Ég, Maggie vinkona mín og nokkrir aðrir vinir hennar leigðum "condo" í Mountain Okemo resort í Vermont um helgina. Það var æði að komast á skíði aftur í vetur og líka í þetta frábæra fjall sem var með 106 leiðum og 19 lyftum.
Þetta var ekkert smá mikil lúxus-condo, með arni, heitum potti, skiboot þurrkara og ég veit ekki hvað.
Útsýnið úr lyftunum var svona - ekki fyrir lofthrædda.
Ljósbláa tískan var augljóslega aðalmálið í brekkunum og Maggie lét að sjálfsögðu ekki sitt eftir liggja.
Partur af skíðagenginu: Maggie enskukennari, Sarah spænskukennari og Brian sögukennari sem kenna öll í skóla sem er einmitt rétt við hliðina á Brigham. Og Becka brettagella konan hans Brians. Hinum megin við borðið sátu svo gaurarnir sem voru of uppteknir við að borða franskar til að láta mynda sig.
Þetta var rosaskemmtilegur hópur og það er stefnt að annarri skíðaferð sem fyrst!! Vermont rúlar!
Annars er Super Bowl í kvöld og Super Tuesday á þriðjudaginn. Alls kyns super stemmning í Boston þessa dagana. Ég er einmitt á leið á Muddy´s (MIT barinn) með fullt af fólki að horfa á leikinn, auglýsingarnar - sem eru ekki minna mál en leikurinn sjálfur. Þetta er stærsti sjónvarpsviðburðurinn í USA og fyrirtækin keppast um auglýsingatímann og frumsýna gjarnan nýjar "must see" auglýsingar. Hljómar dáldið crazy en eins og sumir vita þá hafa auglýsingar lengi verið í uppáhaldi hjá undirritaðri.. frá unga aldri :)
Á Ofur þriðjudeginum eru svo forkosningar í 24 fylkjum fyrir forsetakosningarnar, m.a. í Massachusetts. Það er ótrúlega súrt að fá ekki að kjósa.
Sem sagt super stemmning - og ég er farin að horfa á leikinn...... bæjó.
VT= Vermont
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, February 03, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment