Mamma og Álfrún voru her í 5 daga og það var rosalega fínt. Þær fóru heim á miðvikudaginn og Steinunn var svo góð að verma sætin í vélinnni fyrir þær það kvöld. Við Steinunn erum svo búnar að vera í miklu stuði, fara á svala staði, drekka athyglisverða drykki, dansa við hressilega stuðtónlist og kynnast alls kyns athyglisverðu fólki, þ.a.m. dúnúlpu gaurnum sem þekkti Thor Thors í den..... fer ekki nánar út í það. Á morgun er svo Hub Gun keppnin þar sem ég mun keppa við allls kyns aðra residenta af Boston-svæðinu í laparoscopiu tækni. já já.
Kveðja,
Roxbury Olsó
gestagangur
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, December 08, 2007
4
comments
Gafumenn
Fyrirlesturinn á Grand Rounds þessa vikuna var um lifrarígræðslur og fyrirlesarinn var enginn annar en Thomas Starzl sem hefur verið nefndur "the father of modern transplantation." Hann gerði m.a. fyrstu lifrarígræðslurnar (þ.e. fyrstu sem sjúklingurinn lifði af!) og er frægur fyrir að þróa cyclosporin og tacrolimus. Ótrúlega áhugaverður fyrirlestur.
Með honum í för var Joseph E. Murray sem hlaut Nóbelsverðlaunin 1990 í Læknisfræði fyrir vinnu sína við líffæra- og frumu ígræðslur.
Þeir töluðu fyrir fullum sal. Þetta var ótrúlega magnað - ég svitnaði alveg undan þeim svakalegu gáfum sem svifu yfir salnum.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, December 01, 2007
0
comments
Af Thanksgiving, meiri virosu og svæsinni mixturu
Síðustu 2 vikur er ég búin að vera að rotera á colo-rectal (ristils-teyminu!?). Það er frekar rólegt þar þessa dagana, datt allt í dúnalogn í kringum Thanksgiving í síðustu viku og er svona smá saman að lifna við aftur. Við "intern-arnir" fáum ekki mikið að fara á skurðstofuna á þessari rotation ;-( ...þar sem aðgerðirnar eru flestar í stærri kantinum og fyrir ofan okkar level. Við erum þó stundum lánuð yfir á brjóstakirurgiuna sem er fínt. Ég held ég sé búin að gera a.m.k. 40-50 brjósta-case síðan ég byrjaði þannig maður er að verða nokkuð sjóaður á þeim slóðum.
Thanksgiving var í síðustu viku. Það er ótrúlega kósý hátíð. Flestir reyna að fara heim til sín og vera með familíunni, borða góðan mat og hafa það huggó. Ég var svo heppin að vera boðin í 2 matarboð!! Ég byrjaði heima hjá Alexis & Niko sem voru með 5 rétta matseðil (!) og fór svo yfir til Margrétar í second portions... Ég fékk svo óvæntan frí úr vinnunni daginn eftir (föstudagur) sem var mjög svo óvæntur en ánægjulegur bónus- ekki veitti af smá hvíld eftir öll veisluföngin. Það var svo enginn griður gefinn á laugardeginum, heldur haldið í afganga til Alexis... margra klukkustunda hádegisboð - sem stóð alveg þangað til ég þurfti að mæta á næturvakt.
