Svíþjóð er enn ekkert slor... þrátt fyrir að hitabylgjunni sé lokið og nú rigni hundum og köttum. Eftir afar skemmtilega dvöl í Stokkhólmi hjá Steinku og co. er ég nú komin til Uppsala til Ingaló og Árna, að ógleymdri heimasætunni Guðrúnu Helgu. Þau búa í mjög svo kósý husi í Herrhagen sem er í skógarjaðrinum, með eplatré í garðinum og nágranna sem heitir Pia.
Eftir dálitið hvítvínslegna ferð með lestinni frá Stokkholmi rétt um miðnætti, ákváðum við Ingalo að taka strætó heim í Herrhagen. Skv. Ingaló var mun ódyrara að kaupa strætómiða i sjálfsala á stoppistöðinni en að borga i vagninum. Ég fékk það hlutverk að fara í leiðangur að kaupa miða meðan hun passaði töskurnar. Eftir smá ráf um strætóskiptistöðinni fann ég loks "biljet automat" og keypti 2 miða á 20 SEK.
Þegar við komum svo um borð í bussen (eftir smá erfiðleika með töskuburð) afhentum við bílstjóranum miðana.
Bilstjorinn: Hvor fik ni de her biljetter?
Eg: Nuuu, selvfölgeligt i biljett automaten (eins og fólk veit tala ég DANSK-sænsku!)
Bilstjorinn: Ahå.... og kimdi hálfpartinn, sem ég hélt væri út af asnalegu "sænskunni" minni.
Þegar við nálguðumst endastoppið i Herrhagen, tokum við eftir því að miðarnir okkar giltu fram á mánudagsmorgun. Hmmmmm, sænskir strætomiðar sko!
Við nánari athugun reyndist standa skýrum stöfum að þessi miði skyldi staðsetjast vel sýnilegur innan við framrúðuna, læsilegur stöðumælaverðinum....
Bílstjórinn kvaddi okkur svo með hressilegu hejdå og var ennþá hlæjandi. Eins gott að maður býr bara í Ameríkunni segi ég nú bara.
Uppsalir og undarlegir strætómiðar
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, August 03, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Við Kristján bróðir erum í þvílíku hláturskasti yfir "strætómiðunum"!
Vonandi líður þér sem best í Svíaríki!
Sjáumst vonandi í næstu viku á Íslandi.
Við komum til Reykjavíkur um kl. 16 Kíkir þú á Hofgarða í kaffi eða mat um kvöldið? (áður en þú ferð til USA).
Knús
Magga
he he he! fyndið
Kv. Orri
jepp það er ýmislegt að varast
Þetta er frábær saga. kv Pétur.
Post a Comment