Ég var svo heppin að fá gefins miða á Alvin Ailey American Dance Theater á fimmtudagskvöldið (Takk Margrét!!).
Alvin Ailey var modern dansari og coreographer sem stofnaði Alvin Ailey American Dance Theater 1958. Dansflokkurinn var með þeim fyrstu sem skartaði einungis svörtum dönsurum. Þeir slógu í gegn til að byrja með hjá hópum blökkumanna en eru nú orðnir heimsfrægir!! Alvin Ailey dó úr AIDS 1989, 58 ára að aldri. West 61st Street í NYC, milli Amsterdam og Columbus Avenue hefur verið nefnt "Alvin Ailey Way" honum til heiðurs. Sýningin var rosalega flott, þeir dönsuðu við Eldfuglinn eftir Stravinski, við tónlist Ray Charles og soul/gospel. Dáldið töff.
Það var ótrúlega gaman að fara út og vera svolítið menningarlegur - ég ætti að gera þetta oftar. Það er alveg rosalega mikið um að vera hérna í borginni, maður þarf bara að vera duglegri að drífa sig út.
Það er reyndar búið að bjóða mér á Sinfóníutónleika með Boston Symphony Orchestra eftir 2 vikur.
Janúar var mánuður lestrar og gym-ferða (svo langt sem það náði....). Best að Febrúar verði menningar-mánuðurinn mikli!!
Alvin Ailey American Dance Theater
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, February 10, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment