Síðustu 2 vikur er ég búin að vera að rotera á colo-rectal (ristils-teyminu!?). Það er frekar rólegt þar þessa dagana, datt allt í dúnalogn í kringum Thanksgiving í síðustu viku og er svona smá saman að lifna við aftur. Við "intern-arnir" fáum ekki mikið að fara á skurðstofuna á þessari rotation ;-( ...þar sem aðgerðirnar eru flestar í stærri kantinum og fyrir ofan okkar level. Við erum þó stundum lánuð yfir á brjóstakirurgiuna sem er fínt. Ég held ég sé búin að gera a.m.k. 40-50 brjósta-case síðan ég byrjaði þannig maður er að verða nokkuð sjóaður á þeim slóðum.
Thanksgiving var í síðustu viku. Það er ótrúlega kósý hátíð. Flestir reyna að fara heim til sín og vera með familíunni, borða góðan mat og hafa það huggó. Ég var svo heppin að vera boðin í 2 matarboð!! Ég byrjaði heima hjá Alexis & Niko sem voru með 5 rétta matseðil (!) og fór svo yfir til Margrétar í second portions... Ég fékk svo óvæntan frí úr vinnunni daginn eftir (föstudagur) sem var mjög svo óvæntur en ánægjulegur bónus- ekki veitti af smá hvíld eftir öll veisluföngin. Það var svo enginn griður gefinn á laugardeginum, heldur haldið í afganga til Alexis... margra klukkustunda hádegisboð - sem stóð alveg þangað til ég þurfti að mæta á næturvakt.
Í millitíðinni hafði ég náð að koma mér upp einni svæsinni virosu (glöggir lesendur muna líklegast að það eru ekki nema 2-3 mánuðir frá svæsnustu virosu allra tíma) þannig ég mætti (aftur) raddlaus með snýtuklútana á spítalann. Á spítalanum var mér sagt að fara heim að hvíla mig og bent á að koma við í CVS (apótekinu) og kaupa mér ákveðna hóstamixtúru sem átti að vera allra meina bót. Samviskusamlega gerði ég það og fékk mér vænan sjúss um kvöldið áður en ég skreið upp í rúm í ullarsokkunum. Vissi síðan ekki af mér fyrr en vekjarinn var búinn að hringja vel og lengi morguninn eftir, ég stökk á fætur - alltof sein í vinnuna, en þá vildi ekki betur til en að ég gekk á vegginn(!) já, í alvöru. Allt herbergið snérist í nokkra hringi en einhvern veginn náði ég að koma mér af stað í vinnuna en það tók mig ca. 4 tíma að ná almennilega áttum - ég hef ekki lagt í að lesa innihaldslýsinguna á þessari göróttu mixtúru en hef ekki fengið mér annan sjúss...
Í næstu viku á ég svo 9 daga FRÍ!! Mamma og Álfrún systir eru að koma á föstudaginn og ég hlakka mikið til að sjá þær. Steinunn vermir svo Icelandair-sætin fyrir þær á miðvikudeginum þegar þær fara heim með sömu vél en við tekur ekta góður vinkonuhittingur í aðra 5 daga. Aldeilis ekki slæmur tími framundan! Hér er annars allt að verða rosalega jólalegt, eina sem er algjörlega ekki að gera sig er 17 stiga hitinn sem var í dag - mjöööög furðulegt, sérstaklega eftir frostið í síðustu viku. Annars fer víst kólnandi aftur á næstu dögum þannig ég mæli með að pakka húfu og vettlingum fyrir ykkur Mamms, Ára og Steinka!
Af Thanksgiving, meiri virosu og svæsinni mixturu
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, November 28, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Hæ Ols Hlakka líka mjög til ferðarinnar. Við Álfrún mætum með hangikjöt, Nóa konfekt og fleira íslenskt jólagóðgæti. Þín mamma
Hey, er hægt að nota mixtúruna sem svefnlyf?? Ma
Hlakka til að koma! Vona að þú verðir búin að jafna þig á hurðarlabbinu.
Annars sé ég að þú farin að missa niður íslenskuna og verða bandarískari ("Ég fékk svo óvæntan frí úr vinnunni daginn eftir" ... "mjög svo óvæntur") :-)
Ég er í fríi milli jóla og nýjars og er til í djamm hvenær sem er!!!
Við Grímur erum að skella okkur til Amsterdam í næstu viku að hitta Pétur og Ásgeir. svo er Boston næst á ferðalistanum..
kv Dögg
Frábært - ávallt velkomin :)
Annars finnst rauðvínsklúbbur milli jóla og nýárs nokkuð góð hugmynd... t.d. laugardagskvöldið 29. eða sunnudaginn 30. des.
Er farin að hlakka mikið til að koma heim og hitta alla!
Post a Comment