
... bara 3 dagar milli færslna!
Hérna til vinstri má sjá hvernig Boston leit út frá 22.hæð Ellison byggingunni kl.6.30 að morgni aðfangadags. Rétt áður en ég fór heim af sólarhringsvaktinni. Köld en fögur morgunbirta.
Jólalömbin heppnuðust stórvel - bæði hangikjötið og lambalærið! Aldeils fín veislujól, mmmm, og nægir afgangar fram á nýjár.
Annars er það helst í fréttum að ég er komin í FRÍ - já, alveg heila 9 daga, hvorki meira né minna :)
Ég losnaði m.a.s. snemma í dag, kl. 3pm þannig fríið byrjaði alveg óvænt fyrr en áætlað var. Nú þarf ég að fara á fullt við að pakka, tína til skíða-outfittið, pússa skíðagleraugun og stoppa í lopasokkana því á morgun er ferðinni heitið vestur á bóginn. Ég flýg fyrst til San Fran, þaðan verður superskuttlan tekin til Palo Alto þar sem sam-skíðamenn og konur bíða. Eftir næturstopp þar munum við öllsömul, 6 samtals, pikka upp mini-vaninn og keyra til Lake Tahoe þar sem hraustleg og heilsusamlega skíðaiðkun verður stunduð í heila viku.
Engar áhyggjur, þetta verður ekki alheilsusamlegt, þar sem frést hefur af fjölda spilavíta á skíðasvæðinu (!) - þ.e. Nevada megin við fylkjamörkin, einnig eru barir á við og dreif í brekkunum þar sem hægt er að ylja sér við heitt toddý og kynnast mönnum í ullarpeysum og svo verður auðvitað nýjársball!
Aðstæður í Tahoe skýrast betur fljótlega og mega lesendur hlakka til næstu færslu sem verður þ.a.l. líklegast ekki fyrr en á nýju ári!
Þetta er í fyrsta skipti sem ég verð ekki á Íslandinu góða um áramótin, hálfskrýtið verð ég nú að viðurkenna og ég á eftir að sakna familíunnar í gamlársboðinu á Hrólfskálavörinni!! Sendi öllum bestu Nýjárskveðjur og megi 2009 verða ekki síðra en hið góða ár 2008.
Adios þangað til næst!
Ó.
..sko hvað ég er dugleg
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, December 26, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla. Takk fyrir jólakortið! Frábær mynd á því af krökkunm með snjóboltana. Öfunda þig í Tahoe, en ég hugga mig við að við ætlum á skíði í Big Bear um næstu helgi! Vó, erum við að tala saman um Kaliforníu or what!
Post a Comment