Aksjon a skurdstofunni.

Það er helst í fréttum að ég tók 4 botnlanga síðustu nótt, hvorki meira né minna! Hver hefði nú trúað því.

Morgun andakt

Einn besti timi dagsins er stundin sem tad tekur mig ad keyra i vinnuna - ELDSNEMMA -a nyja Camry-num minum. Ó já.

Síðustu 3 vikur er ég búin að vera á rotation á South Shore Hospital sem er í Weymouth, ca. 20 mílur sunnan við Boston. Það tekur um 25 mínútur að keyra þangað á morgnanna (...en klukkutíma á leiðinni heim - VERSTI tími dagsins..í traffikinni og hitanum, ÚFFFF).

Áður en ég legg í hann, vel ég vandlega einhvern einn geisladisk úr hillunni til að spila á leiðinni. Helst einhvern gamlan og góðan sem ég hef ekki hlustað á lengi. Síðan þeysi ég eftir hraðbrautinni, með músikina á hæsta og kemst í geðveikt stuð fyrir daginn. Öll umferðarljósin blikka gulu á þessum tíma sólarhringsins (sem er æði! - engin rauð ljós), alveg passlegur hiti úti, eldrauð sólarupprás yfir Cape Cod og næstum engir bílar á Highway I-93. ...og svöl músík á hæsta. Maður kemst í þvílíkt gott skap!

Það er samt dáldið merkilegt hvernig tónlistarsmekkurinn breytist a) eftir því hversu mörgum tímum maður náði í nætursvefn b) koffínmagni í blóðinu (maganum..?). Dæmi um tónlistarvalið þessa vikuna:
Mánudagur: Depeche Mode - Best of (+kaffi + 7 tíma svefn = gott stuð í bílnum)
Þriðjudagur: Elvis (-kaffi - svefn (svaf bara í 2 tíma þessa nóttina....don´t ask)). WHAAAAT - Elvis. Hvað var ég að spá - komst samt í stuð.
Miðvikudagur: The Clash - pottþéttir alltaf, þarfnast ekki skýringa.
Fimmtudagur: Best of 80´s -Megastuð. Besta bílferðin hingað til :-)

Mæli með þessu, sérlega fyrir fólk með morgun-crankness á háu stigi. Þetta er allra meina bót!!
Mæli svo með Party Like a Rock Star á heimleiðinni - fyrir reiða fólkið sem þarf útrás í traffikinni.

Nagrannastemmning


Þegar ég kom heim af næturvaktinni í morgun beið mín fullur diskur af heimabökuðum smákökum frá nágrannakonunni (þessari sem er atvinnu-metro-driver). Heldur betur huggulegt :-)

White Coats



Glaðbeittir ungir menn á góðri stundu!
Ég fann þessa mynd á netinu en svona líta slopparnir okkar út. Læknanemar og residentar þurfa að vera í svona stuttum sloppum en það er ekki fyrr en maður er búin að standast board prófin og hljóta nafnbótina sérfræðingur að manni leyfist ganga um í "alvöru" white coat. Fyrst fannst mér þetta nú frekar bjánalegt en ég er búin að sjá marga kosti við stutta sloppinn og er eiginlega komin á þá skoðun að hann sé bara miklu betri en sá síði.

- Í fyrsta lagi hentar stutti sloppurinn kvenlegum vexti mun betur en sá síði, maður fær svona "jakka"fíling. Getur jafnvel ímyndað sér að maður sé á leiðinni í kokteil... Ég er að spá í að setja tillögu í hugmyndakassann þeirra að hafa þá aðsniðna líka ;)
- Í öðru lagi eru þeir ekki að flækjast í hurðarhúnum, rúmgöflum eða borðhornum eða klemmast milli lyftuhurða en ég upplifði endurtekið með síðu Landsa-sloppana.
- Þeir eru með 4 vösum (þ.m.t. einum innaná-vasa!) -Aha!
- Þeir flaksast ekki eins mikið ef það er rok (eða ef maður er á svo mikilli hraðferð að það er eins og það sé rok).
- Svo eru þeir bara hip og kúl.

Veit ekki hvort fólk er sammála mér samt....

Camry 2007



Ég er frá og með í dag orðinn stoltur eigandi þessa fallega silfurlitaða Toyota Camry!!
Eftir nokkrar spekúlationir af minni hálfu ákvað ég að skella mér á einn slíkan. Það sem spilaði m.a. sterklega inn í þessa ákvörðun var gríðarlegur sjarmi sölumannsins Alexey (ættaður frá Kasakstan!!). Alexey fór með mig í 4 bíltúra þar sem keyrt var um í Boston-umferðinni (sem er alræmd), keyrt 4 sinnum yfir lestarteina og einu sinni á móti umferð. Ahemm, það var víst ég samt sem var undir stýri. Síðan sýndi hann mér digital myndir af heimaborg sinni Alma-Ada og raulaði fyrir mig kasaktan-ískan lagstúf. Eftir þetta var ekki annað hægt en að fjárfesta í þessum svakalega fína bíl. Hann er m.a.s. með topplúgu.
Ætli það verði svo ekki Sigurdís sem fær heiðurinn af fyrsta bíltúrnum en hún er að koma í heimsókn eftir viku! Hún fær líka heiðurinn af því að vera fyrsti gesturinn minn. Go Sigurdís!

