég er ekki enn byrjuð fyrir alvöru á spítalanum, hinu ljúfa lífi lýkur eftir 2 og hálfan dag en þá byrjar internárið formlega. Alla síðustu viku er ég búin að vera í svokölluðu "orientation" með krökkunum sem verða með mér á ári. Brigham and Womens Hospital (BWH) á hrós skilið fyrir kynningu fyrir nýtt starfsfólk (eins og LSH myndi orða það). Það er búið að fara yfir alla mögulega og ómögulega hluti með okkur, hvernig tölvukerfið virkar, hvar við nálgumst ókeypis matarmiða og vouchera í leigubíl eftir vaktir. Við fengum ID badge - aftan á nafnspjaldinu er svona "VIP"passi sem þar sem stendur: " This ID card serves as a pass through police, fire and armed services check points". Wow- pælið í því!
Við erum öll orðin ACLS certified (12 tíma endurlífgunarnámskeið!). Við erum búin að fara í heilsutékk sem fólst í berklaprófi (+/- lungnamynd eftir þörfum) og mælingu á alls kyns bólusetningartítrum. Þeir sem reyndust ekki með mótefni gegn mislingum, rauðum hundum, hettusótt o.s.frv. voru bólusettir. Ég þurfti að fá sprautu í rassinn gegn lifrarbólgu B þar sem ég reyndist ekki vera með nein mælanleg mótefni (Steinunn, það er greinilegt hvor okkar fékk ókældu sprautuna í Danmörku, haha)! Með þessu öllu saman var svo boðið upp á beyglur og muffins í morgunmat, hádegisverðarhlaðborð á hverjum degi og alls kyns kræsingar. Allt alveg ótrúlega skipulagt og vel gert. Húrra fyrir BWH!
Í síðustu viku var okkur svo boðið út á Boston Billiards þar sem við bonduðum öll voða vel, spiluðum pool og máttum panta ótakmarkað af kokteilalistanum.... Og í gærkvöldi var okkur öllum boðið í útskriftarpartý deildarinnar sem var haldið hér: www.bhh.com. Þar var 3ja rétta dinner, hljómsveit og læti. Síðan fórum við nokkur og fengum okkur kokteila hér: www.topofthehub.net.
Á föstudagskvöldið fór ég út með nokkrum stelpum sem ég kynntist hér í janúar. Við fórum á MIT svæðið í Cambridge og fengum okkur gourmet pizzur (m.a. með gorgonzola, spínati og ítölskum pylsum - MMMmmmm) og tékkuðum síðan á þeim afar svala stað Middlsex Lounge sem er þarna í Cambridge.
Sem sagt bara nóg að gera. Fyrir utan þetta allt saman er ég svo að reyna að koma mér fyrir. Eftir endalaust margar ferðir í Crate & Barrel, Ikea, T-mobile, bankann, Social security skrifstofuna, Target.... er það nú allt að koma.
Jæja, ætla að hjóla niður í bæ og fá mer ís og halda upp á 17. júní :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, June 17, 2007
8
comments
Fyrsti besti vinur minn i Boston
Þetta beið mín í póstinum daginn sem ég flutti inn í íbúðina. Frá sæta gay gaurnum í DKNY búðinni á Newbury Street sem ég kynntist þegar ég fór á svæfingakúrsinn hér í maí - ekki amalegt að eiga vini á æðstu stöðum ;)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, June 14, 2007
1 comments
Ég er á lífi....
... þótt margir hafi verið farnir að óttast. Ég er hins vegar EKKI enn komin með internettengingu á nýja fína heimilið mitt en vonandi leysist úr því á næstu dögum.
