Það var verið að mana mig í að taka þátt í hálfmaraþoni 11.nóvember. Það ríkir algjör hlaupamanía hér í Boston, alls staðar má sjá fólk joggandi um, hvaða tíma sólarhringsins sem er.
Margrét, stelpa sem býr hér í Boston, og nokkrir vinir hennar ætla að hlaupa hálfmaraþon sem er í New Hampshire i nóv. Hljómar alveg frábærlega, það er hlaupið í gegnum nokkra litla bæi og eftir strandlengjunni í New Hamshire.
Þannig að eftir vinnu í dag, reimaði ég á mig hlaupaskóna og keyrði upp í MIT þar sem ég hitti Möggu. Hún var búin senda mér eitthvað svakafínt hlaupaprógramm sem hún fer eftir. Við hlupum síðan góðan hring meðfram Charles River, sem var alveg frábært í ljósaskiptunum. 3.8 mílur = 6.1 km. Það er alveg 1/3 af hálfu maraþoni - ekki slæmt. Við ætlum aftur á fimmtudag!!
Ég efast nú samt um að ég geti tekið þátt í hálfmaraþoninu. Í fyrsta lagi reikna ég með að vera á vakt þessa helgi (þar sem ég verð vonandi í San Fran helgina á undan með abstractinn minn) og í öðru lagi er ég ekki viss um að ég komist út að hlaupa 4x í viku eins og hlaupaprógrammið góða segir fyrir um sökum anna á spítalanum. Já, og auk þess var ég að skrá mig á tennisnámskeið.
Alla vegna, það má reyna...
Hlaupamania
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, September 05, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Skelltu þér bara í maraþon prógramm og komdu með mér í Boston maraþon í apríl. Skora á þig!! þú hefur 7 mánuði og það er slatti og meira til :-)
Hahaha, já, þú segir nokkuð. Það er aldrei að vita ;-) ....verst með þetta lágmark sem maður þarf að ná.
Ég byrja alla vegna á þessu:
http://www.seacoasthalfmarathon.com
Við fórum aftur í kvöld, í þetta skiptið fórum við fram úr einum hlaupara (sem er meira en seinast)! Tvíefldumst algjörlega við það og fórum hringinn á ca mínútu styttri tíma en síðast - jeiiii :)
Rosalega ertu dugleg. Hvenær finnurðu eiginlega tíman til að hlaupa?
kv Dögg
Heisa,
Hef fulla trú á þér í þessu hálfmaraþoni...
Ég er loksins komin heim og er að fullkomna USA-umsóknina :o)
Kv.
Sigurdís
Eg veit nu ekki alveg hvernig eg hef tima, thetta hefur allt saman pusslast saman a heppilegan hatt! Helgarfriid for samt adallega i svefn ad thessu sinni. 12 timar af 24 alla helgina! Agalega fint og madur er maettur hress i hermannastudid i dag!
Post a Comment