Ég er í New York!! Jííííí, geðveikt gaman. Við Hrafn og Stína erum búin að labba út um alla borg í dag, fórum m.a. yfir Brooklyn brúna og skoðuðum nýjasta listamannahverfið í Brooklyn sem heitir því frumlega nafni Dumbo. Það var mjög funky hverfi, fundum m.a. annars 1000 manna biðröð around the block - kom í ljós að fólkið var að bíða eftir að kaupa miða á japanska rokktónleika með 77 trommusettum.
Erum svo að fara á Buddabar í kvöld http://www.buddhabarnyc.com/

Maður gerir bara eitthvað eitt....

Ég kem yfirleitt heim úr vinnunni milli 6 og 7. Samkvæmt vísindalegum útreikningum á maður að sofa í átta tíma til vera hress og sprækur að morgni. Þar sem ég vakna kl.5 á hverjum morgni þýðir það að til að framfylgja þessari ágætu reglu þarf ég að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Það gefur mér 2-3 tíma til að gera eitthvað annað áður ég skríð í bólið. Ég er búin að sjá það út að maður gerir bara eitthvað eitt!
Hvort sem það er að fara í ræktina (www.fitcorp.com), út að hlaupa, í bíó, elda mat, fara í súpermarketinn (ég er alltaf svo lengi þar - finnst svo gaman að browsa um búðina) eða fá sér bjór með kirurgunum (alltaf á fimmtudögum á spítalabarnum) þá gerir maður bara eitthvað eitt eigi tímamörkin að standa. Þrátt fyrir það tekst manni SAMT yfirleitt ekki að standast tímamörkin - a.m.k. ekki hingað til. Besti tíminn minn frá upphafi er að vera sofnuð kl. 22.15!

Með gríðarlegri útsjónarsemi tókst mér í kvöld að sameina 2 viðburði í einn! Ég þurfti nefnilega nauðsynlega að fara í búð og þurfti einnig nauðsynlega að hreyfa mig eitthvað. Eftir miklar spekúlasjónir ákvað ég að:
- Keyra á bílnum að bílastæðinu á Trader Joe´s (sem er langbesti súpermarkaðurinn - efni í heilt blogg). 19.35,
- Lagði þar laumulega í eitt hornið (það er nefnilega bara 1 klst. hámarkstími á bílastæðinu). 19.45
- Joggaði um Brookline og Cambridge og sneri aftur að TJ. 20.30
- Verslaði (á stuttbuxunum - góður fílíngur!) á 45 mín (ég veit, ég veit, óþarfa mínútum kannski eytt þar). 21.15
- Kom heim 21.25 - rétt yfir tímamörkum.
- Skemmdi síðan allt saman með því að fara á netið..... og skrifa þessi töluðu orð. Nú er kl. 22.15. Mun sem sagt ekki slá eigið met í kvöld.

Annars var næturvaktin á laugardagskvöldið algjört djók. Ég var á vakt fyrir the Cutler Service (sem er teymið mitt - efri gastro). Það er sambærilegt við að vera á vakt fyrir eina deild heima, t.d. á vakt fyrir krabbameinsdeildina eingöngu. Bráðalæknarnir sjá um allar innlagnir sem koma inn um bráðamóttökuna þannig maður er beinlínis bara á húsvakt fyrir sitt teymi. Ég fékk 4 píp fyrir kl.4 um morguninn (vaktin byrjaði 6 pm), svaf samfleytt í 4 tíma og notaði síðan síðustu 2 tímana af þessari 12 tíma vakt til að undirbúa morgunstofuganginn sem hefst alltaf á slaginu 6. Næs! Auk þess sjá hjúkkurnar um allar blóðræktanir, beiðnaútfyllingar, EKG og þvíumlíkt. Þetta er víst samt ekki alveg svona fínt á virkum dögum skilst mér...

Og já, ég er fara til NY um næstu helgi að hitta Hrafn og Stínu. Jei :)

Og já, eitt annað. Það er 4.júlí á morgun - Þjóðhátíðardagurinn sjálfur. Það verður spennadi að sjá hvort cafeterian bjóði upp á kræsingar á tyllidögum, líkt og Landsinn. Laxarúlla og ratatoille.. eða kannski ekki.
Nú er kl.22.30 - uss suss uss!