Það er þvílík hitabylgja í gangi núna. Allir að kafna úr hita, nágrannakonan mín á fyrstu hæðinni (fyrrverandi neðanjarðarlestarbílstjóri - nú, svona illvígur miðavörður í lestunum....) fór úr bænum í dag til að flýja hitann. Hún fór á ströndina, um klukkutíma norður af Boston. Ég hitti hana við þvottavélina í kvöld og hún leiddi mig í allan sannleikann um helstu strandir í nágreninu. Hljómar aaaafar vel í hitanum, kannski maður tékki á ströndinni um næstu helgi þegar ég fæ frí frá spítalanum. Þangað til nýtur maður bara loftkælingarinnar á göngum Brigham.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Það er líka hitabylgja á Íslandi... alla vega í garðinum okkar.
já og líka á LSH, starfsfólk efnir til mótmælasetu fyrir utan barnaspítalann í hverju hádegi og situr í rúman klukkutíma....:-)
Þetta var ég.... Dögg
MMmm, engin hitabylgja í Svíþjóð.
Hún var í byrjun júní,
nú bara týpískt íslenskt sumarveður og Christian sem var búinn að sakna sænska sumarsins - hefðum betur átt að vera heima í sumar.
Miss U
Post a Comment