Eftir ekki svo margar æfingar, 2 helgarvaktir og eina San Francisco ferð síðustu 3 vikur tók ég þátt í the Sea Coast Halfmarathon í dag. Við Margrét lögðum af stað klukkan 7 í morgun (hvað leggur maður ekki á sig... og á sunnudagsmorgni!) og keyrðum norður til Portsmouth, New Hamshire þar sem hlaupið var.
Hlaupið byrjaði kl.9 og fólk hafði til kl.12 að komast á leiðarenda. Þetta var ótrúlega falleg leið, eftir ströndinni, inni í skógi og milli lítilla bæja og ekki var verra hvað veðrið var fallegt, sól og heiðskýrt og hitinn rétt ofan við frostmark. Á 10. mílu var maður nú orðinn vel þreyttur (enda aldrei hlaupið lengra en 8,5 mílur á ævi minni) en þetta hafðist og maður kom þreyttur en sæll í mark á undir 2,5 tímum sem var markmiðið! Ég reyndi að miða mig ekki við 74 ára konuna sem fór þetta á 2.09, hvað þá 65 ára konuna sem fór þetta á 1.48...
Hálfmaraþon er 13 mílur = 21 km. Ótrúlegt hvað 13 mílur hljóma mun mun betur en 21 km. Besti parturinn var samt að það var boðið upp á nudd eftir hlaupið - alvöru nudd - í stóru herbergi þar sem voru 10 nuddbekkir, allir sem vildu fengu ca.15 mín. nudd. Það var æði!!
Þá er maður búinn að prófa þetta, er nú samt ekki viss um að leggi nokkurn tímann í maraþon - ef ég geri það, þá verður það gert í amerískum mílum!
11.11.07
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, November 12, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Flott hjá þér!
21 km. ekki lélegt. Ég kemst varla 5 km labbandi ...
Er samt að byrja taka mig á, hef enga afsökun lengur þar sem Ísak er hættur á brjósti.
Ætla í spinning í kvöld og hugsa þá til þín og gömlu góðu dagana í Þokkó. Manstu eftir 2-3 klst. spinnigtímunum á sunnudögum?
O my god! - vid vorum nu alveg rosalegar i den. Madur thyrfti ad byrja a thessu aftur!
Goda skemmtun i spinning i kvold :)
Blessuð!
Til hamingju með þennan stórglæsilega áfanga! Æðislegt!!!
Ætla ekkert að fara út í eigin íþróttamennsku á þessum tímapunkti...
Knús og kossar
Vá til hamingju með þetta, þú ert algjör hetja :) Ég gæti kannski hlaupið 1 km !!! Ég er nú samt mjög dugleg að hjóla hérna í Köben þannig að ég er ekki alveg lost.
Hvernig er það kemurðu til Íslands um jólin? Við ætlum að skella okkur.
Kveðja Svala og co.
Eg var einmitt ad fa ad vita thad i dag ad eg er i 4ra daga frii yfir aramotin.
...for beint a Icelandair.com og tha kostar farid heim >100 thusund kall :(
Veit ekki alveg hvad eg geri. Kannski madur fari bara til NY i stadinn og upplifi stemmninguna a Times Square!
Post a Comment