White Coats



Glaðbeittir ungir menn á góðri stundu!
Ég fann þessa mynd á netinu en svona líta slopparnir okkar út. Læknanemar og residentar þurfa að vera í svona stuttum sloppum en það er ekki fyrr en maður er búin að standast board prófin og hljóta nafnbótina sérfræðingur að manni leyfist ganga um í "alvöru" white coat. Fyrst fannst mér þetta nú frekar bjánalegt en ég er búin að sjá marga kosti við stutta sloppinn og er eiginlega komin á þá skoðun að hann sé bara miklu betri en sá síði.

- Í fyrsta lagi hentar stutti sloppurinn kvenlegum vexti mun betur en sá síði, maður fær svona "jakka"fíling. Getur jafnvel ímyndað sér að maður sé á leiðinni í kokteil... Ég er að spá í að setja tillögu í hugmyndakassann þeirra að hafa þá aðsniðna líka ;)
- Í öðru lagi eru þeir ekki að flækjast í hurðarhúnum, rúmgöflum eða borðhornum eða klemmast milli lyftuhurða en ég upplifði endurtekið með síðu Landsa-sloppana.
- Þeir eru með 4 vösum (þ.m.t. einum innaná-vasa!) -Aha!
- Þeir flaksast ekki eins mikið ef það er rok (eða ef maður er á svo mikilli hraðferð að það er eins og það sé rok).
- Svo eru þeir bara hip og kúl.

Veit ekki hvort fólk er sammála mér samt....

Camry 2007



Ég er frá og með í dag orðinn stoltur eigandi þessa fallega silfurlitaða Toyota Camry!!
Eftir nokkrar spekúlationir af minni hálfu ákvað ég að skella mér á einn slíkan. Það sem spilaði m.a. sterklega inn í þessa ákvörðun var gríðarlegur sjarmi sölumannsins Alexey (ættaður frá Kasakstan!!). Alexey fór með mig í 4 bíltúra þar sem keyrt var um í Boston-umferðinni (sem er alræmd), keyrt 4 sinnum yfir lestarteina og einu sinni á móti umferð. Ahemm, það var víst ég samt sem var undir stýri. Síðan sýndi hann mér digital myndir af heimaborg sinni Alma-Ada og raulaði fyrir mig kasaktan-ískan lagstúf. Eftir þetta var ekki annað hægt en að fjárfesta í þessum svakalega fína bíl. Hann er m.a.s. með topplúgu.
Ætli það verði svo ekki Sigurdís sem fær heiðurinn af fyrsta bíltúrnum en hún er að koma í heimsókn eftir viku! Hún fær líka heiðurinn af því að vera fyrsti gesturinn minn. Go Sigurdís!

Ég er í New York!! Jííííí, geðveikt gaman. Við Hrafn og Stína erum búin að labba út um alla borg í dag, fórum m.a. yfir Brooklyn brúna og skoðuðum nýjasta listamannahverfið í Brooklyn sem heitir því frumlega nafni Dumbo. Það var mjög funky hverfi, fundum m.a. annars 1000 manna biðröð around the block - kom í ljós að fólkið var að bíða eftir að kaupa miða á japanska rokktónleika með 77 trommusettum.
Erum svo að fara á Buddabar í kvöld http://www.buddhabarnyc.com/

Maður gerir bara eitthvað eitt....

Ég kem yfirleitt heim úr vinnunni milli 6 og 7. Samkvæmt vísindalegum útreikningum á maður að sofa í átta tíma til vera hress og sprækur að morgni. Þar sem ég vakna kl.5 á hverjum morgni þýðir það að til að framfylgja þessari ágætu reglu þarf ég að fara að sofa kl.9 á kvöldin. Það gefur mér 2-3 tíma til að gera eitthvað annað áður ég skríð í bólið. Ég er búin að sjá það út að maður gerir bara eitthvað eitt!
Hvort sem það er að fara í ræktina (www.fitcorp.com), út að hlaupa, í bíó, elda mat, fara í súpermarketinn (ég er alltaf svo lengi þar - finnst svo gaman að browsa um búðina) eða fá sér bjór með kirurgunum (alltaf á fimmtudögum á spítalabarnum) þá gerir maður bara eitthvað eitt eigi tímamörkin að standa. Þrátt fyrir það tekst manni SAMT yfirleitt ekki að standast tímamörkin - a.m.k. ekki hingað til. Besti tíminn minn frá upphafi er að vera sofnuð kl. 22.15!

Með gríðarlegri útsjónarsemi tókst mér í kvöld að sameina 2 viðburði í einn! Ég þurfti nefnilega nauðsynlega að fara í búð og þurfti einnig nauðsynlega að hreyfa mig eitthvað. Eftir miklar spekúlasjónir ákvað ég að:
- Keyra á bílnum að bílastæðinu á Trader Joe´s (sem er langbesti súpermarkaðurinn - efni í heilt blogg). 19.35,
- Lagði þar laumulega í eitt hornið (það er nefnilega bara 1 klst. hámarkstími á bílastæðinu). 19.45
- Joggaði um Brookline og Cambridge og sneri aftur að TJ. 20.30
- Verslaði (á stuttbuxunum - góður fílíngur!) á 45 mín (ég veit, ég veit, óþarfa mínútum kannski eytt þar). 21.15
- Kom heim 21.25 - rétt yfir tímamörkum.
- Skemmdi síðan allt saman með því að fara á netið..... og skrifa þessi töluðu orð. Nú er kl. 22.15. Mun sem sagt ekki slá eigið met í kvöld.

