Hæ hó Ísland!

Nú er loksins farið að vera vor í lofti hér í Boston! Þetta er búið að vera langur og strangur vetur skv. heimamönnum og ekki snjóað eins þungt og mikið í mörg mörg ár. En ei meir... nú eru krókusar farnir að stinga upp kollinum og fuglasöngur farinn að vekja mann upp á morgnanna, þ.e.a.s. um helgar, þegar maður vaknar EKKI fyrir sólarupprás.

Hlakka mikið til að koma heim til Íslands um næstu helgi, þótt ekki verði stoppið langt í þetta sinn. Aðaltilgangur ferðarinnar er að endurnýja vegabréfsáritunina og náði ég að kría út 4ra daga helgarfrí úr vinnunni, það þykir nú nokkuð gott skal ég ykkur segja. Hins vegar tekur vegabréfs-buisnessinn einungis 15 mínútur í sendiráðinu þannig ég hef 97 klukkutíma og 45 mínútur til að hitta vini og ættingja, djamma smá, borða grillmat (já!), fara á Laugarveginn og í sund. Ekki slæmt.

Verð hjá foreldrunum: 552 2631 og ef ég finn gamla gemsann þá verð ég með hann líka: 699 6045.

Rúgbrauð með reyktum laxi

Ég er búin að vera að skoða bloggsíður allra vinanna sem búa í Svíþjóð. Ég komst í svo góðan Skandinavískan gír að ég settist niður með tebolla og fékk mér rúgbrauð með reyktum laxi og vorlauki! Það er eins ó-Amerískt og hugsast getur.

Ég er nefnilega post call sem er besti dagur vikunnar. Þótt 24 tíma vaktir geti stundum verið strembnar eru þær alveg þess virði til að maður fái sinn post call day, sérstaklega þegar maður nær að sofa í 5 tíma í einu, eins og gerðist í nótt. Á fimmtudagsmorgnum eru Grand Rounds fyrst og síðan tilfellafundur. Með þessu er borið fram klassískur amerískur morgunmatur: Starbucks kaffi, beyglur með rjómaosti og alls kyns úrval af donuts, kökum og öðru drasl-sætabrauði. Ég bara get ekki skilið hver getur hafið morguninn á donut og bláberja muffins! En beyglan var góð.... :)
Venjulega fer maður heim um 7-leytið (nema á fim) og leggur sig kannski í 2-3 tíma og á svo allan daginn fyrir sig. Alveg yndislegt.

Með tebollann í annari og rúgbrauðið í hinni fór ég svo yfir atburði síðustu daga á mbl og ruv. Það er frábært að sjá að það kom að því. Ný ríkisstjórn, þótt fyrr hefði verið! Hef góða trú á Jóhönnu í sæti forsetisráðherra. Það er samt eitthvað svo skrýtið að vera svona langt í burtu, en þeim mun heitari umræður eiga sér stað í matarboðunum hér vestra og ekki óalgengt að kveikt sé á kastljósinu "í beinni" yfir kvöldmatnum. Mér finnst Boston-búar fylgjast alveg ótrúlega vel með, það líður varla sá dagur að ég sé ekki spurð hvernig staðan sé núna á Íslandi, ég spurð út í ríkisstjórnina eða mér óskað til hamingju með gay forsetisráðherrann!

Jæja, te-ið búið og tími til að fara að nýta post call daginn í eitthvað skemmtilegt :)

MLK holiday

Í dag er fyrsti mánudagsfrídagur ársins! Frídagur til heiðurs Martin Luther King, Jr. ...og ég er uppi í rúmi með kaffibolla og jólabækurnar á náttborðinu, góður dagur framundan :)

Það eru 10 Federal holidays á ári. Af þeim eru 7 á mánudegi eða föstudegi = 7 langar helgar! Skv. heimasíðu the federal government verður frídagur 4.júlí í ár færður fram til 3.júlí þar sem sá fjórði lendir á laugardegi í ár og menn eiga rétt á launuðum frídegi á sjálfstæðisdeginum, takk fyrir.

Tips for Better Life

Ef allir tækju þessum ráðleggingum þá væri heimurinn öðru vísi en hann er!

