Í starfi sem þessu er mjög nauðsynlegt að vera vel skipulagður. Því hefur næturvaktateymið komið sér upp kerfi þar sem skipulag vikunnar fyrir "extra curricular activities" er update-erað reglulega :)
Vikan
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, February 28, 2008
9
comments
Snapshots frá næturvöktunum
Sam í stuði. Það var einhver sem ákvað að febrúar skyldi vera "intern goatee month" þannig nú skarta allir drengirnir snyrtilegu "geitaskeggi". Stelpunum var boðið að vera með.... hmmmpf.
Mehrdad í símanum. Líka með geitaskegg - hans þó meira með persískum blæ, enda drengurinn frá Íran.
Clinton og Obama voru í sjónvarpinu.
...spáð í CT mynd.... Glöggir taka eftir að hér er um að ræða CT af mjaðmagrind.
Dr. V. eins og ég er gjarnan kölluð!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, February 25, 2008
1 comments
Fyrsta vikan afplánuð
....og lifði bara auðveldlega af!! Ég þakka samt samúðarkveðjur og þigg með þökkum rehab-pláss (ef það er ekki of langur biðlisti) í Svíþjóð í lok mars :) Get alveg hugsað mér eins og eina góða viku í spa-stemmningu, finnskum gufuböðum (hlýtur að vera hægt að finna slíkt í Sverige) og heitum pottum.
Annars var ég dáldið "screwed". Venjuleg næturvakta rotation er 4 vikur en einstaka sinnum eru þær 5 vikur og auðvitað lenti ég á þannig rotation! Til að toppa það enn frekar þá lenti ég í að taka auka viku (þessa fyrstu viku) og var látin covera 4 services, svona útjaðar-deildir, HNE, urologiu, lýta og "handar" consultin sem hluta af HNE rotationinni minni.
Sem betur fer var ég heppin og þetta var rólegasta vika í manna minnum á þessum 4 deildum. Þannig ég náði 1-4 tíma svefni/nóttu!
Annars skilst mér að 5 vikna rotationin sem byrjar á morgun sé ekki svo slæm, chilluð stemmning á nóttunni og lítið af scutwork (innlagnir/útskriftir o.s.frv...), meira svona pizza og dvd. ....Ég kaupi það nú samt ekki alveg strax.... kemur í ljós.
Ætla að halda upp á frídaginn og kíkja út með krökkunum í vinnunni í kvöld, ferðinni heitið á Newbury Street (í annað skipti í dag... tók smá verslunarferð fyrri partinn!). Jei.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, February 17, 2008
4
comments
Miðnæturstemmning - á HVERRI nóttu!!
Fyrsta næturvaktin af 36 búin......
Ég er hins vegar búin að sjá nokkra kosti við það að breytast í næturvaktadraug í 6 vikur.
1) Í fyrsta lagi fæ ég alltaf frí á laugardögum - sem er gott. Mun komast í öll matarboðin sem mér verður boðið í og get jafnvel haldið eitt slíkt sjálf :)
2) Ég get farið í bankann á hverjum degi - hvern dreymir ekki um það.
3) Ég mun sjá sjá dagsbirtu
4) Ég get hringt í fólk á Íslandi án þess að vekja það um miðja nótt!
5) Ég get farið á kaffihús ÁÐUR en ég mæti í vinnuna - það er ekki hægt á dagvöktum - hah!
6) Ég get gert prospectiva rannsókn á hvaða áhrif næturvaktir hafa á geðheilsu ungra residenta - ekki slæmt á CV-ið!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, February 12, 2008
3
comments
Alvin Ailey American Dance Theater
Ég var svo heppin að fá gefins miða á Alvin Ailey American Dance Theater á fimmtudagskvöldið (Takk Margrét!!).
