Epla season


Nú er komið epla season. Hér má marka árstímann eftir því hvaða avextir/grænmeti eru í hávegum höfð í matvörubúðunum. Núna gengur allt út á epli. Það er eplatínsluferð einmitt skipulögð eftir 2 vikur á spítalanum á epla-plantekru í nágrenninu. Ég fór í Stop and Shop (hverfis-matvörubúðin mín) í dag og þar voru epli út um allt, rauð epli seld í pokavís, gala epli á 1.29 $ pundið, græn lífræn á smakk-básnum og kona íklædd sveitakonu-búningi að dreifa ókeypis karamelluhúðuðum eplum með hnetukurli. Hef hingað til verið mjög skeptisk á karamelluhúðuð epli en þau reyndust hið mesta hnossgæti!! Fékk líka uppskrift frá búsældarlegu eplakonunni - það verður sem sagt boðið upp á karamelluepli um helgina á mínu heimili!

Þegar ég kom hingað í júní var kirsuberja og jarðaberjatími. Í júlí og ágúst var ferskju- og plómutími og núna er kominn eplatími. Var einmitt líka að uppgötva heitan eplacider með smá dreitil af chai út í..... Mmmmmmm. Svo virðist ferskur aspas líka vera málið í búðunum um þessar mundir. Keypti einmitt gott búnt til að skella á grillið á morgun.

2 comments:

Anonymous said...

þetta vantar alveg á íslandi, í mesta lagi fáum við slátur á haustinn og úldinn mat á þorranum!!!

Mæli með vitundarvakningu

kv Dögg

Ólöf Viktorsdóttir said...

já, þetta er æði :)
Ég sakna nú samt íslensku lifrarpylsunnar!
Það er samt aldrei að vita hverju Wholefoods tekur upp á næst. Þeir selja nú þegar íslenskt skyr, íslenskt vatn og m.a.s. íslenska síld!!