Vill einhver eignast:


- sætustu kisu í heimi
- borðtölvu og flatskjá (geðveikt svalur skjár, í alvöru)
- gamlan körfustól í stofuna
- eitthvað af mínum ótalmörgu CDs
- sætustu kisu í heimi
- alls kyns læknisfræðibækur
- ótrúlega spennandi reyfara á náttborðið
- bókahillur úr IKEA
- sætustu kisu í heimi
- gömul svigskíði (en alveg fín - þyfti kannski bara að vaxa þau aðeins...) OG skíðaskó
- fullt af litríkum blómapottum
- grænan teketil (te er hollt og gott)
- töfrasprota í eldhúsið
- kaffikönnu
- sætustu kisu í heimi?

Ef einhver þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem vill fá hana loðnu silfurgráu Skottu mína í fóstur þá yrði ég alveg svakalega glöð. Það er eitthvað mjög sorglegt við það að þurfa að fara með hana í Kattholt. Var ég búin að segja hvað hún er sæt :)
Það er alla vegna nóg af búslóð í boði fyrir þá sem vilja og þora....

2 comments:

Valdís said...

Gaman að þú skulir vera farin að blogga svo maður geti fylgst með þér í útlandinu! Verst með kisu greyið, vonandi getur einhver tekið hana að sér... einn köttur er samt nóg á okkar heimili. Kannski maður kíki svo í heimsókn að kíkja á búslóðina;)

Ólöf Viktorsdóttir said...

já, ein kisa á heimili er víst feykinóg.
Þú ert meira en velkomin í búslóðarheimsókn - ég fer í Sorpu ca x2 á dag þessa dagana... það væri gaman ef eitthvað nýtist :)