Allir að standa sig geðveikt vel!

- Nína systir, sem var að komast inn í svakaflottan hönnunarskóla í Barcelona í 3ja ára BA nám í fashion design. Skólinn heitir Istituto Europeo di Design og hér er heimasíðan: www.ied.es
- Sigrún Ólafs, sem toppar alla aðra í Bloomington með ritgerðinni sinni. Nema hvað.
- Sigrún Forrest sem var að hlaupa Boston maraþonið á mettíma!
- MIT-Magga sem er að fara að prófessorast í Stanford.
- Mamma sem var að þýða enn eina bókina: Strákinn í röndóttu náttfötunum - hún er næst í bunkanum á náttborðinu
- Steinunn, sem er loksins búin að fá sér Skype :)
- Álfrún systir sem er búin að kaupa sér flugmiða til Boston í sumar til að ferðast um Vestrið með mér, við ætlum að vera með kúrekahatta í blæjubílnum- júbbí
- Agnar frændi og Brynja sem eru þokkalega að taka forskotið með næstu kynslóð í ættinni
- Addý, læknisfræði-bekkjarsystir sem er að fara að gifta sig um næstu helgi

Gaman gaman. Ég er ótrúlega stolt af ykkur öllum :)
Eru fleiri sem luma á góðum fréttum?

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir síðast!! Hefðum þurft að ná einu djammi en það verður bara næst. Ég er öll að koma til og farin að æfa fyrir Laugaveginn. En djöfull skal ég hlaupa Boston aftur - þetta var schnilld!

Áslaug said...

Já, systurnar (og allir hinir) eru að standa sig vel en það ert þú líka! Ekki gleyma sjálfri þér sem rúllar upp 24 tíma vöktum á 3ja daga fresti eins og ekkert sé og tekur frábærlega á móti mömmu gömlu þrátt fyrir það. Kær kveðja frá öllum á Vestur- og Brávallagötu. Þín mamma