Foreldrahus

Nú sit ég úti á svölunum á Vesturvallagötunni, á bikini, með svaladrykk í annarri og sólarvörn í hinni og hef það alveg agalega gott í sólinni. Þannig á það líka að vera þegar maður er fluttur aftur heim til foreldranna, sei sei já. Hið ljúfa líf í foreldrahúsum! Dýrindis kræsingar í öll mál, allt skínandi fínt og ekkert drasl, þvotturinn færður manni nýstraujaður, engir reikningar að hugsa um o.s.frv..... Hljómar vel, ekki satt!

Ahemm. Ég er sem sagt flutt aftur í foreldrahús eftir að hafa staðið í þvílíkum búslóðaflutningum síðustu daga. Endalausar Sorpuferðir (við erum að tala um það að Sorpufólkið er farið að segja "Bleeeeesuð"), dílingar við furðulegt fólk af Barnaland.is (þar sem fróðir menn bentu mér á að auglýsa afgangs eigur mínar til sölu) og þursabit magna grada eftir kassalyftingar. Í gær var síðan flutningsdagurinn mikli sem gekk rosa vel með góðri aðstoð flutningsteymisins míns. Álfrún systir, Ásgerður frænka, Orri nágranni, Hrafn og Agnar frændi gengu vasklega til verks og rumpuðum við þessu af á 2 tímum. Þar með flutti ég aftur í foreldrahús.

Æ, Æ, Æ, kemur í ljós að foreldrarnir eru bara staddir í útlöndum!!!!! (...hér á að hljóma Jaws lagið...). Nú versanaði aldeilis í því!

Staðan er sem sagt þannig núna: kassar og búslóð út um ALLA íbúð (gjörsamlega alla íbúð) þar sem ég arfleiddi Álfrúnu að mest öllum eigum mínum fyrir nýju íbúðina hennar (sem hún fær einmitt ekki afhenta fyrr en um miðjan júlí...þannig dvalarstaður búslóðarinnar mun vera hér þangað til). Það er bónus, bónusinn er er nokkurra daga uppvask í vaskinum, ekkert til í ísskápnum og þvottavélin biluð...... Við systurnar tökum þessu þó vel, með jafnaðargeði og léttri lund.
Það væri reyndar athyglisvert að vita hvað "Allt-í-drasli" fólki myndi hafa að segja um íbúðina foreldra minna núna.

Hey, það er nú samt sól á svölunum, það var hægt að blanda einn svaladrykk og ég dró bíkínið fram úr einni fatahrúgunni, þannig þetta er nú ekki svo slæmt eftir allt saman :)

3 comments:

Djalla said...

Hæ Ólöf, gaman að sjá að þú ert farin að tjá þig hér á bylgjum rafeindanna! Náðirðu að losa þig við píanóið? Og hvað með kisugrey? Enívei, ég leyfi mér að setja á þig hlekk á síðunni minni ;)

Verðum í sambandi, god rejse på søndag! Og góða skemmtun á lau...

Kys, Charlotta

Ólöf Viktorsdóttir said...

Kisugreyið fékk sem betur fer gott heimili í hinum hýra Hafnarfirði, nema hvar! Píanóið fór svo í fóstur til hjóna í Laugarnesinu og restin af búslóðinni til Álfrúnar systur. Ég er sem sagt búin að ná að dreifa eigum mínum víða!

Allt að verða klárt, nú þarf ég bara að setja mig í gír fyrir viðtal í US Embassy í fyrramálið - það er loka-challengið (ég upplifi mig eins og í Survivor - ef maður nær lokachallenginu þá ætti maður að vera safe in).

Hey, mig vantar annars veffangið á síðunni þinni...

Djalla said...

Glæsilegt! Ég er á
co-bo.blogspot.com

Asnaleg slóð, ég veit, en Böddi ætlaði einhvern tímann að taka þátt í þessu með mér...gekk ekki!

held og lykke med det!
Cxx