Hið ljufa lif


AAahhhhh, ég ligg á nýja sólbekknum mínum úti á palli og er að fá mér beyglu í hádegismat. Það er 22 stiga hiti og heiðskýrt. Fullkomin leið til að jafna sig eftir partý gærkvöldsins. Ég er loksins komin með internettengingu, sem m.a.s. nær alla leið út á svalir!

Ég er ekki enn byrjuð fyrir alvöru á spítalanum, hinu ljúfa lífi lýkur eftir 2 og hálfan dag en þá byrjar internárið formlega. Alla síðustu viku er ég búin að vera í svokölluðu "orientation" með krökkunum sem verða með mér á ári. Brigham and Womens Hospital (BWH) á hrós skilið fyrir kynningu fyrir nýtt starfsfólk (eins og LSH myndi orða það). Það er búið að fara yfir alla mögulega og ómögulega hluti með okkur, hvernig tölvukerfið virkar, hvar við nálgumst ókeypis matarmiða og vouchera í leigubíl eftir vaktir. Við fengum ID badge - aftan á nafnspjaldinu er svona "VIP"passi sem þar sem stendur: " This ID card serves as a pass through police, fire and armed services check points". Wow- pælið í því!

Við erum öll orðin ACLS certified (12 tíma endurlífgunarnámskeið!). Við erum búin að fara í heilsutékk sem fólst í berklaprófi (+/- lungnamynd eftir þörfum) og mælingu á alls kyns bólusetningartítrum. Þeir sem reyndust ekki með mótefni gegn mislingum, rauðum hundum, hettusótt o.s.frv. voru bólusettir. Ég þurfti að fá sprautu í rassinn gegn lifrarbólgu B þar sem ég reyndist ekki vera með nein mælanleg mótefni (Steinunn, það er greinilegt hvor okkar fékk ókældu sprautuna í Danmörku, haha)! Með þessu öllu saman var svo boðið upp á beyglur og muffins í morgunmat, hádegisverðarhlaðborð á hverjum degi og alls kyns kræsingar. Allt alveg ótrúlega skipulagt og vel gert. Húrra fyrir BWH!

Í síðustu viku var okkur svo boðið út á Boston Billiards þar sem við bonduðum öll voða vel, spiluðum pool og máttum panta ótakmarkað af kokteilalistanum.... Og í gærkvöldi var okkur öllum boðið í útskriftarpartý deildarinnar sem var haldið hér: www.bhh.com. Þar var 3ja rétta dinner, hljómsveit og læti. Síðan fórum við nokkur og fengum okkur kokteila hér: www.topofthehub.net.

Á föstudagskvöldið fór ég út með nokkrum stelpum sem ég kynntist hér í janúar. Við fórum á MIT svæðið í Cambridge og fengum okkur gourmet pizzur (m.a. með gorgonzola, spínati og ítölskum pylsum - MMMmmmm) og tékkuðum síðan á þeim afar svala stað Middlsex Lounge sem er þarna í Cambridge.

Sem sagt bara nóg að gera. Fyrir utan þetta allt saman er ég svo að reyna að koma mér fyrir. Eftir endalaust margar ferðir í Crate & Barrel, Ikea, T-mobile, bankann, Social security skrifstofuna, Target.... er það nú allt að koma.

Jæja, ætla að hjóla niður í bæ og fá mer ís og halda upp á 17. júní :)

8 comments:

Anonymous said...

Hæ ólöf
Gaman að heyra að allt gengur vel!
Fylgist spennt með hvernig lífið verður í nýju vinnunni
kv
Kolla P

Anonymous said...

Ja hérna. Hvaða lúxuslíf er þetta?

Anonymous said...

Hæ! Ég býst nú við að lúxuslífinu ljúki eftir nákv. einn og hálfan sólarhring þegar ég byrja á upper Gastro rotation á miðv.dagsmorgun. Ætli þeir hafi ekki verið að mýkja okkur upp áður en þeir þræla okkur út í heilt ár! Kemur í ljós... :)

Kolla: Hvað er aftur veffangið á síðunni ykkar? Dauðlangar að sjá nýjar myndir af litlakút.

Anonymous said...

Hömm hömm...ég er nú heldur ekki með mælanleg mótefni fyrir lifrarbólgu B...var alveg viss um að ég hefði fengið þetta ónýta bóluefni!
Sendi annars stuðkveðjur í Boston-stuðið. Algjört djamm greinilega!

Valdís said...

Spennandi að heyra hvernig þetta verður þegar ljúfa lífinu lýkur. Sérstaklega þegar maður er búinn að vera að horfa á Grey´s Anatomy - verður þetta ekki e-ð svipað hjá þér?

Ólöf Viktorsdóttir said...

Steinunn: Takk fyrir stuðkveðjur - ekki veitir af ;) Þetta hefur greinilega bara verið eitthvað Drasl (með stóru D-i) sem við fengum með okkur til Köben - iss piss.
Valdís: Hehe, ég nú þegar búin að spotta nokkra charactera úr Gray´s. Það er ein Dr. Yang, ein Kelly og einn algjör O´Malley og svo er jafnvel einn sem líkist McDreamy sjálfum....

Anonymous said...


netfangið á síðunni er www.huxa.net
Var einmitt að hugsa í gær að ég hlakkaði til að heyra alla sápuna sem á sér stað á spítalanum þarna í Boston, þetta verður í staðinn fyrir Grey´s í bili
kv
Kolla

Svala said...

Hæ hæ Ólöf!

Greinilega mikið fjör í Boston, þetta hljómar rosalega vel og það verður gaman að frétta af þér þegar þú ert byrjuð á fullu. Þ.e.a.s. ef þú hefur tíma til að blogga :)

Kristján Ari og Jenni biðja kærlega að heilsa.