Alveg hreint agaetis helgi



Meðan fellibylurinn Dean gerir allt vitlaust á Kyrrahafseyjum þá var hið fallegasta sumarkvöld við Trönu-strönd (Crane Beach) í kvöld.
Eg for og ætlaði að tjilla aðeins eftir næturvaktina og ná mér í smá síðsumarbrúnku en einhvers staðar á leiðinni tók ég vitlausa beygju.... og það tók mig rúma 2 tíma að finna ströndina (sem er í svona 45 mín fjarlægð frá Boston). Ég náði samt smá kvöldsól og góðri stemmningu á ströndini. Komst samt að því að ég þarf að bæta mig verulega í strandar-útbúnaði fyrir næsta sumar. Samanborið við atvinnu-strandfólkið sem var þarna þá átti ég engan séns. Þeir hörðustu voru með sérútbúin lítil strandtjöld, heilu BBQ-settin fyrir "snack-on-the-beach", iPod hátalara og ofurstór strandleikföng. Á meðan sat ég á bleiku handklæði, með sóláburð í annarri (sem þurfti nú varla í kvöldsólinni) og Harry Potter í hinni. Minimalist stemmning.

Það var samt frábært að fara aðeins á ströndina, ég fann líka nokkra skemmtilega göngustíga um svæðið en það er náttúruverndarsvæði allt um kring, mikið fuglalíf og ábyggilega fullt af alls konar öðrum minni dýrum sem ég vildi nú sem minnst vita af...

Á föstudagskvöldið kíkti ég með Margréti og Elfu á djassbar þar sem við fengum okkur nokkra martinis og skáluðum fyrir Margréti sem varð þrítug á laugardaginn. Á laugardeginum fór ég í smá skoðunarferð um Jamaica Plain sem er skemmtilegt hverfi rétt hjá þar sem ég bý, áður en ég þurfti að mæta á næturvaktina... Sem sagt alveg hreint ágætis helgi.
Já, og svo frétti ég í vikunni að abstractinn minn á ASN í San Fran í nóv. var samþykktur, gaman gaman. Nú er bara að sjá hvort Brighamfólkið vill leyfa mér að fá frí til að fara... það er ekkert til sem heitir 7 daga námsleyfi/ári hér!

*Magga Rúna* Til hamingju með afmælið... ég var að reyna að senda þér myndir af ströndinni í dag með nýja iPhone-inum en þær vildu ekki sendast... þannig ég verð að láta svona cyberspace kveðjur duga :)
*Sigrún* Til hamingju með maraþonið. Þú ert algjör snillingur, ég vissi að þú gætir þetta. Kannski ég reyni að taka 10 K í april... hmmm, þeir bjóða kannski ekki upp á neitt skemmtiskokk hér ;)
*Álfrún* Til hamingju með að vera loksins flutt í nýju íbúðina. Þú VERÐUR að senda mér myndir. Ég er geðveikt spennt að sjá...

2 comments:

Anonymous said...

Alltaf jafnaktíf! Hrifin af málræktarstefnunni hjá þér... þýða örnefni og svo frv... sbr. Trönuströnd ; )Til lukku með abstractsamþykkt.
Sendi annars bara mínar bestu til Boston úr mjög sannfærandi rigningu hér á Íslandi.... búið að rigna svotil samfellt síðan í morgun.
kveðja
Addý

Unknown said...

Æðisleg strönd! Það er nú samt alveg óþarfi að fara að herma eftir Ameríkönunum og kaupa fullt af plastdóti, mér finnst harry og bleikt handklæði hljóma miklu betur ;)
Til hamingju með Abstractinn. Já ég get núna kannski tekið myndir fyrst að Nína er búin að kaupa sér digital myndavél :)