End of the Year partý

Myndir frá útskriftarveislunni í gærkvöldi. Öllum unglæknunum var boðið til að fagna með útskriftarárgangnum. Rosalega flottur dinner á Boston Harbor Hotel þar sem var spilað fyrir dansi fram á rauða nótt þangað til það var haldið í eftirpartý sem fór fram á rooftop garðinum hjá einum skurðlækninum í South End þangað til sólin kom upp.


Við hafnarbakkann, fyrir aftan the Wharf room á Boston Harbor, fordrykkir, sushi, skútur og beint útsýni á flugvöllinn handan hafnarinnar þar sem maður fylgdist með vélunum koma og fara. Mjög flott. Mér hefur alltaf fundist eitthvað heillandi við að fylgjast með flugvélum taka á loft og lenda (jájá, dáldið spes).

Mehrdad að fá sér sjávarfang í for-forrétt.

Hljómsveitin að koma sér fyrir í bakgrunninum.

Forrétturinn. Risa hörpuskel og Sauvignon Blanc.

Susie og ég, glöggir taka eftir svipuðum hárstíl enda erum við Susie Q báðar klipptar af Jensy, stórkostlegum klippara frá Puerto Rico, sem við elskum.

6 comments:

Anonymous said...

Hæ elsku Ólöf, rosalega hlakka ég til að sjá þig. Til hamingju með útskriftina. Gott að vera búin með þetta. Ég verð að komast í klippingu hjá þessum klippara.

Kveðja, Magga R.

Áslaug said...

Glæsilegt! En þið áttuð þetta skilið eftir veturinn. Nú er bara sumar og sól, camping, Ísland (og smárigning) og Costa Rica framundan. Ekki amalegt!
Þín mamma

Anonymous said...

Til lukku með að vera búin með þetta :)
-mvb

Anonymous said...

TIl hamingju með að hafa lokið af þessum áfanga. Verður frábært fyrir þig að fara í frí.
P.s. þú tekur þig vel út í kjólnum góða (minnir mig á að ég á einn svipaðan uppi í skáp!)
Bestu kveðjur úr hólminum
Kolla

Anonymous said...

Til hamingju með þennan áfanga elsku Ólöf mín!! Nú átt þú skilið mjög gott frí eftir þennan strembna vetur svo ekki sé meira sagt. Sé þig á klakanum - við getum nú haft míní skutlu party......! Kv,Sigrún

Unknown said...

Vá, flott kvöld :)
Hlakka til að sjá þig eftir 5 daga!