1. Take a 10-30 minutes walk every day. And while you walk, smile.
2. Sit in silence for at least 10 minutes each day.
3. Sleep for 7 hours.
4. Live with the 3 E's -- Energy, Enthusiasm, and Empathy.
5. Play more games.
6. Read more books than you did the previous year.
7. Make time to practice meditation, yoga, and prayer. They provide us with daily fuel for our busy lives.
8. Spend time with people over the age of 70 & under the age of 6.
9. Dream more while you are awake.
10. Eat more foods that grow on trees and plants and eat less food that is manufactured in plants.
11. Drink plenty of water.
12. Try to make at least three people smile each day.
13. Don't waste your precious energy on gossip.
14. Forget issues of the past. Don't remind your partner with his/her mistakes of the past. That will ruin your present happiness.
15. Don't have negative thoughts or things you cannot control. Instead invest your energy in the positive present moment.
16. Realize that life is a school and you are here to learn. Problems are simply part of the curriculum that appear and fade away like algebra class but the lessons you learn will last a lifetime.
17. Eat breakfast like a king, lunch like a prince and dinner like a beggar.
18. Smile and laugh more.
19. Life is too short to waste time hating anyone. Don't hate others.
20. Don't take yourself so seriously. No one else does.
21. You don't have to win every argument. Agree to disagree.
22. Make peace with your past so it won't spoil the present.
23. Don't compare your life to others'. You have no idea what their journey is all about. Don't compare your partner with others.
24. No one is in charge of your happiness except you.
25. Forgive everyone for everything.
26. What other people think of you is none of your business.
27. However good or bad a situation is, it will change.
28. Your job won't take care of you when you are sick. Your friends will. Stay in touch.
29. Get rid of anything that isn't useful, beautiful or joyful.
30. Envy is a waste of time. You already have all you need.
31. The best is yet to come.
32. No matter how you feel, get up, dress up and show up.
33. Do the right thing!
34. Call your family often.
35. Your inner most is always happy. So be happy.
36. Each day give something good to others.
37. Don't over do. Keep your limits.
38. Share this with someone you care about

Færsla um þessa helgi, sem er búin að vera súperchilluð

Þá er lífið allt að komast í sinn vanagang eftir ferðalög, skíðiskíð, hátíðir, endalausan gourmet mat, afslappelsi og skemmtanir... Ég var algjörlega úrvinda eftir fyrstu vinnuviku ársins, maður er greinilega fljótur að aðlagast frí-stemmningunni. Það var líka brjálað að gera í vinnunni alla vikuna, hápunkturinn var sjúklingurinn minn sem fékk serotonin syndrome eftir svæfinguna! Ekki gott en mjög lærdómsríkt.

Helgarfríinu var því tekið með miklum fögnuði. Ég vaknaði á laugardagsmorguninn eftir 13 tíma svefn! Ég held að ég hafi ekki sofið svona mikið síðan ég var unglingur, svei mér. Afrekaði svo fyrstu gym-ferð ársins og chillaði svo á Coop bókabúðarkaffihúsinu (vei vei, langt orð!) á Harvard Square með Möggu Dóru og Hjalla sem voru hér í stuttu stoppi á leið til Íslands eftir skíðaferðina stórkostlegu. Eftir gott kaffi og góð kaup á útsölunum á Harvard Sq var ferðinni heitið í Beacon Hill þar sem ég var boðin í mat til Alexis og Nico, góðra vina minna hér. Þau falla í hópinn non-doktor friends og eru súperhress :) Enduðum á rosaflottum stað sem heitir Eastern Standard í afmælisveislu hjá einhverjum gaur, bara nokkuð hressilegt kvöld.

Yfir nóttina kyngdi niður jólasnjó og ég fór í brunch í morgun í snjó-bootsunum mínum. Sweeney sótti mig og við festumst í snjónum hér og þar og komu bootsin sér afar vel við bíla-ýtingar (eða skrifar maður kannski ítingar.. hmmm?). Síðan var cornbread skellt í ofninn og hitað kakó.
Í anda hins vanalega hversdagslífs sem nú er komið á fullt, verður fiskur í matinn í kvöld.
Hér með lýkur þessari færslu um ekki neitt :)

Tahoe



Hæ hó og gleðilegt ár!!!
Það eru komnar nýjar myndir á flickr frá skíðaferðinni frábæru! ...bætti líka við nokkrum myndum frá ferðinni okkar Álfrúnar í sumar undir kaktusa-albúminu :)
Sem smá forskot má hér sjá eld-fönixinn og mig á leið niður fjallið.