Fyrsta vikan afplánuð

....og lifði bara auðveldlega af!! Ég þakka samt samúðarkveðjur og þigg með þökkum rehab-pláss (ef það er ekki of langur biðlisti) í Svíþjóð í lok mars :) Get alveg hugsað mér eins og eina góða viku í spa-stemmningu, finnskum gufuböðum (hlýtur að vera hægt að finna slíkt í Sverige) og heitum pottum.

Annars var ég dáldið "screwed". Venjuleg næturvakta rotation er 4 vikur en einstaka sinnum eru þær 5 vikur og auðvitað lenti ég á þannig rotation! Til að toppa það enn frekar þá lenti ég í að taka auka viku (þessa fyrstu viku) og var látin covera 4 services, svona útjaðar-deildir, HNE, urologiu, lýta og "handar" consultin sem hluta af HNE rotationinni minni.
Sem betur fer var ég heppin og þetta var rólegasta vika í manna minnum á þessum 4 deildum. Þannig ég náði 1-4 tíma svefni/nóttu!
Annars skilst mér að 5 vikna rotationin sem byrjar á morgun sé ekki svo slæm, chilluð stemmning á nóttunni og lítið af scutwork (innlagnir/útskriftir o.s.frv...), meira svona pizza og dvd. ....Ég kaupi það nú samt ekki alveg strax.... kemur í ljós.

Ætla að halda upp á frídaginn og kíkja út með krökkunum í vinnunni í kvöld, ferðinni heitið á Newbury Street (í annað skipti í dag... tók smá verslunarferð fyrri partinn!). Jei.

4 comments:

Agnar said...

Að mínu áliti eru pizzur og næturvaktir óaðskiljanleg fyrirbæri. Törnin mikla býður upp á mikla möguleika - 36 nætur - 36 pizzur! Ótrúlegt tækifæri til að prófa alla helstu pizzustaði í Boston!

Og því meira sem er að gera því meiri orku þarf - sem er klár ábending á pizzu b.i.d.!

Ólöf Viktorsdóttir said...

Haha, mjög góð ábending! Mun leggja þetta undir næturvaktarteymið í kvöld :)

Unknown said...

Hæ skvís,

Gangi þér rosalega vel á þessari næturvaktatörn. Og vertu bara dugleg að blogga á meðan og borða Boston pizzur.

Magga.

Anonymous said...

Vá, það er þvílíkt fjör hjá þér, ég er glöð að sjá að þú nærð svona einni og einni frábærri skíðaferð öðru hverju!

Hvað varðar næturvaktir þá myndi ég líklega fíla það betur að mæta formlega í vinnuna en eiga á hættu að vera vakin klukkan hálffjögur af eldri konu sem er að spyrja út í tíkina sína sem er að gjóta og er ekkert að!