Scrubs


Spítalaföt. Það er mjög merkilegt hvað Ameríkanar elska scrub-inn sinn. Fyrir og eftir vinnu má sjá aragrúa af fólki út um allan bæ í spítalafötum. Þeir klæða sig í scrubinn á morgnanna, eru í honum allan daginn í vinnunni og fara svo í bæinn, í ræktina, að versla, í bíó, á djammið.... í scrubnum.


Ég hitti vin minn um daginn í brunch á sunnudegi - hann var á bakvakt (home call) frá spítalanum en ákvað að mæta í scrubnum á Newbury Street í brunchinn, bara svona ef hann yrði nú kallaður inn...

Þetta er sem sagt scrub - en ekki það nýjasta af Newbury, fyrir þá sem voru ekki alveg vissir ;)

5 comments:

Valdís said...

Fyndið, ég var einmitt að horfa á Law and Order í gær og þá kom aðalgaurinn (sem var skurðlæknir) heim til sín og var enn í spítalagallanum. Mér fannst þetta eitthvað svo asnalegt, að hann hefði ekki skipt um föt, en svo er þetta greinilega svona í alvörunni:)

Anonymous said...

En sérstakt - þú getur allavega sparað verulega í fatakaupum. Mjög heppilegt að spítalagallinn (eða scrub-inn) sé svona klæðilegur ;) Viss um að þú tekur þig rosalega vel út!

Anonymous said...

Náði lágmarkinu með glæsibrag!!3:42 og lífið er yndislegt. Pínu þreytt samt :-) Varð önnur í mínum aldursflokki og er bara nokkuð sátt. Farðu að mæta á hlaupaæfingar með Bostonbúum og panta þér frí þennan merka dag árið 2008!

Anonymous said...

...hmm. Þetta er svona hópeflisfílingur örugglega. Ef við verkfræðingar þyrftum á því að halda tækjum við örugglega aldrei niður öryggishjálmana. Eh...
Gaman að sjá bloggið þitt, kveðja frá gstr 17.

Anonymous said...

Thetta med spítalafotin er mjog furdulegt. Ég skil ekki af hverju thetta er leyft m.t.t. hreinlaetis.
Pétur.