Ég hef annars haft það alveg rosalega fínt síðan ég kom (þrátt fyrir enga nettenginu - sem er erfitt, mjöööög erfitt). Ég yfirgaf Ísland akkúrat fyrir viku síðan í roki og rigningu og lenti í Boston 5 tímum seinna í enn verra veðri (hvað átti það nú eiginlega að þýða!). Síðan þá hefur hins vegar verið sól og blíða og 70-80 stiga hiti (hvað sem það nú er í °C). Ég er búin að vera ótrúlega upptekin alla vikuna við svona koma-sér-fyrir-stússerí, svona fremur boring hlutir eins og redda mér síma (+1 781 535 1430), kaupa mér rúm og sjónvarp, stofna bankareikning, reyna að taka bílpróf (sem ég mátti ekki söku kennitöluskorts), reyna að fá kennitölu (sem tókst ekki þar sem ég er ekki búin að vera 10 daga í landinu - hvernig gat ég nú ekki vitað það), hringja milljón símtöl í internetfyrirtækið og reyndar drýgja hetjudáð þegar ég aðstoðaði við að útrýma upprennandi býflugnabúi undir svölunum mínum. Ég er líka búin að kaupa skemmtilega hluti eins og sólbekk á svalirnar og hvítvín í ísskápinn :)
Elfa og Gunnar sem búa hérna tóku rosavel á móti mér og hafa bjargað mér um allt, hafa lánað mér bílinn sinn, tölvuna sína (með virku interneti!!)og núna íbúðina sína! Geri aðrir betur! ...en þau eru í útlöndum bæði núna. Sibba og Einar Baldvin sem búa í Madison voru hér um helgina. Við fórum öll og fengum okkur EÐALsushi á föstudagskvöldinu, smá hvítvín, mun meira rauðvín og enn meira af öðrum óskilgreindum drykkjum ásamt ósköpunum öllum af belgisku súkkulaði. Mjög gaman. Vorum að til hálffimm, úffff.
Gunnar og co. búa í South End sem er einmitt þekkt fyrir m.a. að vera eitt aðal gay-hverfið hér í borg. Við fórum því öll sömul (þegar við vöknuðum úr sushivímunni) og fengum okkur brunch á Tremont Stræti sem er aðalgatan í hverfinu. Svo vel vildi til að það var akkúrat Gay Pride akkúrat þennan sama dag og eftir að hafa skellt í okkur einni mímósu í tilefni dagsins gengum við um ALLA borg með göngunni. Við erum að tala um að gangan var frá 7 AM til 4 PM - heila 9 klukkutíma!!!!! Ég tók fullt af myndum, þær fara á Flickr-ið þegar internet-gaurinn er búinn að heimsækja mig.
Svo byrjar ég á spítalanum á morgun..... spennó spennó. Meira seinna.
XXX
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, June 11, 2007
6
comments
Sendiráðið
Fór í viðtal í Ameríska sendiráðið í dag.
Ég hef oft gengið þarna fram hjá á leið í vinnuna og alltaf fengið svona nettan hroll niður bakið þegar ég mæti 2 vopnuðum öryggisvörðum við dyrnar. Eftir að hafa sýnt skilríki í bak og fyrir var mér hleypt inn fyrir dyr. Þar fór ég í gegnum vopnaleitartæki og taskan mín var sett í röntgenmynd en síðan hófst hið formlega viðtal við umboðsmann USA á Íslandi.
Hann spurði mig 3ja spurninga , sá að ég hef hvorki útlit hryðjuverkakonu né eiturlyfjabarónessu (Tollverðir á Keflavíkurflugvelli hafa reyndar aldrei verið sammála..) og ég fékk visað. Ég var ekki einu sinni spurð hvort ég væri afkomandi Nasista (hélt að sú spurning væri gefin!). Til að hleypa smá stemmningu í viðtalið reyndi ég m.a.s. að telja honum trú um að ég væri að fara flytja lifandi búfénað inn í landið - en hann trúði mér ekki.
Þannig var nú það, sem sagt mun minna mál að fá visað en að KOMAST INN í sjálft sendiráðið. Athyglisvert.
Kv.Ólöf
Hér með löglegur innflytjandi í BNA
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, June 01, 2007
5
comments