Einn besti timi dagsins er stundin sem tad tekur mig ad keyra i vinnuna - ELDSNEMMA -a nyja Camry-num minum. Ó já.
Síðustu 3 vikur er ég búin að vera á rotation á South Shore Hospital sem er í Weymouth, ca. 20 mílur sunnan við Boston. Það tekur um 25 mínútur að keyra þangað á morgnanna (...en klukkutíma á leiðinni heim - VERSTI tími dagsins..í traffikinni og hitanum, ÚFFFF).
Áður en ég legg í hann, vel ég vandlega einhvern einn geisladisk úr hillunni til að spila á leiðinni. Helst einhvern gamlan og góðan sem ég hef ekki hlustað á lengi. Síðan þeysi ég eftir hraðbrautinni, með músikina á hæsta og kemst í geðveikt stuð fyrir daginn. Öll umferðarljósin blikka gulu á þessum tíma sólarhringsins (sem er æði! - engin rauð ljós), alveg passlegur hiti úti, eldrauð sólarupprás yfir Cape Cod og næstum engir bílar á Highway I-93. ...og svöl músík á hæsta. Maður kemst í þvílíkt gott skap!
Það er samt dáldið merkilegt hvernig tónlistarsmekkurinn breytist a) eftir því hversu mörgum tímum maður náði í nætursvefn b) koffínmagni í blóðinu (maganum..?). Dæmi um tónlistarvalið þessa vikuna:
Mánudagur: Depeche Mode - Best of (+kaffi + 7 tíma svefn = gott stuð í bílnum)
Þriðjudagur: Elvis (-kaffi - svefn (svaf bara í 2 tíma þessa nóttina....don´t ask)). WHAAAAT - Elvis. Hvað var ég að spá - komst samt í stuð.
Miðvikudagur: The Clash - pottþéttir alltaf, þarfnast ekki skýringa.
Fimmtudagur: Best of 80´s -Megastuð. Besta bílferðin hingað til :-)
Mæli með þessu, sérlega fyrir fólk með morgun-crankness á háu stigi. Þetta er allra meina bót!!
Mæli svo með Party Like a Rock Star á heimleiðinni - fyrir reiða fólkið sem þarf útrás í traffikinni.
Morgun andakt
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, August 02, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hmmm-þarf nánari skýringu á þriðjudeginum.... Elvis á sinn stað og stund í mínu lífi-svona ca á 5 ára fresti..... :)
En öfunda þig samt af morgunbílferðinni, hér er dregist á lappir ca 2 mín í átta og engin stemming í Tusconinum....
ég kannast við þetta.. þeim mun meiri þreyta, því meira stuð þarf að vera í tónlistinni
Kv Dögg
ÁB er einlægur Elvisaðdáandi - nú sé ég hvaðan hann hefur þetta ;) Mér líst annars vel á nágrannana og kökurnar en veit ekki alveg með þessa sloppa, held mér myndi líða hálfkjánalega í svona hálfslopp!
kv.
Brynja
Post a Comment