White Coats



Glaðbeittir ungir menn á góðri stundu!
Ég fann þessa mynd á netinu en svona líta slopparnir okkar út. Læknanemar og residentar þurfa að vera í svona stuttum sloppum en það er ekki fyrr en maður er búin að standast board prófin og hljóta nafnbótina sérfræðingur að manni leyfist ganga um í "alvöru" white coat. Fyrst fannst mér þetta nú frekar bjánalegt en ég er búin að sjá marga kosti við stutta sloppinn og er eiginlega komin á þá skoðun að hann sé bara miklu betri en sá síði.

- Í fyrsta lagi hentar stutti sloppurinn kvenlegum vexti mun betur en sá síði, maður fær svona "jakka"fíling. Getur jafnvel ímyndað sér að maður sé á leiðinni í kokteil... Ég er að spá í að setja tillögu í hugmyndakassann þeirra að hafa þá aðsniðna líka ;)
- Í öðru lagi eru þeir ekki að flækjast í hurðarhúnum, rúmgöflum eða borðhornum eða klemmast milli lyftuhurða en ég upplifði endurtekið með síðu Landsa-sloppana.
- Þeir eru með 4 vösum (þ.m.t. einum innaná-vasa!) -Aha!
- Þeir flaksast ekki eins mikið ef það er rok (eða ef maður er á svo mikilli hraðferð að það er eins og það sé rok).
- Svo eru þeir bara hip og kúl.

Veit ekki hvort fólk er sammála mér samt....

4 comments:

Unknown said...

Hæ syssa,
ætlarðu ekki að fara að setja myndir af íbúðinni þinni, eftir þínar lagfæringar og innréttingar, á myndasíðuna þín? Ég er svo spennt að sjá hvað það er fínt hjá þér...

Annars hef ég ekki miklar skoðanir á sloppunum :) ég hef ekki mikla reynslu af þeim en gott að þú hefur nóg um að hugsa ;)

Kossar og knús
Ára

Anonymous said...

Jakkarnir virðast í lagi. Nú vantar bara mynd af þér í jakkanum!

Magga said...

Mjög kúl!
Væri alveg til í svona jakka en aðsnið er alveg möst

Anonymous said...

flaksast minna í roki...hahahahaa! Dýralæknirinn ætti kannski að spá í því...