MLK holiday

Í dag er fyrsti mánudagsfrídagur ársins! Frídagur til heiðurs Martin Luther King, Jr. ...og ég er uppi í rúmi með kaffibolla og jólabækurnar á náttborðinu, góður dagur framundan :)

Það eru 10 Federal holidays á ári. Af þeim eru 7 á mánudegi eða föstudegi = 7 langar helgar! Skv. heimasíðu the federal government verður frídagur 4.júlí í ár færður fram til 3.júlí þar sem sá fjórði lendir á laugardegi í ár og menn eiga rétt á launuðum frídegi á sjálfstæðisdeginum, takk fyrir.

5 comments:

Anonymous said...

Jahá! Hvar er bloggið sem þú lofaðir mér í gær?

Ólöf Viktorsdóttir said...

ó já...hömm. Blogg tíminn fór í staðinn í að tala við þig á Skype-inu!! :)

Anonymous said...

Hmmm...say what?? Enginn MLK frídagur hérna í sveitinni, two hours away!! Svindl!

Kv. Álfheiður og co.

Ólöf Viktorsdóttir said...

haaaa? halda NH-ingar ekki upp á MLK daginn! Svei mér þá! hneyksl hneyksl. Annars væri nú gaman að fara að sjá ykkur, sveitalingana ;)

Áslaug said...

Vildi óska að íslensk stjórnvöld gerðu þetta þegar 17. júní lendir á laugardegi!