32 Braddock Park

Það er helst í fréttum að ég er komin með nýja íbúð frá 1.september. Þann dag flyt ég (eins og meirihluti Bostonbúa - skil nú ekki hvernig það fungerar! "The big move day" jájá) úr Roxbury og í siðmenninguna í South End. Fann þessa líka svakafínu íbúð á Braddock Park sem er ein af fínni götum bæjarins (að mínu mati amk) - kannski jafnvel dáldið snobbað hvefi, alla vegna þurfti Condo Trust hússins að samþykkja veru mína í húsinu (Condo Trust hljómar mjög civilized)- held þeir hafi fallið fyrir starfsheitinu resident. Ekki af því það er svo fancy að vera læknir heldur af því þeir vita hvað ég verð lítið heima... þ.a.l. lítill séns á hávaða og látum, lítil notkun á garðinum og lítil brunahætta þar sem kokkahæfileikarnir eru lítið í notkun svona seint á kvöldin eftir vinnu.
Þessi "park" er rétt bak við Prudential Centrið (fyrir þá sem eru kunnugir staðarháttum) á mörkum Back Bay og South End. Æðislegur göngustígur sem liggur í gegnum South End bara við bakgarðinn og tennisvellir, sólblómabeð og kryddjurtagarðar allt um kring.
Svona er týpiskt hús á Braddock Park

Annars er mikið stuð í lítlu íbúðinni á Fort Ave þessa dagana. Sigurdís kom um miðjan júní og ætlar að passa húsið í sumar og svo kom Álfrún systir í gær. Svo förum við systurnar til Los Angeles á föstudag, lendum í miðri Independence flugeldasýningu um kvöldið. Spurning hvort maður chillar á Beverly Hills hótelinu okkar um kvöldið eða förum út og finnum 4.júlí gleðskap einhvers staðar.

2 comments:

Anonymous said...

Hæhó!
Innilega til hamingju með íbúðina...hljómar ekkert smá vel! Ætla þokkalega að kíkja í heimsókn einhvern tímann fljótlega...
Þakka annars kærlega fyrir afmæliskortið, ekki verra að fá alvörupóst í nýja pósthólfið í Svíþjóð!
Hlakka svo til að fá þig í heimsókn, það verður jættebra!

Knús!
Steinkan (EKKI Sveinkan)

Anonymous said...

Til hamingju...með íbúð, sumar, endalok internferilsins etc etc... Sé að við verðum alveg í kross í sumar, ég fer út 22. júlí og kem heim 11. ágúst....ojæja, það koma Boston ferðir eftir þessa ferð...

Knús að norðan, Ása.