Ég kem yfirleitt heim úr vinnunni milli 6 og 7. Samkvæmt vísindalegum útreikningum á maður að sofa í átta tíma til vera hress og sprækur að morgni. Þar sem ég vakna kl.5 á hverjum morgni þýðir það að til að framfylgja þessari ágætu reglu þarf ég að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Það gefur mér 2-3 tíma til að gera eitthvað annað áður ég skríð í bólið. Ég er búin að sjá það út að maður gerir bara eitthvað eitt!
Hvort sem það er að fara í ræktina (www.fitcorp.com), út að hlaupa, í bíó, elda mat, fara í súpermarketinn (ég er alltaf svo lengi þar - finnst svo gaman að browsa um búðina) eða fá sér bjór með kirurgunum (alltaf á fimmtudögum á spítalabarnum) þá gerir maður bara eitthvað eitt eigi tímamörkin að standa. Þrátt fyrir það tekst manni SAMT yfirleitt ekki að standast tímamörkin - a.m.k. ekki hingað til. Besti tíminn minn frá upphafi er að vera sofnuð kl. 22.15!
Með gríðarlegri útsjónarsemi tókst mér í kvöld að sameina 2 viðburði í einn! Ég þurfti nefnilega nauðsynlega að fara í búð og þurfti einnig nauðsynlega að hreyfa mig eitthvað. Eftir miklar spekúlasjónir ákvað ég að:
- Keyra á bílnum að bílastæðinu á Trader Joe´s (sem er langbesti súpermarkaðurinn - efni í heilt blogg). 19.35,
- Lagði þar laumulega í eitt hornið (það er nefnilega bara 1 klst. hámarkstími á bílastæðinu). 19.45
- Joggaði um Brookline og Cambridge og sneri aftur að TJ. 20.30
- Verslaði (á stuttbuxunum - góður fílíngur!) á 45 mín (ég veit, ég veit, óþarfa mínútum kannski eytt þar). 21.15
- Kom heim 21.25 - rétt yfir tímamörkum.
- Skemmdi síðan allt saman með því að fara á netið..... og skrifa þessi töluðu orð. Nú er kl. 22.15. Mun sem sagt ekki slá eigið met í kvöld.
Annars var næturvaktin á laugardagskvöldið algjört djók. Ég var á vakt fyrir the Cutler Service (sem er teymið mitt - efri gastro). Það er sambærilegt við að vera á vakt fyrir eina deild heima, t.d. á vakt fyrir krabbameinsdeildina eingöngu. Bráðalæknarnir sjá um allar innlagnir sem koma inn um bráðamóttökuna þannig maður er beinlínis bara á húsvakt fyrir sitt teymi. Ég fékk 4 píp fyrir kl.4 um morguninn (vaktin byrjaði 6 pm), svaf samfleytt í 4 tíma og notaði síðan síðustu 2 tímana af þessari 12 tíma vakt til að undirbúa morgunstofuganginn sem hefst alltaf á slaginu 6. Næs! Auk þess sjá hjúkkurnar um allar blóðræktanir, beiðnaútfyllingar, EKG og þvíumlíkt. Þetta er víst samt ekki alveg svona fínt á virkum dögum skilst mér...
Og já, ég er fara til NY um næstu helgi að hitta Hrafn og Stínu. Jei :)
Og já, eitt annað. Það er 4.júlí á morgun - Þjóðhátíðardagurinn sjálfur. Það verður spennadi að sjá hvort cafeterian bjóði upp á kræsingar á tyllidögum, líkt og Landsinn. Laxarúlla og ratatoille.. eða kannski ekki.
Nú er kl.22.30 - uss suss uss!
Maður gerir bara eitthvað eitt....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, July 04, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Mamma segir: Ertu alltaf á 12 tíma vöktum??!? Það er frá sex til sex? Hvílíkur þrældómur ...
effektív!! Like your planning. Og frábært að versla á stuttbuxunum!
Æði að heyra að vaktirnar séu þolanlegar. Er svefnaðstaðan í kojum eins og í Greys eða á skoðunarbekkjum eins og í E.R?
Post a Comment