Gleðilegt ar!!

...já já, svolítið seint... það er samt ennþá janúar.

Ég fór heim yfir áramótin, í algjöran skreppitúr. Lenti á laugardagsmorgni og fór aftur til Boston á þriðjudeginum. Það var rosalega gaman að hitta alla. Það var mjög þétt skipuð dagskrá en ég náði að hitta alveg ótrúlega marga, skoða nýju börnin í vinahópnum, fara út að borða með skemmtilegu MR vinum mínum, hitta Quentin Tarantino á Oliver, djamma á gamlárs - mjög svo almennilega (mér til einskærrar ánægju þegar ég vaknaði allt of seint á Nýjársdag til að bruna út á völl), fara í 2 bruncha, spila Pictionary (með slökum árangri, ahemm) og auðvitað hitta alla fjölskylduna. Alveg æði.

Síðan var bara byrjað á fullu 2.janúar. Ég var að klára rotation á Faulkner Hospital, sem er "lítill" (á stærð við FSA) communitiy hospital í Jamaica Plain, sem er rétt hjá þar sem ég bý. Það var frábær rotation, ég var á skurðstofunni allan daginn þar sem þeir voru með 2 PAs sem sáu um alla deildarvinnuna. Ég held ég hafi gert ca. 50 aðgerðir á 5 vikum! Aldeilis ekki slæmt. Svo voru sérfræðingarnir líka einstaklega kennsluvænir og við m.a.s. fengum jólagjöf frá the Chief-num (agalega fínt Californiu-vín), sem hefði nú ekki gerst á Brigham. Það var líka gaman að rekast Jón Ívar kvensjúkdómalækni þar en hann er að operera þar 1-2x viku. Staffið veit núna allt um Ísland - það upphófust miklar umræður um ísl. hákarl skömmu áður en ég fór heim þannig ég kom með sýnishorn handa þeim þegar ég kom tilbaka, og smá súkkulaði til að kæfa eftirbragðið. Veit ekki hvort það var góð landkynning eða ekki.... fólk mun alla vegna ekki fjölmenna til Íslands á Þorrablótstima.

Í síðustu viku byrjaði ég svo á Háls-nef- og eyrnadeildinni. Það er alveg ótrúlega þægileg rotation. Fáir sjúklingar á teyminu og frekar afslöppuð stemmning. Þeir gera mikið af facio-cranal reconstructions sem er alveg magnað að sjá. Líka mikið af því að fjarlægja tumora af raddböndum, laryngx, tungunni (og endurbyggja upp nýja tungu í sömu aðgerð) og fleira. Mjög mikið af svona stórum 10-12 tíma aðgerðum. Mjög áhugavert - eiginlega allt öðru vísi en ég var búin að sjá HNE fyrir mér, enda roteraði ég aldrei á HNE heima.

Annars er nú margt fleira búið að vera í gangi. Fór í skíðaferð um daginn til NH, til Mount Sunapee. Það var frábært að komast á skíði, það getur að ég fari næstu helgi líka. Það eru nokkrar myndir frá Mt. Sunpee á flickr síðunni. Síðan er ég búin að fara dáldið mikið út að borða, fór á Pho Republic um daginn sem er dáldið svalur Víetnamskur staður á Washington street, fór á Aquitaine, franskan stað í South End um helgina, í kampavínsdrykkju uppi í Prudential turni, á fremur slakan ítalskan í North End á laugardagskvöldið (EUNO, mæli ekki með honum) og á litla hip og kúl skemmtistaðinn Milkyway í Jamaica Plain sem var frábær staður. Reyndar var maturinn þar alveg glataður en spænka hip hop hljómsveitin og rapparinn ASN sem stigu á svið voru góðir. Og keilusalurinn inn af sviðinu - þar sem skakkfætt ungmenni spiluðu keilu með bjór í annarri, undir rapptónunum.
Svo er dáldið af gestum á ferðinni í janúar. M.a kom Jóhann Páll við í Boston á leið sinni í USMLE II og viðtal í Dartmouth og Sigurdís kemur um næstu helgi í sín viðtöl. Já, svo vorum við Margrét að byrja að spila skvass :)

Ég er aðeins byrjuð að kíkja í kringum mig með nýtt húsnæði. Eins og íbúðin mín er nú frábær þá langar mig að flytja nær Mass General áður en ég byrja þar í sumar. Langar að vera í hjóla/göngufæri. Svo er ég mikið að spá hvort ég eigi að reyna að kaupa eða halda áfram að leigja....

3 comments:

Anonymous said...

Hæ! Hvernig lýst þér á hitting á föstudagskvöldið? Get líklegast komist til þín seinni part dags, og ef húsrými leifir gist og látið brósen sækja mig á laugardaginn....Reyndi að senda þér mail, en eitthvað klikkaði, svo nú sér þingheimur öll mín plön.....

Kveðjam Ása.

Anonymous said...

Kommon!!!! Skíði!!!! "Only for the old and the tragically unhipp...." Hvað varð um brettapíuna ógurlegu???? Action Ólöf???

Hef reyndar ekki farið mikið sjálf svo ég ætti kannski ekki að góla hátt eða mikið...

Knús, Ása (aftur og nýbúin)

Anonymous said...

Hae Asa. Ertu abyggilega med retta email hja mer? Annars getur thu lika profad oviktorsdottir@partners.org.

Sko, eg er ad fara a skidi (ja, ja, brettataktarnir eru daldid rydgadir en thad stendur til ad lidka tha sem fyrst) um helgina til Vermont! ...en kem heim a laugardagskvoldid. Vid gaetum hist kannski sunnudagskvold thegar eg er buin ad vinna??