Alvin Ailey var modern dansari og coreographer sem stofnaði Alvin Ailey American Dance Theater 1958. Dansflokkurinn var með þeim fyrstu sem skartaði einungis svörtum dönsurum. Þeir slógu í gegn til að byrja með hjá hópum blökkumanna en eru nú orðnir heimsfrægir!! Alvin Ailey dó úr AIDS 1989, 58 ára að aldri. West 61st Street í NYC, milli Amsterdam og Columbus Avenue hefur verið nefnt "Alvin Ailey Way" honum til heiðurs. Sýningin var rosalega flott, þeir dönsuðu við Eldfuglinn eftir Stravinski, við tónlist Ray Charles og soul/gospel. Dáldið töff.
Það var ótrúlega gaman að fara út og vera svolítið menningarlegur - ég ætti að gera þetta oftar. Það er alveg rosalega mikið um að vera hérna í borginni, maður þarf bara að vera duglegri að drífa sig út.
Það er reyndar búið að bjóða mér á Sinfóníutónleika með Boston Symphony Orchestra eftir 2 vikur.
Janúar var mánuður lestrar og gym-ferða (svo langt sem það náði....). Best að Febrúar verði menningar-mánuðurinn mikli!!
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, February 10, 2008
0
comments
VT= Vermont
Ég, Maggie vinkona mín og nokkrir aðrir vinir hennar leigðum "condo" í Mountain Okemo resort í Vermont um helgina. Það var æði að komast á skíði aftur í vetur og líka í þetta frábæra fjall sem var með 106 leiðum og 19 lyftum.
Þetta var ekkert smá mikil lúxus-condo, með arni, heitum potti, skiboot þurrkara og ég veit ekki hvað.
Útsýnið úr lyftunum var svona - ekki fyrir lofthrædda.
Ljósbláa tískan var augljóslega aðalmálið í brekkunum og Maggie lét að sjálfsögðu ekki sitt eftir liggja.
Partur af skíðagenginu: Maggie enskukennari, Sarah spænskukennari og Brian sögukennari sem kenna öll í skóla sem er einmitt rétt við hliðina á Brigham. Og Becka brettagella konan hans Brians. Hinum megin við borðið sátu svo gaurarnir sem voru of uppteknir við að borða franskar til að láta mynda sig.
Þetta var rosaskemmtilegur hópur og það er stefnt að annarri skíðaferð sem fyrst!! Vermont rúlar!
Annars er Super Bowl í kvöld og Super Tuesday á þriðjudaginn. Alls kyns super stemmning í Boston þessa dagana. Ég er einmitt á leið á Muddy´s (MIT barinn) með fullt af fólki að horfa á leikinn, auglýsingarnar - sem eru ekki minna mál en leikurinn sjálfur. Þetta er stærsti sjónvarpsviðburðurinn í USA og fyrirtækin keppast um auglýsingatímann og frumsýna gjarnan nýjar "must see" auglýsingar. Hljómar dáldið crazy en eins og sumir vita þá hafa auglýsingar lengi verið í uppáhaldi hjá undirritaðri.. frá unga aldri :)
Á Ofur þriðjudeginum eru svo forkosningar í 24 fylkjum fyrir forsetakosningarnar, m.a. í Massachusetts. Það er ótrúlega súrt að fá ekki að kjósa.
Sem sagt super stemmning - og ég er farin að horfa á leikinn...... bæjó.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Sunday, February 03, 2008
0
comments
Gleðilegt ar!!
...já já, svolítið seint... það er samt ennþá janúar.
Ég fór heim yfir áramótin, í algjöran skreppitúr. Lenti á laugardagsmorgni og fór aftur til Boston á þriðjudeginum. Það var rosalega gaman að hitta alla. Það var mjög þétt skipuð dagskrá en ég náði að hitta alveg ótrúlega marga, skoða nýju börnin í vinahópnum, fara út að borða með skemmtilegu MR vinum mínum, hitta Quentin Tarantino á Oliver, djamma á gamlárs - mjög svo almennilega (mér til einskærrar ánægju þegar ég vaknaði allt of seint á Nýjársdag til að bruna út á völl), fara í 2 bruncha, spila Pictionary (með slökum árangri, ahemm) og auðvitað hitta alla fjölskylduna. Alveg æði.
