
Fyrsti frídagurinn minn!!! Verð í fríi alveg þangað til á mánudaginn eftir rúma viku. Fyrsti frídagurinn var helgaður grillveislum. Fyrra BBQ dagsins var haldið í litlum garði í South End. Alexis og Nico (Amerískt-franskt par) hóuðu saman fólki til að kveðja Ritu og Greg (Amerískt - Portugalskt par) sem eru að flytja til Portugal. Alexis og Nico eru snilldarkokkar, Nico var grillmeister og það var boðið upp á grilluð svínarif, svínaöxl (pork shoulder!-furðulegur réttur) og kjúkling sem var heilsteiktur á grillinu ásamt endalaust miklu meðlæti. Frönsk rauðvín og þýskur hveitibjór var drukkinn með og síðan 4 tegundir af kökum í desert. Eftir 4ra klukkustunda veisluhöld í Bradford Street Park hjólaði ég af stað (slightly tipsy) í næstu veislu...
BBQ dagurinn mikli
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, September 17, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Fyrsti frídagurinn? Hvað meinarðu, hefurðu ekki átt frí einhverja sunnudaga??? - hmmm.... annars hljómar þessi softball vel :o)
Kv. Sigurdís
Priceless (algjört lágmark að byrja komment á slangri í svona ekta ameríkubloggi ;).... sé þig fyrir mér reyna að drífa síðustu metrana heim, máttlaus vegna grillgrjóts í maga. Sá í fyrri færslu minnst á Möggu nokkra í MIT.. það skyldi þó ekki vera Margrét Vilborg, Röskvuvinkona okkar Gumma? Ef svo er bið ég þig að skila góðri kveðju til hennar.
kærar kveðjur úr regnlandinu
Addý
Jújújú, ég hef átt marga frí marga sunnudaga. Þetta var fyrsti frídagurinn í haustfríinu mínu sem varir í 9 daga....
Addý, jú þetta er nefnilega hún Margrét Vilborg! Ég átti einmitt að skila kveðju til ykkar Gumma líka :) Við Margrét vorum einmitt að skrá okkur í þetta: http://www.greaturbanrace.com sem verður í október.
Kv. Ólöf
mmm, amerísk grillveisla hljómar vel!!!
Tipsy á hjóli vekur minningar ...
Knús
Magga
Ó mæ gaaad hvað þetta hljómar allt spennandi og skemmtilegt!! Við erum hér alveg græn af öfund:-)
Já, softball leynir á sér. Ég spilaði þetta heilan vetur í "high school" þegar ég var ung;-) Skildi leikinn aldrei alveg 100% en skemmti mér samt konunglega;-)
Hafðu það áfram ofsalega gott góða skemmtun í Maine.
Knús og kram,
Stína og Hrafn
Mmmmm ... Í rigningunni og kuldanum hér heima þessa stundina hljómar svona amerísk grillveisla ótrúlega vel. Jæja, það eiga samt að vera heimatilbúnar pizzur í matinn í kvöld.
Mamma
Post a Comment