Rúgbrauð með reyktum laxi

Ég er búin að vera að skoða bloggsíður allra vinanna sem búa í Svíþjóð. Ég komst í svo góðan Skandinavískan gír að ég settist niður með tebolla og fékk mér rúgbrauð með reyktum laxi og vorlauki! Það er eins ó-Amerískt og hugsast getur.

Ég er nefnilega post call sem er besti dagur vikunnar. Þótt 24 tíma vaktir geti stundum verið strembnar eru þær alveg þess virði til að maður fái sinn post call day, sérstaklega þegar maður nær að sofa í 5 tíma í einu, eins og gerðist í nótt. Á fimmtudagsmorgnum eru Grand Rounds fyrst og síðan tilfellafundur. Með þessu er borið fram klassískur amerískur morgunmatur: Starbucks kaffi, beyglur með rjómaosti og alls kyns úrval af donuts, kökum og öðru drasl-sætabrauði. Ég bara get ekki skilið hver getur hafið morguninn á donut og bláberja muffins! En beyglan var góð.... :)
Venjulega fer maður heim um 7-leytið (nema á fim) og leggur sig kannski í 2-3 tíma og á svo allan daginn fyrir sig. Alveg yndislegt.

Með tebollann í annari og rúgbrauðið í hinni fór ég svo yfir atburði síðustu daga á mbl og ruv. Það er frábært að sjá að það kom að því. Ný ríkisstjórn, þótt fyrr hefði verið! Hef góða trú á Jóhönnu í sæti forsetisráðherra. Það er samt eitthvað svo skrýtið að vera svona langt í burtu, en þeim mun heitari umræður eiga sér stað í matarboðunum hér vestra og ekki óalgengt að kveikt sé á kastljósinu "í beinni" yfir kvöldmatnum. Mér finnst Boston-búar fylgjast alveg ótrúlega vel með, það líður varla sá dagur að ég sé ekki spurð hvernig staðan sé núna á Íslandi, ég spurð út í ríkisstjórnina eða mér óskað til hamingju með gay forsetisráðherrann!

Jæja, te-ið búið og tími til að fara að nýta post call daginn í eitthvað skemmtilegt :)

1 comment:

Anonymous said...

Ég gæti alveg hugsað mér bláberja muffin eða, enn betra, bláberja pönnuköku í morgunmat! Namm namm ...

Mamma