Sumar myndir eða sumarmyndir

Í tilefni þess að ég fann myndavélina mína aftur eftir flutninga um síðustu mánaðarmót fannst mér nú alveg tilvalið að skella inn nokkrum myndum frá því í sumar.

Við Álfrún byrjuðum í Los Angeles. Flugum þangað 4.júlí og byrjuðum ferðina niður á Santa Monica Pier í leit að flugeldasýningu.


Eftir skoðunarferð um Hollywood

og Universal Studios

og skemmtilegan dag með Heiðrúnu, Orra og Ragnari Orra á Venice Beach


lögðum við land undir fót (eða mini-van, nánar tiltekið). Við vorum í 14 manna hóp og ferðuðumst um í litlum mini-van frá LA til San Francisco. Fyrsta stopp var við bakka Colorado River í Arizona eyðmörkinni. Það var svo heitt þessa nótt að við sváfum öll undir berum himni, þar sem það hefði orðið alveg ólíft í tjöldunum. Sem betur fer létu snákar, sporðdrekar, sléttuúlfar og öll hin eyðimerkurdýrin okkur í friði.

Við héldum áfram í gegnum Arizona eyðimörkina

eftir Route 66 (þar sem árið var enn 1945)

og komum svo að hinu ótrúlega magnaða Grand Canyon



þar sem við gistum yfir nótt og fórum í langt hike áleiðis niður í gilið - sem er meira en 1km djúpt.


Eftir að hafa síðan vaknað fyrir allar aldir til að sjá sólarupprásina yfir gilinu

var síðan haldið til Las Vegas. Vegas var geggjuð, algjör upplifun! Ég bjóst við að þetta væri allt saman hálf sleezy en Vegas rokkaði! Það var 50 stiga hiti þar en það var góð loftkæling í spilavítunum og svalandi í sundlaugunum.



Derek vinur minn sem býr í Phoenix, AZ, keyrði uppeftir og var með okkur einn sólarhring.

Fórum í partyrútu

og að sjálfsögðu létum við reyna á gæfuna í spilavítunum


meira seinna.... annars er verið að skipuleggja næstu ferð. Skíðaferð til Lake Tahoe, fyrrum höfuðstöðvum Vetrarólympíuleikanna, um áramótin. Ooohhh, er farin að hlakka til :)

3 comments:

Valdís said...

Gaman að sjá myndir:) Ég var farin að halda að Hurricane Hanna hefði feykt þér út á haf!

Ólöf Viktorsdóttir said...

Haha, nei Hanna var ljúf sem lamb.
Andinn hefur ekki verið yfir mér sem slíkur síðustu vikurnar eftir strembna flutninga í nýja fína hverfið, intensívan tutorial mánuð í nýja prógramminu og vandræðagangi tengdum svæsnu innbroti í bílinn minn góða. En nú stefnir í betri blogg-tíð :)

Unknown said...

Vá! en gaman að skoða myndirnar frá ferðalaginu ykkar. Þetta lítur út fyrir að hafa verið ógleymanlegt.
Besta kveðja, frá öllum á Mánagötunni!