Fyrsta alvöru stormviðvörunin síðan ég flutti til Boston skekur nú allar sjónvarpsstöðvar í fylkinu. Hurricane Hannah stefnir upp með ströndum Boston! I fyrramálið á hann að ná hámarki með allt að 70 mph vindhraða og auðvitað rosarigningu. Það er m.a.s. varað við flóðum og hana nú! Og nema hvað, það er ekki nema 6 dagar síðan ég flutti í nýju íbúðina mína, sem er á JARÐHÆÐ!!! Fjúffff, gott ég fékk mér innbústryggingu sem tók einmitt gildi í fyrradag :)
Svona lítur Hanna út á gervihnattamyndum, þarna er hún við Flórida strendur kl.11 í morgun. Agalega litskrúðug og fín
Svo í bónus er hér ein mynd af mér og tutornum mínum honum Stu Forman. Þarna erum við í gríðarstuði í urologiskri laser aðgerð (ef einhver skyldi vera að velta fyrir sér þessum gleraugnaútbúnaði - spes speisuð laser goggles (eða googles eins og ég bar það fram fyrst! you know, eins og leitarvélin, já eða ekki, ahemm!). Hann er hress gaur, er með mér 24/7 fyrstu 2 vikurnar og eys yfir mig svæfingarfróðleik af miklum krafti eins og sjá má.
Hurricane Hanna
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, September 06, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Og hvernig var svo stormurinn? Flæddi nokkuð inn? Gastu ekki notað googlurnar þínar í rigningunni? Mamma
Hanna var búin að umbreytast í Tropical Storm þegar hún gerði innrás í gærkvöldi. Það var bara heitt og rakt og svo kom rosademba (akkúrat þegar ég var að labba um financial hverfið á háum hælum) og brjálaður vindur í nokkra tíma. That´s it! Hehe, ég hefði ábyggilega tekið mig vel út með googlurnar á djamminu...
Það er ekkert slegið af í pæjustandardinum þarna í USA. Á háum hælum þrátt fyrir stormviðvaranir. Þetta líst mér nú vel á.
Takk annars fyrir mig eftir lesturinn. Eins og alltaf viðburðarríkt í kringum þig Ólöf mín!
kveðja úr pestarbælinu í dalum, Kópavogi, Iceland
Addý
Post a Comment