... þótt margir hafi verið farnir að óttast. Ég er hins vegar EKKI enn komin með internettengingu á nýja fína heimilið mitt en vonandi leysist úr því á næstu dögum.
Ég hef annars haft það alveg rosalega fínt síðan ég kom (þrátt fyrir enga nettenginu - sem er erfitt, mjöööög erfitt). Ég yfirgaf Ísland akkúrat fyrir viku síðan í roki og rigningu og lenti í Boston 5 tímum seinna í enn verra veðri (hvað átti það nú eiginlega að þýða!). Síðan þá hefur hins vegar verið sól og blíða og 70-80 stiga hiti (hvað sem það nú er í °C). Ég er búin að vera ótrúlega upptekin alla vikuna við svona koma-sér-fyrir-stússerí, svona fremur boring hlutir eins og redda mér síma (+1 781 535 1430), kaupa mér rúm og sjónvarp, stofna bankareikning, reyna að taka bílpróf (sem ég mátti ekki söku kennitöluskorts), reyna að fá kennitölu (sem tókst ekki þar sem ég er ekki búin að vera 10 daga í landinu - hvernig gat ég nú ekki vitað það), hringja milljón símtöl í internetfyrirtækið og reyndar drýgja hetjudáð þegar ég aðstoðaði við að útrýma upprennandi býflugnabúi undir svölunum mínum. Ég er líka búin að kaupa skemmtilega hluti eins og sólbekk á svalirnar og hvítvín í ísskápinn :)
Elfa og Gunnar sem búa hérna tóku rosavel á móti mér og hafa bjargað mér um allt, hafa lánað mér bílinn sinn, tölvuna sína (með virku interneti!!)og núna íbúðina sína! Geri aðrir betur! ...en þau eru í útlöndum bæði núna. Sibba og Einar Baldvin sem búa í Madison voru hér um helgina. Við fórum öll og fengum okkur EÐALsushi á föstudagskvöldinu, smá hvítvín, mun meira rauðvín og enn meira af öðrum óskilgreindum drykkjum ásamt ósköpunum öllum af belgisku súkkulaði. Mjög gaman. Vorum að til hálffimm, úffff.
Gunnar og co. búa í South End sem er einmitt þekkt fyrir m.a. að vera eitt aðal gay-hverfið hér í borg. Við fórum því öll sömul (þegar við vöknuðum úr sushivímunni) og fengum okkur brunch á Tremont Stræti sem er aðalgatan í hverfinu. Svo vel vildi til að það var akkúrat Gay Pride akkúrat þennan sama dag og eftir að hafa skellt í okkur einni mímósu í tilefni dagsins gengum við um ALLA borg með göngunni. Við erum að tala um að gangan var frá 7 AM til 4 PM - heila 9 klukkutíma!!!!! Ég tók fullt af myndum, þær fara á Flickr-ið þegar internet-gaurinn er búinn að heimsækja mig.
Svo byrjar ég á spítalanum á morgun..... spennó spennó. Meira seinna.
XXX
Ég er á lífi....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, June 11, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Ókei, byrjar á spítalanum á morgun og þá heyrum við kannski ekki mikið meira frá þér í bili, með þessa brjáluðu vinnuviku! Gott að vita að þú ert á lífi og ekki einmana!
Hlakka til að lesa um fyrstu kynni af skurðdeildinni ;)
Hljómar eins og þú hafir það agalega gott þarna úti! Ekki amalegt að svona stuðlið sé í nágrenninu. Svo er maður nú orðinn súperspenntur að heyra af spítalanum ógurlega....
Vona að allt gangi vel á spítalanum, kveðja frá Áru sissu :)
Gangi þér vel fyrsta vinnudaginn á MGH.
Takk takk! Ég er komin með netsamband - YESSSSS, nú fer að heyrast meira frá mér vonandi....
Hæ, hó!
Gott að heyra að þú sért á lífi!
Hlakka til að heyra sögur af spítalanum - þarf að fá spítalasögur í fæðingarorlofinu...
Post a Comment