Síðan var bara byrjað á fullu 2.janúar. Ég var að klára rotation á Faulkner Hospital, sem er "lítill" (á stærð við FSA) communitiy hospital í Jamaica Plain, sem er rétt hjá þar sem ég bý. Það var frábær rotation, ég var á skurðstofunni allan daginn þar sem þeir voru með 2 PAs sem sáu um alla deildarvinnuna. Ég held ég hafi gert ca. 50 aðgerðir á 5 vikum! Aldeilis ekki slæmt. Svo voru sérfræðingarnir líka einstaklega kennsluvænir og við m.a.s. fengum jólagjöf frá the Chief-num (agalega fínt Californiu-vín), sem hefði nú ekki gerst á Brigham. Það var líka gaman að rekast Jón Ívar kvensjúkdómalækni þar en hann er að operera þar 1-2x viku. Staffið veit núna allt um Ísland - það upphófust miklar umræður um ísl. hákarl skömmu áður en ég fór heim þannig ég kom með sýnishorn handa þeim þegar ég kom tilbaka, og smá súkkulaði til að kæfa eftirbragðið. Veit ekki hvort það var góð landkynning eða ekki.... fólk mun alla vegna ekki fjölmenna til Íslands á Þorrablótstima.
Í síðustu viku byrjaði ég svo á Háls-nef- og eyrnadeildinni. Það er alveg ótrúlega þægileg rotation. Fáir sjúklingar á teyminu og frekar afslöppuð stemmning. Þeir gera mikið af facio-cranal reconstructions sem er alveg magnað að sjá. Líka mikið af því að fjarlægja tumora af raddböndum, laryngx, tungunni (og endurbyggja upp nýja tungu í sömu aðgerð) og fleira. Mjög mikið af svona stórum 10-12 tíma aðgerðum. Mjög áhugavert - eiginlega allt öðru vísi en ég var búin að sjá HNE fyrir mér, enda roteraði ég aldrei á HNE heima.
Annars er nú margt fleira búið að vera í gangi. Fór í skíðaferð um daginn til NH, til Mount Sunapee. Það var frábært að komast á skíði, það getur að ég fari næstu helgi líka. Það eru nokkrar myndir frá Mt. Sunpee á flickr síðunni. Síðan er ég búin að fara dáldið mikið út að borða, fór á Pho Republic um daginn sem er dáldið svalur Víetnamskur staður á Washington street, fór á Aquitaine, franskan stað í South End um helgina, í kampavínsdrykkju uppi í Prudential turni, á fremur slakan ítalskan í North End á laugardagskvöldið (EUNO, mæli ekki með honum) og á litla hip og kúl skemmtistaðinn Milkyway í Jamaica Plain sem var frábær staður. Reyndar var maturinn þar alveg glataður en spænka hip hop hljómsveitin og rapparinn ASN sem stigu á svið voru góðir. Og keilusalurinn inn af sviðinu - þar sem skakkfætt ungmenni spiluðu keilu með bjór í annarri, undir rapptónunum.
Svo er dáldið af gestum á ferðinni í janúar. M.a kom Jóhann Páll við í Boston á leið sinni í USMLE II og viðtal í Dartmouth og Sigurdís kemur um næstu helgi í sín viðtöl. Já, svo vorum við Margrét að byrja að spila skvass :)
Ég er aðeins byrjuð að kíkja í kringum mig með nýtt húsnæði. Eins og íbúðin mín er nú frábær þá langar mig að flytja nær Mass General áður en ég byrja þar í sumar. Langar að vera í hjóla/göngufæri. Svo er ég mikið að spá hvort ég eigi að reyna að kaupa eða halda áfram að leigja....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, January 22, 2008
3
comments