Í millitíðinni hafði ég náð að koma mér upp einni svæsinni virosu (glöggir lesendur muna líklegast að það eru ekki nema 2-3 mánuðir frá svæsnustu virosu allra tíma) þannig ég mætti (aftur) raddlaus með snýtuklútana á spítalann. Á spítalanum var mér sagt að fara heim að hvíla mig og bent á að koma við í CVS (apótekinu) og kaupa mér ákveðna hóstamixtúru sem átti að vera allra meina bót. Samviskusamlega gerði ég það og fékk mér vænan sjúss um kvöldið áður en ég skreið upp í rúm í ullarsokkunum. Vissi síðan ekki af mér fyrr en vekjarinn var búinn að hringja vel og lengi morguninn eftir, ég stökk á fætur - alltof sein í vinnuna, en þá vildi ekki betur til en að ég gekk á vegginn(!) já, í alvöru. Allt herbergið snérist í nokkra hringi en einhvern veginn náði ég að koma mér af stað í vinnuna en það tók mig ca. 4 tíma að ná almennilega áttum - ég hef ekki lagt í að lesa innihaldslýsinguna á þessari göróttu mixtúru en hef ekki fengið mér annan sjúss...
Í næstu viku á ég svo 9 daga FRÍ!! Mamma og Álfrún systir eru að koma á föstudaginn og ég hlakka mikið til að sjá þær. Steinunn vermir svo Icelandair-sætin fyrir þær á miðvikudeginum þegar þær fara heim með sömu vél en við tekur ekta góður vinkonuhittingur í aðra 5 daga. Aldeilis ekki slæmur tími framundan! Hér er annars allt að verða rosalega jólalegt, eina sem er algjörlega ekki að gera sig er 17 stiga hitinn sem var í dag - mjöööög furðulegt, sérstaklega eftir frostið í síðustu viku. Annars fer víst kólnandi aftur á næstu dögum þannig ég mæli með að pakka húfu og vettlingum fyrir ykkur Mamms, Ára og Steinka!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, November 28, 2007
5
comments
Brusi gamli

For ovaent a tonleika med Bruce Springsteen a sunnudagskvoldid i The Garden. Thad var bara rosastud, Brusi i banastudi a svidinu og fullt af ameriskum kvennsum a oraedum aldri sem donsudu a golfinu med bjor i annarri... og svo eg :)
Hann var ad kynna nyja diskinn sinn (sem eg veit ekki hvad heitir - svo ovaent var thessi tonleikaferd!) sem virdist bara vera nokkud godur. Maeli med tonleikum i Gardinum fyrir tha sem eiga leid um Boston a naestunni, svaka finn tonleikastadur.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, November 20, 2007
0
comments
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, November 17, 2007
6
comments
11.11.07
Eftir ekki svo margar æfingar, 2 helgarvaktir og eina San Francisco ferð síðustu 3 vikur tók ég þátt í the Sea Coast Halfmarathon í dag. Við Margrét lögðum af stað klukkan 7 í morgun (hvað leggur maður ekki á sig... og á sunnudagsmorgni!) og keyrðum norður til Portsmouth, New Hamshire þar sem hlaupið var.
Hlaupið byrjaði kl.9 og fólk hafði til kl.12 að komast á leiðarenda. Þetta var ótrúlega falleg leið, eftir ströndinni, inni í skógi og milli lítilla bæja og ekki var verra hvað veðrið var fallegt, sól og heiðskýrt og hitinn rétt ofan við frostmark. Á 10. mílu var maður nú orðinn vel þreyttur (enda aldrei hlaupið lengra en 8,5 mílur á ævi minni) en þetta hafðist og maður kom þreyttur en sæll í mark á undir 2,5 tímum sem var markmiðið! Ég reyndi að miða mig ekki við 74 ára konuna sem fór þetta á 2.09, hvað þá 65 ára konuna sem fór þetta á 1.48...
Hálfmaraþon er 13 mílur = 21 km. Ótrúlegt hvað 13 mílur hljóma mun mun betur en 21 km. Besti parturinn var samt að það var boðið upp á nudd eftir hlaupið - alvöru nudd - í stóru herbergi þar sem voru 10 nuddbekkir, allir sem vildu fengu ca.15 mín. nudd. Það var æði!!
Þá er maður búinn að prófa þetta, er nú samt ekki viss um að leggi nokkurn tímann í maraþon - ef ég geri það, þá verður það gert í amerískum mílum!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, November 12, 2007
5
comments
Booooo!

