Foreldrahus

Nú sit ég úti á svölunum á Vesturvallagötunni, á bikini, með svaladrykk í annarri og sólarvörn í hinni og hef það alveg agalega gott í sólinni. Þannig á það líka að vera þegar maður er fluttur aftur heim til foreldranna, sei sei já. Hið ljúfa líf í foreldrahúsum! Dýrindis kræsingar í öll mál, allt skínandi fínt og ekkert drasl, þvotturinn færður manni nýstraujaður, engir reikningar að hugsa um o.s.frv..... Hljómar vel, ekki satt!

Ahemm. Ég er sem sagt flutt aftur í foreldrahús eftir að hafa staðið í þvílíkum búslóðaflutningum síðustu daga. Endalausar Sorpuferðir (við erum að tala um það að Sorpufólkið er farið að segja "Bleeeeesuð"), dílingar við furðulegt fólk af Barnaland.is (þar sem fróðir menn bentu mér á að auglýsa afgangs eigur mínar til sölu) og þursabit magna grada eftir kassalyftingar. Í gær var síðan flutningsdagurinn mikli sem gekk rosa vel með góðri aðstoð flutningsteymisins míns. Álfrún systir, Ásgerður frænka, Orri nágranni, Hrafn og Agnar frændi gengu vasklega til verks og rumpuðum við þessu af á 2 tímum. Þar með flutti ég aftur í foreldrahús.

Æ, Æ, Æ, kemur í ljós að foreldrarnir eru bara staddir í útlöndum!!!!! (...hér á að hljóma Jaws lagið...). Nú versanaði aldeilis í því!

Staðan er sem sagt þannig núna: kassar og búslóð út um ALLA íbúð (gjörsamlega alla íbúð) þar sem ég arfleiddi Álfrúnu að mest öllum eigum mínum fyrir nýju íbúðina hennar (sem hún fær einmitt ekki afhenta fyrr en um miðjan júlí...þannig dvalarstaður búslóðarinnar mun vera hér þangað til). Það er bónus, bónusinn er er nokkurra daga uppvask í vaskinum, ekkert til í ísskápnum og þvottavélin biluð...... Við systurnar tökum þessu þó vel, með jafnaðargeði og léttri lund.
Það væri reyndar athyglisvert að vita hvað "Allt-í-drasli" fólki myndi hafa að segja um íbúðina foreldra minna núna.

Hey, það er nú samt sól á svölunum, það var hægt að blanda einn svaladrykk og ég dró bíkínið fram úr einni fatahrúgunni, þannig þetta er nú ekki svo slæmt eftir allt saman :)

Vill einhver eignast:


- sætustu kisu í heimi
- borðtölvu og flatskjá (geðveikt svalur skjár, í alvöru)
- gamlan körfustól í stofuna
- eitthvað af mínum ótalmörgu CDs
- sætustu kisu í heimi
- alls kyns læknisfræðibækur
- ótrúlega spennandi reyfara á náttborðið
- bókahillur úr IKEA
- sætustu kisu í heimi
- gömul svigskíði (en alveg fín - þyfti kannski bara að vaxa þau aðeins...) OG skíðaskó
- fullt af litríkum blómapottum
- grænan teketil (te er hollt og gott)
- töfrasprota í eldhúsið
- kaffikönnu
- sætustu kisu í heimi?

Ef einhver þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem vill fá hana loðnu silfurgráu Skottu mína í fóstur þá yrði ég alveg svakalega glöð. Það er eitthvað mjög sorglegt við það að þurfa að fara með hana í Kattholt. Var ég búin að segja hvað hún er sæt :)
Það er alla vegna nóg af búslóð í boði fyrir þá sem vilja og þora....

Fort Avenue


91 Fort Avenue, Unit 3
Fort Hill
Boston
MA 02119
USA

Nýja heimilisfangið mitt!

Vor i Boston


Bloggedí blogg.

Ætla að prófa bloggheiminn!
Ég er sem sagt að yfirgefa Ísland í bili og flytja til Boston. Tilgangur þessarar síðu er fyrst og fremst að þjóna sem fréttavefur frá Baunabæ fyrir vini og velunnara :)

Ég heimsótti Boston í síðustu viku, bæði til að kíkja á tilvonandi heimkynni mín auk þess sem ég sótti þennan líka fína Harvard review kúrs í svæfingum. Kúrsinn var frábær - fullt af fínum fyrirlestrum. Gaman að fá nasaþef af því sem koma skal. Einn og einn fyrirlesturinn var þó minna spennandi og var því tilvalið að skella sér aðeins í búðarölt inn á milli. AAahhhh, ég elska að versla í USA.
Það var svo líka geðveikt veður - kirsuberjatrén í blóma og allir að spóka sig um í stuttum pilsum og hlýrabolum. Lofar góðu!

Ég fór og hitti tilvonandi leigusalann minn, hann Chris - samkynhneigða hjúkrunarfræðinginn sem ætlar að leigja mér risíbúðina sína í Roxbury. Hann fór með mig í rúnt um borgina og sýndi mér íbúðina. Þetta er 3ja herb. íbúð með RISAsvölum (jibbý). Býður aldeilis upp á hvítvínsdrykkju á heitum sumarkvöldum eins og vera ber. Síðan eru a.m.k. einn múrsteinsveggur í hverju herbergi (hversu svalt er það!), gaseldavél, þakgluggar, rosa útsýni, hátt til lofts og auðvitað sniðugir nágrannar! Enda set ég skilyrði að nágrannar séu spes - enda vita nú flestir að ég þekki ekkert annað... ;-)
Stelpan á 2. hæð er sem sagt ca. þrítug með massavöðva, tattoo og dredda og vinnur sem gengilbeina á thailenskum veitingastað í nágreninu. Hún á líka chihuahua hund a la Paris Hilton. Stóra planið er að koma sér vel í mjúkinn hjá henni, enda ekki slæmur díll að ganga að nýlöguðu Pad Thai eftir langar vaktir - stórsnjallt! Vona að hún sigi ekki hundinum á mig.....

Ég er búin að kaupa mér miða út 3. júní. Bara 20 dagar þangað til....