
Í dag er fimmtudagur. Á fimmtudögum er alltaf hægt að stóla á Mission Bar. Þá er bjórkvöld hjá kirurgiu residentunum og allir sem geta koma við á Mission eftir vinnu. Að sjálfsögðu í scrubnum, nema hvað.
Þessi kvöld eru yfirleitt mjög skemmtileg, fólk að droppa inn allt kvöldið, sumir stoppa stutt og sumir lengur. Barinn er beint á móti spítalanum þannig það er eiginlega ekki annað hægt en að kíkja aðeins við á leiðinni heim.
Fyrsta Mission-kvöldið í sumar, þá hafði ég haft mikið fyrir því að taka með mér aukaföt í vinnuna til að skipta áður en maður lét sjá sig á barnum. Þegar ég mætti svo á svæðið þá var ég EINA manneskjan i venjulegum fötum.... allir hinir voru í SCRUBS!!! Ótrúlegt! Og það sem var eiginlega enn ótrúlegra var að allir hinir ráku upp stór augu og spurðu hvort ég hefði verið einhvers staðar í mikilvægum erindagjörðum fyrst ég var "klædd"!
...síðan þá hef ég bara eins og allir hinir, líka mætt í scrubnum á barinn.....
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Friday, August 17, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
12 tímar í ræs og ég titra af carbo sulli og stressi!! Gúmmí= stjúpmóðir :-) Segðu svo þessum nötturum að að það sé ekki töff að mæta í scrubs neinstaðar fyrir utan spítalann. Farðu að kenna þessu liði eitthvað að viti. Leyfi þér að fylgjast með á morgun.
Knús, Forrest
Post a Comment