Í gær var Halloween. Ég er akkúrat á næturvöktum þessa viku þannig að ég missti því miður af því af aðal Trick´n´treat stemmningunni í bænum en aðalfjörið hefst eftir myrkur. Ég kíkti samt við hjá Elfu og Gunnari áður en ég fór í vinnuna en þau voru að undirbúa Halloween partý, voru búin að skera út þvílíkt flott grasker og útbúa þvílíkar kræsingar. Það var dáldið fríkuð stemmning á spítalanum, hjúkkurnar voru margar í svona Halloween scrub - með myndum af graskerjum, nornum og svörtum köttum og einstaka bráðamóttökuhjúkka var með svarta Dracula hárkollu..... athyglisvert!
Annars er þetta helst að frétta:
* Þvagfæraskurðdeildin er alveg að gera sig. Ég er orðin fullnuma í þvagleggjaísetningum og blöðruhálskirtilsþreifingum! Ég er eina stelpan í teyminu og það er farið með mig alveg eins og prinsessu :) Á nóttunni er ég líka á vakt fyrir lýtateymið og háls, nef og eyrna... jájá, það er ágætt. Lærði til dæmis allt um maxillary sinus brot í nótt þegar ungur maður fannst ráfandi um hótel í Suður-Boston, illa útleikinn með umrætt andlitsbeinabrot. Hann talaði bara útlensku, var í benzó-rússi og gat ekki sagt okkur hvað kom fyrir. Kannski var hann bara í Halloween-partýi!
*Jóhann Páll, tilvonandi þvagfæraskurðlæknir, og Álfheiður voru í Boston um síðustu helgi og það var rosagaman að hitta þau. Ég dró Jóhann Pál með mér á stofugang á sunnudeginum með urologiu-teyminu. Ég held hann hafi sannfærst um ágæti Boston og Brigham þvagfæraskurðdeildarinnar. Það var samt akkúrat rosakalt um helgina þannig þau fengu aðeins ranga mynd af haustveðrinu hér....
*Á morgun er ég svo að fara til San Francisco og verð yfir helgina. Fæ frí í vinnunni til að fara á ASN (American Soc. of Nephrology) og kynna posterinn minn. Þetta er í 3. sinn sem ég fer á ASN með nýrnalæknunum.... alltaf í nóvemver, á Vesturströnd BNA - mér finnst þetta bara vera orðin fín hefð og stefni að því að halda áfram að mæta á nýrnaþing, a.m.k. þegar þau eru haldin í Californiu. Ég mun finna einhverja leið til að vera með poster... Hvernig hljóma t.d. svæfingar og nýrna-gjörgæsla (sbr. hjartagjörgæsla, skurðgjörgæsla).
Var svo mjög glöð þegar Hotwire.com útdeildi mér þessu svakaflotta hóteli, Westin á miðju Union Square (http://www.westinstfrancis.com) en ég er alltaf mjög svag fyrir fancy hótelum.
*Hef nú ekki spilað tennis síðan tennisnámskeiðinu lauk... en er að fara í þetta hálfmaraþon eftir rúma viku, ahemm. Það var orðið "uppselt" í hlaupið en svo losnaði eitt númer fyrir viku síðan þannig það var skorað á mig á að vera með. Þar sem ég er ekki að vinna þessa helgi ákvað ég að skella mér með - sunnudagsbíltúr til New Hampshire hljómaði bara vel. Er nú samt komin með smá bakþanka þar sem ekki hefur gefist tími til strangra æfinga... stefni nú bara að því að komast lifandi í mark :) Fyrst að Sigfús gat þetta um árið....
*Magga Rúna vinkona var svo að eignast sitt annað barn - lítinn ljóshærðan stráksa, mikinn myndarpilt af myndunum að dæma. Hlakka mikið til að sjá hann næst þegar ég kem heim.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, November 01, 2007
2
comments
