Merkilegt hvad menn eru likir svinum, eda svin lik monnum

Á laugardaginn fór ég til Connecticut. Hossaðist i 3 tíma í rútu (var komin langleiðina til New York) fram og tilbaka með ca. 15 krökkum sem eru með mér í prógramminu. U.S. Surgical, sem er fyrirtæki sem framleiðir svona aðgerðar-græjur, bauð okkur í heimsókn á dýra-labbið sitt til að æfa okkur á svínum! Þetta var mjög vel heppnað, reyndar dáldið spes að kíkja undir græna dúkinn og sjá bleika svínaleggi og hófa blasa við...

Við spreyttum okkur á hinum ýmsu aðgerðum. Tókum úr svíninu gallblöðruna, miltað, gerðum við kviðslit og fjarlægðum svo ímyndað æxli úr smáþörmunum, allt með nýjasta gadget-inu frá U.S. Surgical. Ég fann nú aðeins til með þeim, verð að viðurkenna það. Það verður a.m.k. smá bið þar til ég skelli svínalærum á grillið.

4 comments:

Áslaug said...

Voru svínin lifandi? Mamma

Anonymous said...

Tek undir spurninguna, voru þau lifandi?
Steinkan (orðin gleraugnalaus!)

Anonymous said...

Það er bara svo frábær kostur að geta svo bara gefið þeim OD eftir að "aðgerðinni" lýkur! Við æfðum okkur líka svona í dýralækningunum.

Anonymous said...

Ju ju, tau voru lifandi medan a adgerdum stod. Voru svaefd fyrir adgerd, dukud upp med graenum skurdduk og tengd vid alla helstu monitora thannig thetta var allt mjog raunverulegt.
Merkilegt samt hvad svin eru lik monnum, amk on the inside. Vissud thid samt ad svin hafa engan botnlanga?