
Í gær var Halloween. Ég er akkúrat á næturvöktum þessa viku þannig að ég missti því miður af því af aðal Trick´n´treat stemmningunni í bænum en aðalfjörið hefst eftir myrkur. Ég kíkti samt við hjá Elfu og Gunnari áður en ég fór í vinnuna en þau voru að undirbúa Halloween partý, voru búin að skera út þvílíkt flott grasker og útbúa þvílíkar kræsingar. Það var dáldið fríkuð stemmning á spítalanum, hjúkkurnar voru margar í svona Halloween scrub - með myndum af graskerjum, nornum og svörtum köttum og einstaka bráðamóttökuhjúkka var með svarta Dracula hárkollu..... athyglisvert!
Annars er þetta helst að frétta:
* Þvagfæraskurðdeildin er alveg að gera sig. Ég er orðin fullnuma í þvagleggjaísetningum og blöðruhálskirtilsþreifingum! Ég er eina stelpan í teyminu og það er farið með mig alveg eins og prinsessu :) Á nóttunni er ég líka á vakt fyrir lýtateymið og háls, nef og eyrna... jájá, það er ágætt. Lærði til dæmis allt um maxillary sinus brot í nótt þegar ungur maður fannst ráfandi um hótel í Suður-Boston, illa útleikinn með umrætt andlitsbeinabrot. Hann talaði bara útlensku, var í benzó-rússi og gat ekki sagt okkur hvað kom fyrir. Kannski var hann bara í Halloween-partýi!
*Jóhann Páll, tilvonandi þvagfæraskurðlæknir, og Álfheiður voru í Boston um síðustu helgi og það var rosagaman að hitta þau. Ég dró Jóhann Pál með mér á stofugang á sunnudeginum með urologiu-teyminu. Ég held hann hafi sannfærst um ágæti Boston og Brigham þvagfæraskurðdeildarinnar. Það var samt akkúrat rosakalt um helgina þannig þau fengu aðeins ranga mynd af haustveðrinu hér....
*Á morgun er ég svo að fara til San Francisco og verð yfir helgina. Fæ frí í vinnunni til að fara á ASN (American Soc. of Nephrology) og kynna posterinn minn. Þetta er í 3. sinn sem ég fer á ASN með nýrnalæknunum.... alltaf í nóvemver, á Vesturströnd BNA - mér finnst þetta bara vera orðin fín hefð og stefni að því að halda áfram að mæta á nýrnaþing, a.m.k. þegar þau eru haldin í Californiu. Ég mun finna einhverja leið til að vera með poster... Hvernig hljóma t.d. svæfingar og nýrna-gjörgæsla (sbr. hjartagjörgæsla, skurðgjörgæsla).
Var svo mjög glöð þegar Hotwire.com útdeildi mér þessu svakaflotta hóteli, Westin á miðju Union Square (http://www.westinstfrancis.com) en ég er alltaf mjög svag fyrir fancy hótelum.
*Hef nú ekki spilað tennis síðan tennisnámskeiðinu lauk... en er að fara í þetta hálfmaraþon eftir rúma viku, ahemm. Það var orðið "uppselt" í hlaupið en svo losnaði eitt númer fyrir viku síðan þannig það var skorað á mig á að vera með. Þar sem ég er ekki að vinna þessa helgi ákvað ég að skella mér með - sunnudagsbíltúr til New Hampshire hljómaði bara vel. Er nú samt komin með smá bakþanka þar sem ekki hefur gefist tími til strangra æfinga... stefni nú bara að því að komast lifandi í mark :) Fyrst að Sigfús gat þetta um árið....
*Magga Rúna vinkona var svo að eignast sitt annað barn - lítinn ljóshærðan stráksa, mikinn myndarpilt af myndunum að dæma. Hlakka mikið til að sjá hann næst þegar ég kem heim.
Booooo!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, November 01, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Alvöru halloween...gaman :) Verst að þú skildir vera að vinna, annars hefðirðu getað skreytt húsið með kóngulóarvefjum og beinagrindum.
Gulla úr fyrri ASN ferðum biður að heilsa!
PS. Til hamingju Magga Rúna og Sigfús!
Californa hljómar ýkt vel. San Francisco er líka besta borg í heimi...
Tilhamingju Magga, Sigfús og Kristín með nýja fjölsk. meðliminn. Smá aðvörun: gaurar pissa út um allt ...
Post a Comment