
Ég er frá og með í dag orðinn stoltur eigandi þessa fallega silfurlitaða Toyota Camry!!
Eftir nokkrar spekúlationir af minni hálfu ákvað ég að skella mér á einn slíkan. Það sem spilaði m.a. sterklega inn í þessa ákvörðun var gríðarlegur sjarmi sölumannsins Alexey (ættaður frá Kasakstan!!). Alexey fór með mig í 4 bíltúra þar sem keyrt var um í Boston-umferðinni (sem er alræmd), keyrt 4 sinnum yfir lestarteina og einu sinni á móti umferð. Ahemm, það var víst ég samt sem var undir stýri. Síðan sýndi hann mér digital myndir af heimaborg sinni Alma-Ada og raulaði fyrir mig kasaktan-ískan lagstúf. Eftir þetta var ekki annað hægt en að fjárfesta í þessum svakalega fína bíl. Hann er m.a.s. með topplúgu.
Ætli það verði svo ekki Sigurdís sem fær heiðurinn af fyrsta bíltúrnum en hún er að koma í heimsókn eftir viku! Hún fær líka heiðurinn af því að vera fyrsti gesturinn minn. Go Sigurdís!
Camry 2007
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, July 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Way to go!! Til hamingju með kaggann. Nú geturðu siglt um Boston með opna topplúgu og bassann í botni :) Gætir jafnvel kynnt Bostonbúum fyrir Sálinni og Hebba Gumm ;) Kveðjur frá NY
Vá, flottur bíll. Passaðu nú upp á Sigurdísi.
Til hamingju með bílinn, kalla Sigurdísi góða ef hún treystir sér í bíltúr eftir þessar lýsingar.
kv
Kolla
Hæ pæja!
Til hamingju með þessa glæsilegu bifreið! Áfram Sigurdís!
Kveðja úr hitabylgjunni í miðbæ Reykjavíkur
Hæ Ólöf!
Gaman að kíkja á bloggið þitt!!
Ekki laust við að það bregði fyrir smá öfund út í þig, þér tekst að láta þetta hljóma e-ð svo vel!
Bið að heilsa Elfu Þöll og Gunnari, við Elfa vorum einmitt saman í MA á sínum tíma. Gæti líka hafa hitt "nýjasta besta vin þinn" í DKNY búðinni í vor, er hann ekki frekar lágvaxinn og grannur og vel kvenlegur í háttum? Valdi fyrir mig sólgleraugu, sagðist vera alger "sólgleraugna-hóra" ef ég man rétt.....
Hafðu það gott!
Kv Imba.
Til hamingju! Allt í lagi að fara yfir lestarteina (ef þú bara passar að stoppa ekki á þeim miðjum) en alls ekki að keyra á móti umferð ... Ma
til hamingju með nýja bílinn...
ekkert smá flottur og keyrðu svo varlega!!!!
Kveðja Dögg
Hæ Ólöf! Rakst á síðuna þína í gegnum Steinunnar síðu.
Gangi þér allt í haginn, þetta hljómar allt mjög spennandi hjá þér :)
Eg thakka hamingjuoskir :) ..og varnadarord.
Hrafn og Stina: Ekki spurning! Fann lika gamlan CD med Megasi - mun trylla lydinn med hans adstod.
Petur, Kolla og Steinunn: Eg mun passa upp a Sigurdisi, enda er hun bjartasta vonin sem tilvonandi nagranni minn. Hun mun fa tad hlutverk ad standa upp og veifa til folksins gegum toppluguna og taka undir i vidlaginu med Megasi. Ekki slaemt hlutskipti tad!
Imba: Eg skila kvedju, var einmitt i BBQ partyi a svolunum teirra sidustu helgi. Og tu hefur greinilega hitt hann Josh - uppahalds-verslunarmanninn minn (ad undanskildum Alexey fra Kasakstan).
Moms: Takk, tad eru lestarteinar a leidinni i vinnuna - en eg lofa ad passa mig.
Dogg og Imba: Takk fyrir tad. Tid erud avallt velkomnar i heimsokn. Lofa godum biltur i skvisubilnum :)
Til hamingju með kaggann, hann er rosalega flottur :)
Til hamingju med bilinn.
Post a Comment