Svona var útsýnið af Mission Hill í kvöld um áttaleytið þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Það var dinner á spítalanum fyrir alla skurðdeildarlæknana. Surf´n´Turf með risarækjum, sushi, nautasteik og fullt af rauðvíni! Þetta var haldið inni á einkabókasafni sviðstjórans, athyglisverð staðsetning. Ástæðan var að við erum núna búin með fyrstu vikuna af intern-árinu! Fín ástæða! Ætli þetta sé alltaf svona á mánudagskvöldum....
Deildarlæknarnir á kirurgiunni eru skemmtilegir. Ég er alveg búin að spotta ýmsa karaktera í hópnum sem svipar til ákveðinna kirurga heima. Það er t.d. einn Beggi (a.k.a. Rick) - hann er einn af umsjónardeildarlæknunum. Síðan er einn Jónas Magnússon junior, mjög hress gaur. Svo á árinu mínu er einn strákur sem er tvífari Halla (Sam)- alveg skuggalega líkir. Svo á ég víst einhvern tvífara á spítalanum sem einhverjir hafa spottað, ég veðja á að hún heiti Cathrine... Ég þarf að hitta hana, að minnsta kosti ef hún er jafn skemmtileg og tvífarinn minn heima á LSH :)
Fyrir áhugasama var ég svo að fá frí-skemað mitt í hendurnar. Það er bara alls ekki slæmt. Ég er með eina viku í byrjun september, eina viku í fyrri hluta desember og eina viku í apríl. Síðan er árið búið 20. júni þannig allir fá amk vikufrí áður en næsta tímabil byrjar sem er yfirleitt 1.júli. Ótrúlega fínt! Nú þarf maður bara að fara að skipuleggja. Kannski að maður fari til Cape Cod á ströndina, eða jafnvel kíkja á slóðir Kennedy á Martha´s Vineyard. Hey, eða jafnvel bara skella sér til California! Vill einhver koma með?
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Tuesday, June 26, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Frábært að lesa bloggið þitt... ég sé þig fyrir mér í svona Greys anatomy sviðsetningu.... rosalega busy og alltaf fullt af akút hlutum í gangi
mér finnst nú þetta hjóma mun betur en vaktirnar á LSH.. það er þá hægt að gera eitthvað um kvöldið
kveðja Dögg
Kem með.
Það er alveg smá Grays stemmning í gangi - við erum m.a.s. í alveg eins lituðum scrubs og þau!
"Deildarlæknirinn" minn er einmitt einn af chief residentunum (umsjónardeildarl.) - held hún lifi sig aðeins of mikið inn í þættina, hún á alla vegna sín föstu Nazi-moment þótt hún sé nú hin vænsta inni á milli :)
Eina gallinn við að eiga kvöldin laus er að maður þarf að vera mættur 6 am....
Magga: Jeiiiiiii :)
hahaha er það þá Rick klikk
úúú... ég væri alveg til í að koma með :)
Passar þetta inn í skíðaplanið okkar? Kannski þessi vika í desember...
Kv.
Sigurdís
Post a Comment