Fór í viðtal í Ameríska sendiráðið í dag.
Ég hef oft gengið þarna fram hjá á leið í vinnuna og alltaf fengið svona nettan hroll niður bakið þegar ég mæti 2 vopnuðum öryggisvörðum við dyrnar. Eftir að hafa sýnt skilríki í bak og fyrir var mér hleypt inn fyrir dyr. Þar fór ég í gegnum vopnaleitartæki og taskan mín var sett í röntgenmynd en síðan hófst hið formlega viðtal við umboðsmann USA á Íslandi.
Hann spurði mig 3ja spurninga , sá að ég hef hvorki útlit hryðjuverkakonu né eiturlyfjabarónessu (Tollverðir á Keflavíkurflugvelli hafa reyndar aldrei verið sammála..) og ég fékk visað. Ég var ekki einu sinni spurð hvort ég væri afkomandi Nasista (hélt að sú spurning væri gefin!). Til að hleypa smá stemmningu í viðtalið reyndi ég m.a.s. að telja honum trú um að ég væri að fara flytja lifandi búfénað inn í landið - en hann trúði mér ekki.
Þannig var nú það, sem sagt mun minna mál að fá visað en að KOMAST INN í sjálft sendiráðið. Athyglisvert.
Kv.Ólöf
Hér með löglegur innflytjandi í BNA
Sendiráðið
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, June 01, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gott að allt gekk vel...
kveðja Dögg
Kveðja frá mömmu
Nú ert þú flutt úr forledrahúsum í annað sinn. Gangi þér vel í Ameríkunni, elsku Ólöf.
Þín mamma
Ég trúi ekki að þeir skuli hafa hleypt þér inn í landið.
Pétur.
Sael Olof
Sendi kvedju til Boston, vona ad allt gangi vel
Kvedja
Bjarni fraendi
Hæ Olsó!
Við Steinka erum nýkomnar frá Úlú, gerðum allt crazy þar!!!
Átti svo 2 góða daga í DK í 30°C hita og sól :o)
Gott að heyra að sendiráðsmál hafi gengið vel.
En hvernig hefur svo gengið að flytja inn í nýju íbúðina?
Kv.
Sísí
Post a Comment