Annars var næturvaktin á laugardagskvöldið algjört djók. Ég var á vakt fyrir the Cutler Service (sem er teymið mitt - efri gastro). Það er sambærilegt við að vera á vakt fyrir eina deild heima, t.d. á vakt fyrir krabbameinsdeildina eingöngu. Bráðalæknarnir sjá um allar innlagnir sem koma inn um bráðamóttökuna þannig maður er beinlínis bara á húsvakt fyrir sitt teymi. Ég fékk 4 píp fyrir kl.4 um morguninn (vaktin byrjaði 6 pm), svaf samfleytt í 4 tíma og notaði síðan síðustu 2 tímana af þessari 12 tíma vakt til að undirbúa morgunstofuganginn sem hefst alltaf á slaginu 6. Næs! Auk þess sjá hjúkkurnar um allar blóðræktanir, beiðnaútfyllingar, EKG og þvíumlíkt. Þetta er víst samt ekki alveg svona fínt á virkum dögum skilst mér...

Og já, ég er fara til NY um næstu helgi að hitta Hrafn og Stínu. Jei :)

Og já, eitt annað. Það er 4.júlí á morgun - Þjóðhátíðardagurinn sjálfur. Það verður spennadi að sjá hvort cafeterian bjóði upp á kræsingar á tyllidögum, líkt og Landsinn. Laxarúlla og ratatoille.. eða kannski ekki.
Nú er kl.22.30 - uss suss uss!

Fridagur!!!

Jei, í dag er sól og sumar og fyrsti frídagurinn minn.... ja, reyndar þarf ég að mæta á næturvaktina kl.6 sem er nú frekar súrt :(
Ég ætla að drífa mig út úr bænum og kanna nýjar slóðir. Ferðinni er heitið til Walden Pond sem er rétt utan við Boston. Þar á vera svaka fínt náttúrusvæði, hægt að jogga ef maður er þannig stemmdur (sem maður reyndar er), hægt að sóla sig á vatnsbakkanum og synda í vatninu.

Kata sem er að læra OBGYN í Denver, Colorado kom til Boston í gær. Við fórum aðeins út í gærkvöldi og fengum okkur að borða. Fundum þennan líka fína stað í South End til að snæða nautasteik og ræða málin yfir rauðvínsglasi. Hún var að klára grunnnámið í Denver og er núna í viðtölum fyrir fellowship. Þannig maður fær aftur að upplifa match-stemmningu fyrir fellowship. Dáldið spennó, kannski maður reyni við California næst.... Það er reyndar 4 ár í það hjá mér þannig maður hefur nægan tíma til að spá í því.

Best að drífa sig af stað út í góða veðrið.

Hitabylgja

Það er þvílík hitabylgja í gangi núna. Allir að kafna úr hita, nágrannakonan mín á fyrstu hæðinni (fyrrverandi neðanjarðarlestarbílstjóri - nú, svona illvígur miðavörður í lestunum....) fór úr bænum í dag til að flýja hitann. Hún fór á ströndina, um klukkutíma norður af Boston. Ég hitti hana við þvottavélina í kvöld og hún leiddi mig í allan sannleikann um helstu strandir í nágreninu. Hljómar aaaafar vel í hitanum, kannski maður tékki á ströndinni um næstu helgi þegar ég fæ frí frá spítalanum. Þangað til nýtur maður bara loftkælingarinnar á göngum Brigham.


Svona var útsýnið af Mission Hill í kvöld um áttaleytið þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Það var dinner á spítalanum fyrir alla skurðdeildarlæknana. Surf´n´Turf með risarækjum, sushi, nautasteik og fullt af rauðvíni! Þetta var haldið inni á einkabókasafni sviðstjórans, athyglisverð staðsetning. Ástæðan var að við erum núna búin með fyrstu vikuna af intern-árinu! Fín ástæða! Ætli þetta sé alltaf svona á mánudagskvöldum....

Deildarlæknarnir á kirurgiunni eru skemmtilegir. Ég er alveg búin að spotta ýmsa karaktera í hópnum sem svipar til ákveðinna kirurga heima. Það er t.d. einn Beggi (a.k.a. Rick) - hann er einn af umsjónardeildarlæknunum. Síðan er einn Jónas Magnússon junior, mjög hress gaur. Svo á árinu mínu er einn strákur sem er tvífari Halla (Sam)- alveg skuggalega líkir. Svo á ég víst einhvern tvífara á spítalanum sem einhverjir hafa spottað, ég veðja á að hún heiti Cathrine... Ég þarf að hitta hana, að minnsta kosti ef hún er jafn skemmtileg og tvífarinn minn heima á LSH :)

Fyrir áhugasama var ég svo að fá frí-skemað mitt í hendurnar. Það er bara alls ekki slæmt. Ég er með eina viku í byrjun september, eina viku í fyrri hluta desember og eina viku í apríl. Síðan er árið búið 20. júni þannig allir fá amk vikufrí áður en næsta tímabil byrjar sem er yfirleitt 1.júli. Ótrúlega fínt! Nú þarf maður bara að fara að skipuleggja. Kannski að maður fari til Cape Cod á ströndina, eða jafnvel kíkja á slóðir Kennedy á Martha´s Vineyard. Hey, eða jafnvel bara skella sér til California! Vill einhver koma með?